Ég er ein af þessum NEIsinnum.

Veðrið hér er yndislegt enn einn daginn.  Blómin bókstaflega ryðjast upp og blómstra.

Ég var að hugsa áðan að það er eiginlega orðið dálítið fyndið þetta Icesavestríð.  Landið skiptist í tvo hópa Já-hópinn og Nei-hópinn. En það er ekki bara það.  Meðan Já-hópurinn virðist hafa stórfé milli handa og auglýsir grimmt jáið sitt, eru Nei- sinnar grasrót þar sem ekki eru til neinir peningar til að berjast fyrir málstaðnum, en margir leggjast á eitt við að koma fólki í skilning um að málið er ekki á okkar könnu það er bara svo einfalt.

 Það hafa margir lagt hendur á þennan plóg, og vonandi skilar það sér til fólks, betur en auglýsingaskrum fjármálaafla.  Fyrir mér er þetta svona á líka og Davíð og Golíat. 

Ég vil sérstaklega benda á tvær konur sem hafa verið einstaklega samhentar og unnið ótrúlega vel að málstað Nei-sinna, en það eru þær Rakel Sigurgeirsdóttir og Helga Þórðardóttir.  Þær koma reyndar sitt úr hvorri hreyfingunni, svo ekki er það pólitísk blinda sem rekur þær áfram,  hér eru tvær greinar sem þær hafa sent frá sér.  Það er nefnilega svo skrýtið að útvarp allra landsmanna hefur bara áhuga á Jáinu, neiið fær ekki inni hjá þeim og flestum öðrum fjölmiðlum.

 

http://raksig.blog.is/blog/raksig/entry/1154645/

http://raksig.blog.is/blog/raksig/entry/1155460/

Svo má bæta þessu við. Tók það af síðunni hans Jóns Vals.  http://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/1155507/

Mér finnst eiginlega þessi deila vera komin í þá stöðu að vera Fjármálaelítan versus þjóðin.  Svo er að sjá hvort ég hef rétt fyrir mér.  En ég hef aldrei séð þvílíkan áróður fyrir neinu máli fyrr né síðar, bæði sjáanlega og ekki síst dulinn í áróðri þar sem fólk lætur að því liggja leynt og ljóst að allt fari hér til andskotans ef við segjum ekki Já.  það sem augljóst er, er  að peningarnir liggja á lausu hjá Jáliðum.  Vaxa sennilega á trjánum, eða góðum vöxtum í bönkunum. 

En af hverju þarf að hafa svona mikið fyrir því að fá þjóðina til að játa á sig skuldaklafa sem hún hefur ekki átt neinn þátt í að búa til?  Af hverju eigum við að skrifa upp á óútfylltan víxill fyrir Björgólf Thor og félaga?  Það er von að menn þurfi að eyða bæði fé og tíma í að koma því inn í hausinn á okkur kjánunum.   Enda höfum við endalaust látið plata okkur upp úr skónum með fagurgala og loforðum, sem hafa svo ekki staðist.  Nú er að sjá hvort ennþá einu sinni látum við plata okkur til að borga fyrir herlegheitin sukkið og svínaríið. Já nú er að sjá hvort þjóðin segir ekki bara eitt stórt NEI þann 9. aprí. n.k. 

Eigið góðan dag elskurnar.Heart


Bloggfærslur 2. apríl 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband