Stund milli stríða.

Það er mikið að gera hjá mér þessa dagana. Mest liggur á dreyfplöntuninni, því blómin eru fljót að vaxa úr sér, svo er fermingin, og tónleikarnir.  Ég er að sjá fyrir endan á prikluninni, sem betur fer. Og nú líður að fermingunni.  Það er reyndar allt að verða klárt ég á líka svo yndæl systkini og mágkonur, sem allt vilja gera til að aðstoða mig.

IMG_0879

Ævintýraleg mynd. J'a það hefur snjóað dálítið.  En veðrið er annars gott.

IMG_0881

Í garðskálanum skarta plönturnar mínar sínu fegursta.

IMG_0882

Væntanleg kirsuber.

IMG_0883

Perur.

IMG_0884

Kamillan mín.

IMG_0885

Og við æfum daglega, ég er búin að draga fjölskylduna inn í dæmið. Systir mín Halldóra ætlar að sauma á okkur sokkabönd. LoL 

IMG_0887

ég veit að ég á einhversstaðar málband, en ég finn aldrei neitt í þessu húsi, svo hún varð að notast við sláturgarn til að mæla á okkur lærin LoL  Hún deyr ekki ráðalaus hún systir mín. 

IMG_0889

Og nú er að fjölga í kúlunni svona yfir páskana.  Við fengum okkur hrygg í gær.

IMG_0890

Og Sóley Ebba kemur alla leið frá Noregi, vona að hún komist í dag, það er dálítil mugga og skyggnið ef til vill ekki alveg nógu gott.

IMG_0891

Þessi snjór verður fljótur að fara, enda er hitinn yfir frostmarki.

IMG_0892

En trén eru falleg svona með jólasnjó á sér.

IMG_0893

Já lífið er gott ef maður leyfir því að vera þannig. 

IMG_0895

Smá kveðja frá Ísafirði, þar er sól í sinni og inni.  En hvítur snjór hylur jörð, en er nú óðum að hverfa.  Eigið góðan dag. Heart

 


Bloggfærslur 18. apríl 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband