22.1.2011 | 22:32
Myndir og aðeins frá sjálfri mér.
Ég var bún að skrifa heilmikið og setja inn myndir en svo hvarf það allt í óminni himingeimsins, svo ég þarf að byrja upp á nýtt.
Já skjótt svipast verður í lofti og nú ríkir vetrarkuldi enn á ný hér. Dæmigerðar íslenskar umhleypingar.
Hér erum við í miðbæ Forthenstein beint á móti skólanum og leikskólanum. Við vorum í seinasta lagi, því bíllinn fer ekki í gang og ég þurfti að ýta honum á götuna og láta hann svo renna í gang, sem er ekki mikið mál í þessum brekkum hér.
Hér erum við svo komið í hesthúsið, og sólin komin fram. Það gekk allt vel með hrossin, þau eru farin að þekkja mig og flest ánægð með prógrammið og vilja vinna með mér. Þá er alltaf einhver með óþekkt, en ég læt þau ekki komast upp með neitt múður. Það þarf að taka allt svona föstum tökum og það kann ég með alla mína reynslu.
Skuggamynd af mér og hrossin búin með sitt og við getum öll verið sátt við morguninn.
Vonandi hafa ekki orðið miklar kalskemmdir á ökrum, en auðvitað eru flestar framleiðsluvörurnar ekki komnar í moldina. Svona er bara lífið.
Hér er akur vendilega stúkaður af með rafmagnsgirðingu held að þetta sé jarðaberja akur.
Dularfull trjágöng og vegur í gegn.
Í gær komu svo góðir vinir okkar frá þorpinu Maria Ellend. Hér má sjá Hönnu Sól, Miriam, Ásthildi kettina og Goldie og Trölla
Heidi og Samúel eru Búddatrúar, og yndislegar manneskjur. Þau komu m.a. til að mantra með Báru minni og konu sem býr hér í þorpinu. En það er mikil aukning á Búddatrú hér í kring.
Hér er Yoko komin til að eiga þessa stund með fólkinu, og ég ætla mér að taka þátt líka.
Hér erum Heidi, Hanna Sól og Miriam dóttir þeirra Heidi og Samúels.
Miriam, Goldie og Púbbsi góð saman, allir geta nefnilega orðið vinir.
Og Ásthildur hélt konsert.
Hún gerði það með svona Poul Mc Cartney stæl, hún verður einhverntíman góð.
En við möntruðum í tuttugu mínútur, ég segi ekki að ég hafi fengið mikið út úr því, en ég ætla samt að halda þessu áfram orðin sem fólkið segir er svona;: Nam Yoho Renge Kyo, og hefur mikla merkingu um duld lótusblómsins og fæðingu og dauða rétt eins og hringur Ásatrúarinnar.
Það má líka segja að hluta til hafi örlög mín ráðist hér á síðasta ári, þegar ég var að velta fyrir mér framtíðinni, og Samúel sagði mér að hann væri að hætta í vinnunni sinni sem aðstoðaraðili aldraðs og vangefins fólk, þar sem hann bæði var þeim til halds og trausts og sótti fyrir þau allar nauðynjar. Hann var að fara að læra inn á svið sem ég kann ekki að nefna en er að vinna með einstaklingum og þeirra undirmeðvitund. Það hafði verið ákveðið af dóttur minni og honum að hann tæki mig í tíma hér við þessa heimsókn.
Ég er alltaf til í svoleiðis. Og ég verð að segja að ég varð fyrir stórkostlegri upplifun. En það er auðvitað bara fyrir mig. En hann sagð mér að það sem kæmi fram væri eingöngu samtal milli míns innra sjálfs og mín, hann væri eingöngu milligöngumaður sem kæmi skilaboðunum á framfæri. Og það sem okkur fór á milli var frábær og mér mikil upplifun. Hann kom mér á óvart, þar sem þrátt fyrir mína næmni og skynjanir er ég alltaf jafn skeptisk, En svo sannarlega átti ég þarna upplifelsi sem ég mun ekki gleyma heldur geyma í huga mér og vinna áfram með. Og allt sem kom þarna fram voru hlutir sem ég í raun vissi og þegar hann sagði mér þá, fann ég að ég er á réttri leið. Það er yndislegt þegar maður kemst á flug í andlegum málum sem tengjast manns innri vitund.
Ég finn að það breyttist eitthvað, og nú þarf ég bara að vinna við sjálfa mig, til að gera það sem þarf fyrir mig sjálfa. Ég hef fengið leiðsögn, reyndar frá sjálfri mér gegnum túlk, og nú er bara að fara að bretta upp ermar, ég er reyndar aðeins byrjuð með því sem ég er að gera í dag, hætta í vinnunni, fara sem aupair til dóttur minnar og ekki bara það, heldur vinna með hrossunum, sem hafa gert mér gott líka, því ekkert er betra fyrir brotna sál en umgangast dýr og finna sjálfan sig í því að komast inn í hugarheim þeirra og finna samsömun og vilja til að vinna með manni. Það er yndisleg tilfinning, þegar maður segir þeim bara með einu orði að brokka og þau hlýða, eða segja þeim að galoppa og þau stökkva eða bara segja á ákveðin hátt sto og þau stoppa. Og svo finnur maður að dýrin vilja virkileg og hafa jafn gaman af þessu og ég.
Já elskurnar ég segi bara, við erum miklu sterkari en við höldum. Ef við bara hlustum á náttúruna og það sem er í kring um okkur, og förum þá leið sem okkar æðri máttur leiðbeinir okkur til, þá getur ekkert klikkað.
Eigið góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.1.2011 | 00:08
Myndir og svoleiðis.
Veðrið hér minnir óneitanlega á umhleypingarnar heima, hér er búið að vera hlýtt og vorveður, en austurríkismenn vantrúaðir á að vorið sé komið. Enda kom á daginn að nú hefur kólnað ískyggilega og í morgun var allt hvítt af snjó.
En ég lét mig hafa það í gær að aka svolítið um sveitirnar og taka myndir, það var frekar erfitt, því ég þurfti bæðí að hafa augun á landslaginu og veginum. Og svo vera tilbúin að taka snöggar ákvarðanir um að stöðva ökutækið og stilla sér upp.
En hér má sjá ömgurnar vera að gera heimavinnuna, Hanna Sól með skákverkefni og amman að ráða krossgátur, ég fer sjaldan eitthvað í ferðalag án þess að hafa slíkar meðferðis.
Það er galsi í þessum litlu skvísum mínum
Og margt sér til gamans gert
Fallega ömmustelpan mín.
Mæðgurnar við matarborðið, mamma þurfti að aðstoða Hönnu Sól með skákdæmin.
Svo þarf að koma þeim í skólan og leikskólan á morgnana, þá er gott að hjálpast að.
:Þessar myndir eru teknar í fyrradag. Það var bjart og fallegt veður, en afar kalt og frost.
Hér erum við komin í sveitina við hesthúsin, eins og sjá má er grasið farið að grænka og akrarnir tilbúninir til útplöntunnar.
Sumt komið lengra en annað.
Sem sagt bara beðið eftir vorinu.
Hér verður örugglega maís.
Mér finnst fólk utan Íslands ekki vera jafnmiklir fagurkerar og við þegar kemur að raflínum, þær eru miklar og skemmandi fyrir útsýnið, en það er víða um heim.
Vindmyllurnar eru líka víða, þær eru auðvitað náttúrlega hagkvæm auðlind.
Hér er eitt þorpið, svona kúra þau inn á milli akranna. En þau eru saman í klösum með einni yfirstjórn, ég held að Mattersburg sé aðalþorpið í þessum klasa hér.
Hér sjást vindmyllurnar betur.
Ég þarf að fara yfir lestarteina á leiðinni í hesthúsið, Christína segir mér að það séu mörg dauðsföll á ári þegar fólk fer yfir á rauðu eða gulu, og tekur sjensinn. Samt sem áður er ekki farið í að fjárfesta í slám sem opna og loka.
Austurríkismenn eru í sumum málum á eftir okkur, þeir til dæmis reykja eins og strompar. Í umferðinni eru þeir ekkert betri en við, aka yfir löglegum hraða og jafnvel svína á mann út af hliðarbraut.
En þeir eru afskaplega kurteisir og bjóða alltaf góðan dag við þá sem þeir hitta, ég er líka farin að þekkja sumar konurnar og karlana sem koma með börnin á leikskólann á sama tíma og ég. Í sveitinni eru allir miklu vingjarnlegri en í Vín, þar sem enginn horfir í áttina til þín, nema þú sért með hund. Þú mátt líka fara með hunda inn í kaffihús, sem okkur finnst alveg út úr kú á Íslandi.
Þessi húsasamstæða minnir mig alltaf á hringhúsið í Garðabænum
Svona sólarmynd ala Ísafjörður.
Hér má sjá eitt þorpið kúra við hlið akranna.
Gaman að þessum litlu þorpum þar sem búa svona fimm þúsund manns eða svo. Friðsæl og hlý.
Ég held að ég hafi örugglega vakið eftirtekt heimamanna þegar ég stoppaði bílinn á hinum ýmsu stöðum og dró fram myndavélina.
Og hvert erum við nú komin? Jú til Marz hehe
En ég hef aldrei farið þessa leið og varð sífellt að taka eldsnöggar ákvarðanir, þegar ég sá eitthvað sem var interesant.
En svo er komið kvöld og litlu prakkararnir mínir þurfa að bursta tennur og fara að sofa því hér vakna allri snemma.
En á morgun ætla ég að segja ykkur frá mjög áhugaverðum degin sem var í dag. Núna held ég að ég farið að halla mér. Eigið góða nótt elskurnar. Með kveðju frá Austurríki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bloggfærslur 22. janúar 2011
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar