Enn um Austurríki.

Hér er klukkann 13.32, ég er búin í hesthúsinu, stelpurnar eru á leikskólanum og skólanum.  Ég horfi hér yfir byggðina, það er frekar hlýtt að mínu mati, en þó rýs reykur upp úr öllum strompum hér.  Menn kynda húsin sín mest með timbri.  Hér er gasið búið fyrir nokkrum dögum og gasmaðurinn lætur ekki sjá sig, veit ekki hvaða kæruleysi það er, þau ætla að skipta um fyrirtæki, til að fá betri þjónustu.  En við höfum bjargað þessu við með að kynda ofninn í kjallaranum með timbri á kvöldin og svo er hér varmaskiptir sem er þó aðallega notaður á veturna. 

Ég horfi yfir hæðirnar skógi vaxnar, þar vaxa margar tegundir af trjám, víða standa upp úr laufskóginum greintré og furur, sem setja grænan svip á skógin hér og þar.  En ég er viss um að þegar lauftrén fara að bruma verður fallegt hér um að litast.  Hér er mikið af aldintrjám, eplum, kirsuberjum, plómum, og mörgum fleirum.  Svo eru hér víða bæðí beykitré, eikartré, birki reynir og margar fleiri tegundir.

Hér upp á hæðinni er ekki mikil umferð, vegurinn liggur eins og langur mjór ormur í hlykkjum upp hæðina með húsin á báðar hliðar, það er 30 km hraði, því allt er svo þröngt og sumstaðar erfitt að mætast.  Mér líkar þetta samt vel.

Hestarnir eru farnir að venjast mér og fara prógrammið sitt rétt og vel flestir, stundum eru þeir þó latari en áðúr, eða duglegri, og þá hrósa ég þeim og gef þeim brauð.  Þau eru eins ólík og þau eru mörg. 

Bjarki er að fá fleiri hross að heiman, þau eru fyrir utan Köln, og fara þeir hann og Peter þjóðverjinn sem býr hér og gengur í járningaskólann með honun að sækja hrossin. 

Bára mín er í skólanum í dag, þau teymið hennar fá að skera upp í dag, og svo fara þau yfir prófið á morgun, það er fyrsta prófið af fimm lokaprófum sem hún þarf að þreyta núna í janúar, sem er auðvitað ástæðan fyrir því að ég er hér til að hjálpa til með börn og dýr, og reyna að vera til aðstoðar, ekki minnst er að elda staðgóðan mat. Ég er búin að vera tvisvar með grjónagraut og hann er svo sannarlega algjört góðgæti á þessu heimili, meira að segja þjóðverjinn og austurríkismaðurinn segja að hann sé hið mesta lostæti.  

Ég keypti áðan nautakjöt sem var tilgreynt sem gúllaskjöt, ég ætla að búa til gúllassúpu í kvöld. 

 

Í fyrri nótt skein þessi elska svo inn um gluggann minn að ég vaknaði og lét mig hafa það að fara fram úr til að taka af honum mynd.

IMG_8875

 

Svaka flottur máni gamli.

IMG_8876

 

Stelpurnar mínar. 

Sú stærsta og sú minnsta.

IMG_8878

Þær eru að skemmta sér vel.

IMG_8880

Hér má sjá hæðirnar sem ég er að tala um.  Og svo hátt niður, þessi hún eru hinu meginn við mig.

IMG_8881

 

IMG_8882

Þessa tók ég núna rétt áðan.  Í dag er dálítill rigningarúði, en ef verðrið verður betra á morgun ætla ég að taka myndavélina með mér í hesthúsin og taka nokkrar myndir af ökrunum, kring um Mattersburg.

En ég hugsa að ég ætli bara að leggja mig smá stund, áður en ég sæki stelpurnar mínar.  En þær þurfa að sækjast kl. 4.  svo ég hef nægan tíma.

Eigið góðan dag elskurnar. 

Svona til gaman af því að ég er með innkaupalistan hérna hjá mér.

Þrjár paprikur í bréfi1 evra

brauð 1/2 en frekar stórt 1.60

gúrka  0.99

goudaostur 700 gr 5.49

Kiwi 1 kg. 1.29

gulrætur 1 kg. 1.39

nautaflesk tæpt kíló 6.72

Heyrumst. Smile


Bloggfærslur 19. janúar 2011

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband