10.5.2011 | 09:42
Til hamingju með afmælið Dísa mín.
Vinkona mín og jafnaldra átti afmæli í gær. Elsku Dísa mín við höfum nú þekkst um langa tíð, verið nágrannar frá barnæsku, skólasystur og lékum okkur oft saman. Þó leiðir hafi skilist og þú farið héðan, fyrst inn í Ísafjarðardjúp og síðan til Reykjavíkur, hefur aldrei slitnað okkar vinskapur. Hann hefur verið mér dýrmætur.
Það voru ófá skiptin sem við vorum í eldhúsinu hjá móður þinni að spjalla og borða bestu kleinur í heimi.
Takk fyrir allt elsku Dísa mín og innilega til hamingju með afmælið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
hjá Ísafjarðarbæ, og þar af leiðandi verið að skoða ýmis bréf sem ég hef sent, að vísu heimanað frá mér, en samt vistuð í vinnunni, þá kom þetta bréf og minnti mig á soninn minn og barátturna um hans hag. Ég ætla mér jafnvel að setja fram fleiri dæmi og bréf til að árétta það sem er algjörlega rangt í áherslum ríkisins í baráttunni við fíkla. En svona hljómar þetta bréf sem ég skrifaði til Landspítala háskólasjúkrahúss þegar ég átti von um að sonur minn kæmist að í Krýsuvík, bréfið segir sína sögur.
Ísafirði 22 ágúst 2002.
Landssítali Háskólasjúkrahús
Geðdeild 33A
b.t.yfirmana.
Sonur minn... nafn kennitala var vistaður á Geðdeild 33A föstudaginn 2. ágúst s.l.
Hann var þá búinn að fá pláss í Krýsuvík í langtíma meðferð. Skilyrði frá þeirra hendi var að hann færi í afeitrun áður en hann kæmi til þeirra. Ég hafði fengið tíma hjá Jóhanni Bergsveinssyni kl. 10 þann 2.8.2002.
Byrjun málsins var sá að ég taldi og tel enn að ****** sé kominn á hættulegt stig í eiturlyfjaneyslu. Svo hættulega að ég ætlaði að svipta hann sjálfræði. Var mál þetta komið fyrir dómara, og mætti ***** þar ásamt mér og lögfræðingi sem var skipaður honum. Lá fyrir að Langtímameðferð í Krýsuvík stæði til boða, og staðfesur tími hjá fyrrgreindum lækni á Geðdeild.
***** bað þá um að hann fengið að ganga þessa þrautargöngu án þess að vera sviptur, hann var alveg samþykkur því að fara í Krýsuvík, en taldi sig ekki þurfa afeitrun. Það var hins vegar öllum ljóst öðrum sem í kring um hann voru að það var nauðsynlegt. Ég sá aumur áhonum og því miður samþykkti að bíða með sviptingu, en gerði honum jafnframt ljóst að stæði hann ekki við sitt myndi svipting vera eina ráð mitt til bjargar.
Föstudaginn 2. ágúst sendi ég hann suður með morgunvél og til að tryggja að hann kæmist alla leið borgaði ég manni til að fylgja honum alla leið á Geðdeild.
Laugardaginn 3.7. hleypur hann hinvegar út eftir því sem mér var tjáð seinna, og kom lögreglan með hann aftur þangaði sama dag.
Á miðvikudaginn 7. ágúst hringir hann í mig og fleiri ættingja og kunningja og reynir að fá peninga til að kaupa sér tannkrem og sigarettur.
Ég hafði þá samband við hjúkrunarfræðing sem er á vakt og lýsi áhyggjum mínum af þessum ákafa hans í að fá aura og taldi að hann ætlaði sér að fá pening fyrir lyfjum, hún sagði mér að hann mætti alls ekki fá peninga, hann gæti fengið tannkrem og slíkt hjá þeim og það væri heppilegra að senda einhvern til hans með sigarettur, hjann fengi hvort sem er ekki að fara neitt án fylgdarmanns.
Fimmtudag sendum við svo stjúpbróður hans með sigarettur og sælgæti til hans.
Á föstudag fer afi hans suður og ætlar að færa honum sigarettur, en þá er sagt að það sé afar óæskilegt að hann fái heimsóknir.
Sama dag föstudaginn frétti ég svo af honum í Hafnarfirði að reyna að kaupa sér læknadóp. Maðurinn minn hringdi þá fyrir mig á deildina og þar fengum við þær upplýsingar að hann væri í bæjarleyfi, en hann ætti að fara að skila sér. Auðvitað skilaði hann sér aldrei, hann ætlaði að gera það, en hann hefur enga orku til að standast freistingar og þess vegna fór þessi prosess í gang. Hann er ennþá á vergangi í Reykjavík þegar þetta er skrifað og ég veit ekkert hvar hann er, bara að hann er einhversstaðar og mjög veikur. Hann er búin að missa plássið í Krýsuvík og ég er ráðalaus og örvingluð.
Mánudaginn 26. ágúst n.k. Fer ég aftur til dómara með sama máliði, það er síðasta hálmstráið sem ég hef til að bjarga syni mínum. Þá mun hann að öllum líkindum sviptur sjálfræði í ex mánuði og er þar með án mannlegra réttinda. 'Eg fer því fram á að hann verði tekinn inn á Geðdeild Landspítala háskólasjúkrahús deild 33A og fái þar meðhöndlun og vistun þangað til mér tekst að koma honum í langtíma meðferð. Ég er búin að sækja um að koma honum aftur í Krýsuvík, en þar er víst langur biðlisti, vonandi tekur það samt ekki langan tíma. Vona ég að beiðni mín fái jákvætt svar.
Virðingarfyllst Ásthildur Cesil Þórðardóttir.
Tek það fram að þessu bréfi var aldrei svarað.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggfærslur 10. maí 2011
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 2023336
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar