13.1.2011 | 13:57
Myndir hitt og þetta.
Það gengur vel með hestana, þetta er bara gaman og gott fyrir mig að eiga við eitthvað svona alveg öðruvísi en ég er vön.. Við vorum með hesta í mörg ár þegar við vorum yngri, þaðan fékk dóttir mín bakteríuna.
Hér er Birta hún er vön og á að fara á sýningu núna í vor.
Eins og sjá má er Trölli voða duglegur að hjálpa mér og halda þeim við efnið.
Þá er það karldýrið í hópnum, Strútur, hann er ekki eins léttur á fæti og merarnar. En fallegt hross.
Hann er eins og karlarnir reyna að gera sér allt sem best. Án þess að þurfa að hafa mikið fyrir því.
Hér er held ég Hnota, hún er ung en afar nett og snögg.
Með fallega fótalyftingu.
Hér er Vígdís. Hún er afskaplega fallega byggð og skemmtilegur karakter.
Hér er svo Björt hún er líka skemmtileg. Ég var búin að gleyma hvað það hjálpar sálinni að vera innan um svona yndisleg dýr. Gott fyrir sálina mína.
Björt falleg, maður er bara eins og alvöru pró
Svo er gott að setjast niður eftir velheppnaða vinnu og fá sér í gogginn.
Fallega stelpan mín.
Snjórinn er farin hérna og fínt veður dag eftir dag, en börnin á leikskólanum eru ekki látin fara út að leika sér, því foreldrarnir vilja ekki fá þau skítug heim. Svo litla krýlið mitt verður að vera inni allan daginn, svo fer hún út í garð heima hjá sér, klifrar í trjánum við skólann foreldrum til hrellingar og fær að leika sér smá í leiktækjunum þegar amma sækir hana.
Hér er mamma að skipta um umbúðir á Trölla hann tábrotnaði nefnilega um daginn þegar hann kom of nálægt einni merinni og hún sté ofan á hann.
Það er svo ósköp notalegt að horfa á eina mynd eða svo fyrir matinn.
Þær eru svo glaðar þessar elskur.
Á morgnana aftur á móti vöknum við kl. 6 og þá þarf að spila, borða morgunmat og klæða sig og greiða. Þetta er nýjasta uppáhaldið í spilamennskunni heitir Memory, en svo er Svarti Pétur líka alveg brillians.
Hér eru kostgangararnir og húsbóndinn, þetta eru kraftalegir járningamenn og nemar líka, einn frá Íslandi, annar frá Þýskalandi og sá þriðji frá Austurríki.
Þessi eru ekki járningamenn ekki heldur járnsmiðir, heldur heimiliskettirnir Carlos og Lille fee.
Og hér er prílað í skólanum.
Svo rennir maður sér niður, þetta virðist vera vinsælt tæki ef marka má þá örfáu krakka sem mömmurnar leyfa að leika sér eftir leikskólatímann.
Og klifrað í trjám.
Hér hangir letidýrið, eins og í sögunni um Dóru. En börn hér virðast vera ofvernduð, mikið dúðuð og mega ekki klifra eða leika sér nema í barnatækjum. Þá koma mömmurnar hlaupandi og taka þau niður eins og einn ætlaði að elta Ásthildi upp í tréð en fékk ekki. Mér er sagt að þau séu oft veik, mömmurnar eru mjög oft heimavinnandi og eru mest í því að ala börnin upp. Ef til vill vantar hingað feminista til að kenna þeim svolítið sjálfstæði.
Ein vinkona kom heim með Hönnu Sól eftir skólann, hér eru þær að vinna heimavinnuna, það eru tvær þrjár blaðsíður af reikningi, tvær eða fleir síður til að lesa, svo þarf að læra skák, en það er aukalega. Mikill heimalærdómur fyrir 6 ára barn. En yfirleitt lærir hún á skóladagheimilinu þar sem hún er til kl. fjögur á daginn.
Þetta er Lara.
Vinur Ásthildur kom svo líka í heimsókn Dini eða hvernig sem það er skrifað. Þau léku sér vel saman.
Það endað með að þau voru orðin sex krakkarnir í húsinu Því nágrannarnir komu líka þau Jasmin og Daníel. Ég fór svo í gönguferð með stelpurnar.
Eins og sjá má er ekki langt í vorið hérna.
H'er erum við komnar út í skóg.
Lara klöngraðist með þennan stein alla gönguferðina, hún er hrifin af steinum, hér eru hún og Jasmin að hreinsa steininn. Hér var eikarskógur, en mennirnir hjuggu hann niður, og upp óx beykiskógur, en nú má sjá merki um að eikin er að koma upp aftur, svo sennilega mun hún eyða beykinu eftir 20 ár eða svo, munurinn á þessum tveim trjátegundum er að beykið er svo ljóst og gefur birtu niður í botnin, það gerir eikin hins vegar ekki, það væri því synd ef allar alpafjólurnar og prímúlurnar myndu hverfa, og svo berin, hrútaber, jarðarber og brómber og bláber.
Hér var Trölli að grafa og þær skoða hvað varð þess valdandi, þarf reyndar ekki, því hann er alveg óður að grafa ef hann fær færi á því.
Vona að þið njótið myndanna. Eigið góðan dag. kveðja frá Austurríki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 13. janúar 2011
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar