Hugleiðingar um lífið úr litlu þorpi og skúlptúrsnjóamyndir.

Einu sinni enn er komin föstudagur.   Hér líður tímin ótrúlega hratt, en samt svo friðsællega.  Hér í þorpinu og sérstaklega upp í brekkunni sem við búum er maður farin að heilsa öllum og fólk ræðir sín á milli um þessa íslendinga sem eru hér.

Ég fór ekki í hesthúsið í gær, vegna þess að það var ekki nóg bensín á bílnum, svo ég fór þess í stað í göngutúr með Trölla.  Í göngutúrnum hitti ég franska konu sem býr hér.  Hún vildi heilmikið spjalla.  Bjó áður í Vín og er sjálfs sín herra stundar þýðingar úr frönsku í þýsku eða öfugt.  Hún hefur líka verið með námskeið. Og eftir að hún flutti hingað, fór hún og lærði um villiplönturnar sem hér vaxa.  Svo heldur hún námskeið um notkun þeirra.

Þessi ágæta kona bauð mér í heimsókn ef ég mætti vera að, hún heitir Cloudine Andrea.  Hún ætlar að halda fyrirlestur um plönturnar í leikskólanum og skólanum hennar Hönnu Sólar, það á nú við þær.

Já þú ert íslenska konan sem ert hérna fyrir neðan sagði hún, ég hef heyrt talað um það.  Já eru ekki litlu þorpin allstaðar eins.

En nú er kominn föstudagur aftur, ég er búin að fara í hesthúsið.  Hrossin eru farin að þekkja mig og jafnvel fagna mér þegar ég kem, reka til mín snoppuna og bíða svo eftir að komi að þeim. 'Eg er farin að kemba þeim fyrst og tala við þau, ég er að prófa að mantra á þau, meðan ég kembi þeim, mantra á hvert hross fyrir sig eftir því hvað er hjá þeim sem betur má fara.  Birta með lendarnar sínar, Strútur með orkuleysi, Hnota þarf að fá meiri ró, Vigdís þarf að komast yfir hræðslu við rafmagnsgirðingarnar sem umlykja þær og Björt þarf ég að hæna að mér og vera vinur.  Þetta er allt að koma.  gaman að prófa hvort svona virkar í alvöru. 

Nú sit ég heima búin að fara í göngutúr með Trölla og sækja stelpurnar.  Ég horfi út um gluggan og það er hvítt um allt, mystur yfir sem er sennilega hitabreytingar, því nú er frostlaust, en hrím á trjánum, sem gerir þau falleg eins og skúlptúra.  Allt er rólegt og þögult úti, því hér eru ekki margir á ferli.

IMG_9114

Prinsessa, maríubjalla og ballerína, ekki slæmur félagsskapur þar. 

IMG_9120

Þetta eru sennilega álfkonur sem hafa komið inn úr kuldanum.

IMG_9117

Og svo þegar mamma kemur heim, þá er margt að gera.  Bára mín er í erfiðu prófi í dag, hún var líka í prófi í gær og náði því, hún hefur náð öllum þeim prófum sem hún hefur farið í núna, síðasta prófið verður svo á mánudaginn.  Það gengur allt vel hjá henni.

IMG_9123

 

Við reynum að láta tíman líða á meðan, hér eru klippimyndir sem fást í Spar og Billa, þær hafa gaman af að raða þessu saman og líma á blöð.  Þær hafa mjög gaman af að föndra.

IMG_9125

Þessi mynd var tekin í gær, þá féll lóðrétt snjókorn í rólegheitum niður af himninum og allt var svo friðsælt.

IMG_9128

Kisurnar eru þeim óendanleg uppspretta gleði og umhyggju.

IMG_9129

Enda eru þessar kisur skemmtilegar og góðar.  Börn hafa afskapleg gott af því að alast upp með dýrum, hvort sem það eru hundar, kettir, hestar eða bara hvaða dýr sem er. Þau læra að taka tillit til annara um leið og þau þurfa að læra að umgangast dýrin sín.

IMG_9130

Svona lítur staðurinn út í dag, trén eru hrímuð og mynda fallega skúlptúra.

IMG_9133

Held að þetta sé trollhettan, skemmtilegur runni.

IMG_9135

Hér er svo skógurinn, dularfullur og mystik yfir öllu.

IMG_9136

Já það er töluverður snjór á Evrópskan mælikvarða.

IMG_9139

Vetrarmyndir.

IMG_9140

Hér er ekki skylda að nota dagljós, og bílar því ekki útbúnir með sjálfkveikiútbúnaði.

Ég gleymi því alloft að kveikja á ljósunum, er á hvítum bíl og sennilega ekki gott að koma auga á mig í mystrinu.  En svona er það þegar maður venst á eitthvað, þá er erfitt að brjóta það upp.

IMG_9144

Ég er afskaplega hrifin af þessu útsýni.

IMG_9145

IMG_9147

Greinar svigna undan snjó og ísingu.

IMG_9148

Smá stund mátti greina þorpið hinumeginn við dalinn, en nú sést ekki neitt  nema næsta hús.

IMG_9150

Hér er þetta fallega fjall sem eir eins og risahús.  IMG_9151

Já þetta er fallegt.

IMG_9152

Hæðirnar er hér allstaðar.

IMG_9153

Höllinn alltaf jafn flott.

IMG_9154

Ég er viss um að hér býr einhver tröllkarl, hann lætur samt ekkert á sér kræla ennþá allavega.

En með þessu kveðjum við héðan frá Forchtenstein og vonum að þið eigið góðan dag heima á fróni.  Ég sakna reyndar mest þorramatsins.  Hann verður að bíða enn um sinn.

Eigið góðan dag.Heart

 

 


Bloggfærslur 28. janúar 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband