Hitt og þetta til umhugsunar.

ég var að leita í dag að fréttum þar sem Árni Páll Árnason viðskiptaráðherra var spurður um íslensku krónuna og hann sagði að hún væri handónýt og þyrfti að taka upp evru sem allra fyrst.  Fann reyndar ekki þetta viðtal, en það hefur dunið í vitum mínum síðan ég sá það.  Sá svo í fréttum í kvöld að þar var fjármálaráðherra spurður út í þessu ummæli ráðherrans, og að hann hefði ekki bara sagt þetta hér heldur í erlendum viðtölum.  Nú kann ég ekki alveg reglurnar um landráð, en ég er nokkuð viss um að þessi ummæli ráðherra eru ekkert minna en það.  Ég vil minna á að ráðherrar annara ríkja hafa verið látnir víkja fyrir að nota ríkiskortið sitt í smá matarinnkaupum, nýlega sagði ráðherra af sér í Þýskalandi fyrir að hafa notað sömu tækni og Hannes Hólmsteinn, hann missti líka doktorsnafnbót.  Í Ameríku var háttsettur maður látinn fjúka fyrir það eitt að bera blak af Manning sem er í haldi af afar sérkennilegum ástæðum, sem reyndar tengir USU beint við alþýðulýðveldið Kína og Kóreu og fleiri einræðisríki. 

Í því ljósi fer ég fram á það sem íslenskur ríkisborgari að Árni Páll Árnason segi nú þegar af sér ráðherradómi og biðji þjóð sína afsökunnar á því að hafa framið landráð og tekið afstöðu gegn mynt landsins.  Slíkt er ekki hægt að fyrirgefa, og ef hann gerir það ekki af sjálfsdáðum, fer ég fram á að hann verði látinn víkja fyrir að svíkja þjóð sína.  Önnur eins lágkúra hefur ekki sést lengi, og ég er reyndar afar hissa á að hafa ekki séð nein viðbrögð við þessu uppátæki ráðherrans fyrr en Sigmundur Davíð vakti máls á því.

Ég vil líka ræða um Júróvisjón lagið Aftur heim, Coming home, ég hafði að vísu vilja sjá annað lag vinna, þ.e. lagið með Jóhönnu, en ég verð að segja það að það kemur við hjartað í mér sá kærleikur sem þetta fólk sýnir hvert öðru, bæði vinir og fjölskylda Sjonna heitins.  Og það ætti að vera okkur öllum hvatning til að læra að kærleikurinn er sterkasta aflið í heiminum.  Það ætti að kenna okkur að við eigum að reyna að stilla saman strengi og finna sameiginlega lausn á okkar vandamálum, þ.e. sjálf en ekki að hlaupa upp og reyna að komast undir næsta konung eða keisara.  Þeir eru nefnilega allir berrassaðir þegar pellinum og purpuranum hefur verið svipt af þeim.  Ég ætla að halda með okkar lagi og sýna minn kærleika á þann hátt. 

67164_117421971657437_100001689037478_127823_2413294_n

Þessa skemmtilegu mynd fékk ég senda á facebook af einum skólafélaga mínum Ásgeiri Överbý.  Þarna erum við svo ung og saklaus, allavega ung Tounge

IMG_0529

Sigurjón Dagur er alveg til í að taka myndir á myndavélina hennar ömmu, þessa mynd tók hann af teikningu frá föður sínum. 

IMG_0530

Svo fékk ég heimsókn í dag af yndislegri frænku minni, sem er eiginlega næstum því dóttir mín, og litlu skottunum hennar.

IMG_0531

Þau eru alveg frábær og undu sér vel með allt dótið sem er í kúlu hjá "ömmu"LoL

IMG_0532

Alltaf eru þau jafn yndisleg þessi börn.Heart

IMG_0535

Svona brostu fyrir Íju frænkuLoLHeart En sú stutta er alveg ákveðin, hún minnir mig á Sólveigu Huldu frænku sína, sömu taktarnir og ákveðnin.

IMG_0537

Þetta gæti sem best verið Sólveig Hulda, en nei þetta er sko Auður Lilja

IMG_0538

Og maður situr í stiganum rétt sisona.

IMG_0541

Og svo fer maður aðeins yfir strikið.  Æ Æ Heart Þetta fór samt allt vel, og enginn meiddist.

IMG_0540

Svo þarf að hjálpast að að taka saman dótið í ömmukúlu. Takk elsku Sunna mín fyrir innlitið, það var svo gaman að fá ykkur í heimsókn. Heart

Og ég segi góða nótt úr rokinu og rigningunni hér á Ísó.


Bloggfærslur 14. mars 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband