30.1.2011 | 10:04
Fréttir um daglegt líf frá Austurríki
Sunnudagur hér er sól og stilla en frost. Við erum hér stelpurnar mínar og ég, Bára mín að læra einhversstaðar og bóndinn að hvíla sig. Hér komu gestir í gærkveldi, tveir menn frá Þýskalandi með hesta sem verða í hesthúsinu. 'Eg þarf að líta á þá og vona að þeir taki leiðsögn eins og hin hrossinn.
Annars líður mér mjög vel, er í góðu jafnvægi og ljósið inn í mér hefur kviknað aftur sem er gott, því aðeins þannig getur maður látið sé líða vel. Ég veit eiginlega ekki af hverju, sennilega eru það margir þættir sem spila inn í. Fyrst að kúvenda lífinu þannig að ákveða að hætta í vinnunni sem ég hef verið í yfir 30 ár. Síðan að fara í annað umhverfi og þurfa að takast á við gjörbreyttar aðstæður, eins og að hugsa um barnabörnin mín, hestana, kisurnar og hundinn. Eiga tíma fyrir sjálfa mig þess á milli, og síðan að fá leiðsögn um hvernig ég get gert vel við minn gamla skrokk og hjálpað sjálfri mér til að takast á við þau innanmein sem alltaf fylgja því að eldast. Ég er ákveðín í að halda áfram þessu striki og sjá hvert það leiðir mig.
Hér pússla sú minnsta og stærsta.
Það er gaman og sú stutta er ótrúlega dugleg við pússlið. Hanna Sól er meira fyrir að reyna við spil, bæði í tölvu og með spilum, ótrúlega lunkinn stelpan sú.
Poul er hjálplegur hann kemur frá ótrúlega stórri fjölskyldu í Köln, þau eru 8 systkinin og öll spila þau á hljóðfæri, hann segir að stundum hafi nágrannar kvartað yfir hávaða þegar þau voru öll að spila hvort á sitt hljóðfærið, svo hlær hann að öllu saman.
Tvær kisur, þau Carlos og Lille fee eru örugglega mað þak yfir höfuðið.
Svona var veðrið í gær og er líka í dag. Við köllum þetta gluggaveður heima.
Við dunduðum okkur í gær þrjár saman. Mamma að lesa undir próf og pabbi og Poul upp í Gras að járna hesta. Efnið sem notað er er leir og kattamatur
Við fórum til að gefa Kanínunum í næsta húsi, við geymum afganga af ávöxtum og grænmeti, þær voru mjög ánægðar með að fá matinn frá stelpunum í gær.
Hér koma kanínurnar og eru alsælar með matinn.
Hér er einn kanínuunginn.
En við vorum á leið í bæinn að kaupa inn fyrir helgina. Fyrst fórum við í Hoffer til að kaupa í matinn, bæðí fyrir mannfólkið, ketti og hund. Það er svona einskonar Bónus í Mattersburg.
Svo fórum við í OBI sem er einskonar Bauhaus með garðyrkjudeild og allskonar vörum.
Það keyptum við eldivið í kamínuna, sem er notuð til að kynda húsið til að spara olíu eða gas, sem er mjög dýrt hér.
Við keyptum líka rós fyrir mömmuna og blómafræ, við stóðumst ekki mátið.
Hér eru svo nýju hestarnir, annar heitir Sleipnir, man ekki hvað hinn heitir, vona bara að þeir séu vanir við skipanir. Það kemur í ljós.
Þeir verða auvitað dálítið ráðvilltir fyrst, nýkomnir úr löngu ferðalagi, en ég hlakka til að kynnast þeim.
Bjarki með drengjunum sem fluttu hrossin hingað frá Köln. Þeir gistu svo hér í nótt.
Og Ásthildur Cesil hélt tónleika, hún er frábær.
Það var samt öruggara að sitja í fanginu á pabba, þegar svona ókunnir menn voru viðstaddir.
Svo fengu menn sér bjór og smá viskýlögg eins og gengur.
Og hér er prinsessa og stóra systir að hjálpa til.
Þeir gerðu sér gott af pizzunum sem ég bjó til í gær, ég gerði þrjár stórar og það kom sér vel í gær, enda voru þær gjörsamlega kláraðar.
Hér heldur svo Hanna Sól tónleika, en hún er að læra á píanó í skólanum, og er ansi dugleg.
Gaman er á góðri stund, gleði lífs að njóta.
En nú er sunnudagur og sól inni og sól úti. Ég er ákveðin í að kíkja í hesthúsið í dag og heilsa upp á hrossin.
Sendi ykkur öllum góðar kveðjur héðan frá Austurríki. Ef það er eitthvað sem ég sakna, fyrir utan Ella minn og Úlf þá er það þorramatur, ég fæ vatn í munninn að hugsa um súrsaða hrútspunga, svið hangikjöt og bara allt sem heitir þorramatur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Bloggfærslur 30. janúar 2011
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar