Komin heim, síðustu dagarnir í Austurríki.

Já þá er ég komin heim í heiðardalinn.  Það var erfitt að vakna hálf fjögur að morgni, ég sem er búin að kúra frameftir eins og sætt er Cool Tengdasonurinn var svo elskulegur að skutla mér á flugvöllinn, ég dáist alltaf að olíuhreinsunarstöðinni þegar ég ek þangað og þakka mínum sæla fyrir að við vestfirðingar sluppum við þá mengun, bæði sjónmengun og lykt sem þessu fylgir.

En ég svaf af mér alla leiðina til Kaupmannahafnar.  Þar var stopp, um hríð, ég vildi ekki trufla systur mína í þessa skipti, og ákvað að eyða þessum degi í mínum eigin félagsskap.  Fyrst fór ég inn á glopetrotter og fékk mér pizzusneið og stóran bjór.  Svo þvældist ég dálítið um það er búið að breyta miklu þarna, ég var nefnilega búin að ákveða að koma við á Heresford og fá mér góða nautasteik.  Það tók mig smátíma að finna staðinn aftur.  En steikinn brást ekki. IMG_1146

Skál bræður og systur. 

En þetta var nú svona útúrdúr. 

Það eru nefnilega fleiri myndir frá Austurríki.

IMG_1047

Ömmusósa er góð líka hjá Trölla.  Púma langar líka að smakka.

IMG_1048

Á hvað ertu eiginlega að glápa???LoL

IMG_1057

Við vorum að fara á litlu jólin í skólanum.  Við áttum að mæta kl. hálf fjögur, fyrir hádegi var ungfrú Ásthildur bún að klæða sig og mála og gera alveg klára að fara í veislu.

IMG_1059

Svo vildi hún láta taka myndir.

IMG_1060

Hún er svo flott. Heart

IMG_1061

Og yndisleg.

IMG_1062

En loks var svo tímin komin að fara í veisluna.

IMG_1072

Veislan var haldin utandyra á skólalóðinni.  Það var ágætis veður en svo fór að rigna.

IMG_1075

Börnin skemmtu með söng og hljóðfæraslætti og upplestri, foreldrar stoltir að fylgjast með.

IMG_1076

Hér er kórinn.

IMG_1079

Hljóðfæraleikarar.

IMG_1080

Hanna Sól er í kórnum.

IMG_1081

Þetta var afar hátíðlegt.

IMG_1082

Jólalög leikin og sunginn.

IMG_1084

Búið að skreyta stóra tréð sem stendur á skólalóðinni.

IMG_1087

Svolítill galsi í börnunum eftir skemmtunina.

IMG_1088

Ásthildi var orðið dálitið kalt og langaði í heitt kakó. En slíkt var ekki á boðstólum en hægt var að kaupa barnaglögg, og svo fullorðins glöggHalo Hún fékk svo barnaglögg en amma fullorðins, og sumir voru orðnir bara nokkuð "glaðir" þarna á skólalóðinni, enda kostaði glöggið bara 2.5 evru.   Og ég er ekki að meina mig, ég fékk mér bara eitt glas. LoL

IMG_1089

Inni í skólanum var hægt að skoða og kaupa muni sem börnin hafa föndrað á aðventunni.

IMG_1091

Margt ansi fallegt og vel gert hjá krökkunum.

IMG_1093

Og auðvitað keyptu flestir foreldrar eitthvað fallegt.

IMG_1094

Þessi fallegu kertastandar kostuðu 3 evrur, þau eru sennilega gerð úr hengibjörk, börkurinn er svo hvítur og fallegur.  og svo þetta fína kunstverk.

IMG_1095

Hér má sjá jólakort og mýs með sælgæti í.

IMG_1096

Ætli svona skylti sjáist hér í skólum?  Hér er mikið reykt úti á götum og allstaðar.  Sá nokkrar konur á síðasta mánuði reykjandi með jólaglögg á markaðnum á Ráðhústorginu.  Ég verð að viðurkenna að ég varð rosalega hneyksluð, mig langaði að hrista svona manneskju til og hundskamma.

IMG_1097

Elgir gerðir úr sleifum.

IMG_1098

Mamma og pabbi skoða.

IMG_1101

Ásthildur búin að velja sér hlut.

IMG_1102

Og borgar sjálf.

IMG_1103

Komin tími til að fara heim.

IMG_1110

Amma og litli maðurinn.

IMG_1117

Mamma og litli maðurinn.

IMG_1118

Við pottana að gera sósu.

IMG_1119

Sósusmakkari númer eitt.

IMG_1121

Já í lagi er úrskurðurinnLoL

IMG_1133

Hér er svo búið að skreyta höllina. 

En næsta morgun er ég komin á leiðina heim, það er söknuður í hjartanu yfir að kveðja þessa litlu yndisleg fjölskyldu. 

Eigið góðan dag. Heart


Bloggfærslur 10. desember 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.9.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 2024191

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband