Gott hjá þér Ögmundur, nú er ég ánægð með þig.

Já hvernig væri það nú? Þetta er auðvitað hárrétt hjá Ögmundi sérstaklega þetta hérna:

Síðan væri verðugt rannsóknarefni að kanna ferðakostnað vegna ESB viðræðna, í stjórnsýslu, í  ráðuneytum, á Alþingi, í fjölmiðlum, þ.á.m. RÚV. Ríkisútvarpið hefur sagt A. Nú verður varla látið staðar numið? Eða hvað, Óðinn og Páll,“ spyr innanríkisráðherra.

Mér finnst þetta miklu fréttnæmara en ferð Ögmundar til Mexicó.  Svo ég bíð spennt eftir svari frá Rúv útvarpi allra landsmanna en svo titla forsvarsmenn stofnunarinnar ríkisútvarpið á góðum dögum.

Mig langar að vísu ekkert að vita um ferðir Páls Magnússonar eða Óðins Jónssonar á vegum ríkisútvarpsins, en fyrst þeir eru nú einusinni byrjaðir á löngu tímabærri rannsóknarblaðamennsku, þá er ég sammála Ögmundi í því að það á ekki að láta staðar numið hér.

Ég hef sem sé mestan áhuga á Brusselferðum ráðuneyta og stofnana ríkisins, og sérstaklega kostnaði Össurar í því sambandi, hef svona lúmskan grun um að sú upphæð sé all verulega mikið hærri en þessi Mexicoferð Ögmundar.

Var annars ekki meininginn hjá ráðamönnum að hafa allt uppi á borðum?  Eða var það ofan í skúffum?

Koma svo Ögmundur nú vil ég að þú beitir þér við að fá þessar upplýsingar.  Næst verður örugglega tekið á ferðum Landbúnaðarráðherra, því ESBkórinn í Samfylkingunni vill helst losa sig við þessa tvo, sem standa í lappirnar gegn óráðssíunni sem þessi umsókn er komin í, og nú þegar byrjað að molna utanaf og innanúr. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981[1]


mbl.is RÚV gefi skýrslu um ferðir starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. október 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband