Nú þarf að hugsa til framtíðar.

Það er nokkuð ljóst hvað sem stjórnarliðar segja að þessi ríkisstjórn er á síðustu metrunum.  Útganga Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar er stórt högg.  Ekki sísteftir að ljós er heiftin og hefnigirnin í forystunni, talandi með fagurgala um hve góðir liðsmenn þau hafa verið um leið og þau kasta þeim út úr nefndum á vegum ríkisins samdægurs.  Látum vera að þau hefðu einfaldlega verið látin víkja sem formenn, en þarna sýndi forystan að allt það sem þau hafa verið að segja er satt, offorsið er þvílíkt og reiðin öllum ljós.

 Það er allavega komin tími til að huga að framtíðinni.  Allur fjórflokkurinn er rúin trausti, og almenningur hefur sýnt þeim rauðaspjaldið í öllum skoðanakönnunum undanfarið, þar sem meirihluti þjóðarinnar tekur ekki afstöðu um hvað þeir ætli að kjósa, ætla sitja heima eða skila auðu. 

Enda sýnist mér að hvorki Framsókn eða Sjálfstæðismenn hafa áhuga á að gerast hásetar um borð í hriklekri skútunni.  Hvað þá Hreyfingin.

Eina sem stjórnin getur gert í stöðunni er að fresta þessum EBS draumum, afþakka aðstoð AGS.  Það voru mistök ríkisstjórnarinnar að byrja sinn feril á því að kljúfa þjóðina í herðar niður með mesta deilumáli allra tíma.  Óskiljanleg mistök og að þau skyldu ekki fyrir löngu dregið málið til baka, til að friða þjóðina. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981 

En nú þarf að huga að framtíðinni.  Það sem ég lít skynsamlegast er að nú leysi forsetinn upp þessa ríkisstjórn kyrrstöðu, skipi utanþingsstjórn til tveggja ára, meðan flokkarnir endurskipuleggja sig og reyni að losa sig við skemmdu eplin í sínum röðum, til dæmis hrokagikki og kúlulánþega, styrkjakónga og svo framvegis. 

Eftir tvö ár verði síðan kosningar.  Og þá myndi ég vilja sjá bandalag þeirra sem virkilega vilja vinna landi sínu gagn.  Þá á ég við að það bandalag standi saman af Hreyfignunni, Frjálslyndaflokknum, Lilju og Atla, og óháðra sem hafa talað fyrir réttlæti og jöfnuði.  Og fólksins sem hefur verið að reyna að koma á framfæri hugmyndum sem eru skynsamlegar og réttlátar, þar koma nokkur nöfn upp í hugann, Gunnar Tómasson, Marínó Njálsson, Lára Hanna Einarsdóttir, og margir fleiri. 

Mér er kunnugt um að fólk úr grasrót Frjálslyndaflokksins og Hreyfingarinnar hafa starfað þétt saman við ýmis þjóðþrifamál svo margt er líkt meðal þessara flokka, Hreyfingin er sterk í höfuðborginni en Frjálslyndir á landsbyggðinni.  Þessi samtök myndur þurfa að slípa saman ýmis mál eins og ágreining um flugvöllinn í Reykjavík, en það er ekkert mál að salta hann um nokkur ár.  Að flestu leyti sýnist mér að stefna þessara tveggja flokka geti vel farið saman, og mér sýnist líka að stefna Lilju og Atla fari að miklu leyti saman við þá stefnu líka. 

Það er ljóst að við verðum eitthvað að gera ef við viljum hreinsa til.  Og besta leiðin er að þessar grasrótarhreyfingar og það fólk sem virkilega kallar eftir réttlæti og gagnsæi myndi slíkt bandalag og reyni að fá sem flesta til að fylgja þeim.  Þetta er allt fólk sem fólk treystir til að vera heiðarlegt og laust við klíkuskap og samtryggingu líkt og fjórflokkurinn hefur.

Ég vil að þessir einstaklingar sem ég hef nefnt og margir fleiri sem hér hafa komið við sögu en ég ekki nefnt, komi saman og ræði málin hvort ekki sé grundvöllur fyrir slíku bandalagi.  Því okkur er lífsnauðsyn sem þjóð að bretta upp ermar og leggja okkar af mörkum til að breyta ástandinu.  Aldrei hefur verið meiri grundvöllur fyrir slíkri grasrótarhreyfingu en nú.  Aldrei hefur akurinn verið betur plægður fyrir breytingar en nú.  Og við sem þjóð þurfum að fara að huga að því hvað fólk gerir, en ekki hvað það lofar. 

Við erum orðin dauðþreytt á innihaldslitlum loforðum sem svo er ekki staðið við og fjandskapinn sem þeim er sýndur sem vilja fylgja sannfæringu sinni.  Aldrei fyrr hefur verið betra tækifæri til að það fólk sem vill virkilega breytingar vinni nú saman að því að koma saman stefnuskrá, sem ætti að vera auðvelt, og fara að vinna SAMEIGINLEGA AÐ ÞVÍ AÐ MYNDA HÓP SEM ÞORIR OG VILL TAKA Á SIG AÐ BJARGA ÞJÓÐINNI. Burt með flokkapólitík og inn með hugsjónir og kærleikan til lands og þjóðar.


Bloggfærslur 22. mars 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband