Af hverju ekki Frjáls Hreyfing Villikatta?

Ég fylgdist með umræðunum á Alþingi í gær með athygli.  Þegar forsætisráðherrann talaði varð ég alveg uppnuminn, hvar er þessi Útópía sem hún er að tala um, ætli við getum fengið inngöngu?  Ég vil komast í þetta dásemdar land með frábæra ríkisstjórn sem fyrst.  Ekki seinna en núna.

Ég vissi ekki til að það fyndust svona frábærir stjórnvitringar eins og forsætisráðherra og fjármálaráðherra Útópíu.  Það er nú eitthvað annað en hérna hjá okkur, þar sem allt er í kyrrstöðu og ekkert gerist, nema að gauka góðum stöðum að vinum og ættingum án auglýsingar, fyrsti kvenforsætisráðherra landsins brýtur jafnréttislög og ótal mörg önnur.  Bönkum er hyglað á kosnað alþýðunnar.  Ég veit að þau Steingrímur voru ekki að ræða um Ísland, en þau hefðu nú getað sagt okkur hvernig við eigum að komast í þessa dásamlegu Paradís sem þau voru að segja okkur frá. 

Ég beið spennt eftir því hvað Guðfríður Lilja myndi segja, nú er búið að sparka hressilega í hana af félögum sínum.  En þessi kona kom mér þægilega á óvart.  Hún er trú sinni hugsjón og telur sig geta varið það sem henni er mest um vert náttúru Íslands með því að sitja áfram.  Ég virði hana fyrir þessa ákvörðun og segi mættu fleiri vera svona.  Reyndar er ég þá ekki að tala um Ásmund Einar, Lilju Móses eða Atla, og ekki heldur Birgittu, Margréti og Þór.  Þetta fólk virðist allt vilja vinna með fólkinu, þjóðinni í landinu.

Það er einkennileg staða sem birtist þarna í gær, og í fyrsta sinni fékk ég svona smá von í brjóstið.  Því það er ekki bara stjórnin sem er glötuð og lost, heldur líka Sjálfstæðisflokkurinn.  Það heyrðist greinilega á umræðunni, og sennilega er það rétt að vantraustið hefði verið samþykkt í annað sinn held frá upphafi, ef framsóknarflokkurinn hefði lagt hana fram. 

Það kom líka fleira merkilegt fram þarna í umræðunni, maðurinn sem sagt er að vilji komast í formannsstólinn. Guðmundur Steingrímsson sat hjá, þar með tel ég að hann hafi gert út um að hann bæri  þann titil, hver vill formann sem vinglar og dinglar, situr hjá í mikilvægum málum?  Það var ekki atkvæði Guðfríðar Lilju sem bjargað ríkisstjórninni fyrir horn í þessu máli heldur hjáseta Guðmundar.  Ég held að honum verði ekkert þakkað það sérstaklega meðal framsóknarmanna,  hann ætti bara að fara aftur þaðan sem hann í Samfylkinguna.  Minnir að hann hafi yfirgefið hana einmitt vegna þessa að hann fékk ekki það brautargengi  sem hann telur sér bera í stjórnmálum, sennilega út af afa og pabba.  Sem betur fer er sú skoðun á undanhaldi meira að segja líka á Alþingi.

En það er ljóst að ríkisstjórnin er fallinn, hún getur lafað eitthvað áfram en mun ekki koma neinum málum fram nema þeim sem villikettir samþykkja, nema með að kaupa Siv og Guðmund, sem bæði virðast föl fyrir feit jobb og upphefð.  En þá kemur þar þröskuldur sem heitir Guðfríður Lilja sem sýndi þeim í gær að hún mun ekki veita neinum málum brautargengi sem hún telur að verði ekki þjóðinni og umhverfinu til hagsbóta. Og svo er líka Jón Bjarnason sem ekki gengur alltaf eftir línunni sem gefinn er. 

Þetta er pattstaða sem væri ágæt í sjáfu sér ef það þyrfti ekki að byggja landið upp og reisa það úr rústum, sem það hefur verið frá hruni.  Og verður greinilega ekkert gert í fyrr en þessi ríkisstjórn hrökklast frá völdum.  Það virðist vera eitthvað erfitt því þau eru svo sannfærð um að þau séu á réttri leið og þeim hafi tekist hið ótrúlega að gera landið byggilegt á ný.  Málið er bara að þessi fullyrðing þeirra stenst ekki raunveruleikann.  Ekki sýnist mér það allavega.  Meira að segja þeirra eigin flokksmenn hrista haus yfir stjórnvisku þeirra.

Lati Geir á lækjabakka

 lá þar til hann dó.

Ekki vildi hann vatnið smakka,

þyrstur var hann þó.

Segir vísan.  Ekki ætla ég að væna þau skötuhjú um leti, því svo sannarlega eru þau bæði harðdugleg og seig, en þau hafa bara ekki forganginn á hreinu, þau ættu ef til vill að lesa yfir kosningaloforðin og stjórnmálasáttmálann sem þau gerðu.   Þar er eitthvað minnst á Skjaldborg minnir mig, og hreinsun í stjórnkerfinu og þjóðfélaginu. 

En ég ætla að skamma þau fyrir seina gang í því að auka fiskveiðar til að bjarga sjávarplássum, gefa frjálsar handfæraveiðar og auka strandveiðar, þegar sjórinn er fullur af fiski.  Jóhann í Hafró ætti að vita að það er ekki hægt að geyma fiskinn í sjónum, þegar fer að skorta æti fer hann að éta ungviðið og hver annan.  Það væri gaman að heyra útreikningana um hvað við höfum tapað  á því að geyma fiskinn í sjónum fyrir L.Í.Úarana, og meina öðrum að bjarga sér, fyrir utan allt brottkastið sem viðgengst því mönnum er refsað fyrir að koma með fiskinn að landi.  Mér finnst þetta svo vitlaust að ég á ekki orð yfir heimskuna, svona Lati Geir á lækjarbakka dæmi.

En ég var að hugsa, það virðist vera að nær helmingur þjóðarinnar treysti ekki fjórflokknum lengur, það hefur komið fram bæði í skoðanakönnunum og umræðum á netinu og annarsstaðar. 

Þess vegna ætla ég að leggja til samtök sem munu örugglega þóknast mörgum.  Þau gætu heitið Frjáls Hreyfing Villikatta.  FHV. 

Þessi hreyfin stæði saman af Frjálslyndum, Hreyfingunni og Villiköttunum í Vg.  Þetta er allt saman fólk sem alþjóð þekkir af störfum sínum, bæði núverandi og fyrrverandi þingmenn.  Þau hafa öll sýnt að þau bera hag fólksins fyrrir brjósti, Sigurjón þótti afar skeleggur þingmaður. 

Frjálslyndi flokkurinn hefur alltaf átt sterkar rætur á landsbyggðinni og fólk veit að hann hefur góða yfirsýn yfir sjávarútvegsmálin.  Vinstri græn Þ.e. þau sem ekki hafa gleymt öllum sínum baráttumálum  eiga mikinn stuðning hjá bændum.  Og Hreyfinginn er með sterka stöðu í borginni. 

Þetta er að mínu mati óskastaða, að þessi þrjú flokksbrot tækju sig saman og mynduðu einhversskonar kosningabandalag.  'Eg er nokkuð viss um að þau myndu ná eyrum landsmanna. 

Ég treyti öllu þessu fólki til góðra verka og ég þekki líka baklandið í Frjálslynda flokknum veit m.a. að grasrótinn þar hefur unnið vel með grasrót Hreyfingarinnar.  Ég skora á þessa hópa til að hittast og fara yfir stjórnmálaskoðanir sínar, ég held að með öllu þessu fólki sé sterkur samhljómur um uppbyggingu landsins, fólk sem þorir veit og getur.  Það mun ekki bera mikið á milli, í mesta lagi hvort flugvöllurinn á að fara eða vera.  Í flestum stórum málum er þetta fólk í hjarta sínu sammála. 

Mikið vildi ég sjá þetta afl í næstu kosningum, sem nóta bene eru ekki svo langt undan.  Þessi ríkisstjórn er búin að vera, rúin trausti og lafir á stólum sínum, vegna þess að forystan veit að hún er búin að vera í pólitík, örfáir geta treyst þeim lengur, og þau hafa hrakið frá sér hæfasta fólkið, eða haldið því í gíslingu, alveg rétt eins og Davíð Oddsson gerði á sínum tíma og það má sjá á forystuleysi Sjálfstæðisflokksins, það má líka sjá í forystuleysi Samfylkingarinnar, og er að koma í ljós hjá Vinstri Grænum. 

Ég trúi á framtíð landsins, ég trúi á dugnað og þrautseigju íslendinga ef hendur þeirra eru ekki endalaust bundnar af reglum og óréttlátum kröfum stjórnvalda.  Ég trúi því að við munum ná okkur fljótt og vel upp úr þessari lægð með stjórnvöldum sem vinna með fólkinu, en ekki endalaust á móti.  Og ég trúi á frelsi einstaklingsins til að bjarga sér af því sem landið okkar gefur.   Við getum verið mörgum öðrum þjóðum fyrirmynd í að skapa okkur og niðjum gott líf og hamingju.

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

 

Rís þú, unga Íslands merki,

upp með þúsund radda brag.


Tengdu í oss að einu verki


anda, kraft og hjartalag.

Rís þú, Íslands stóri, sterki

stofn með nýjan frægðardag.



- -

Skín þú, fáni, eynni yfir

eins og mjöll í fjallahlíð.

Fangamarkið fast þú skrifir

fólks í hjartað ár og síð.

Munist, hvar sem landinn lifir,

litir þínir alla tíð.


Einar Benediktsson.

Eigið annars góðan dag.  Heart


Bloggfærslur 14. apríl 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband