10.1.2011 | 22:40
Smá saga um aupair í Austurríki.
Jæja þá er fyrsta degi lokið sem aupair í Austurríki. Nú liggur ljóst fyrir í hverju það felst. Ég vakna kl. hálf sex þ.e. á íslenskum tíma hálf fjögur með litlu skvísunum mínum, það þarf að vekja þær klæða og gefa að borða og koma þeim í skólann. Já sagði dóttir mín, svo förum við út í hesthús.... Ha sagði ég, förum við út í hesthús??? já, það er best að fara beint frá skólanum út í hesthús. Eins gott að hún sagði það það hafði einhvernveginn farið fram hjá mér að ég ætti að fara þangað
Fyrst að fara niður allar bröttu brekkurnar sem ég hafði óttast svo mjög, það var reyndar allt í lagi með þær enda er ég vanur bílstjóri og vön að aka í hálku, sem reyndar var ekki staðreyndin í morgun. Svo var stelpunum skilað í skóla og leikskóla.
Svo lá leið mín út í hesthús þar sem þarf að þjálfa fimm hross, þ.e. láta þau brokka og valhoppa í skemmu, gefa þeim brauð og koma út í gerði.
Svo er að koma heim, ef tími er til kíkja á bloggið og svo þarf að sækja litlu skvísuna mína sem vill helst ekki fara í leikskólann svona eftir jólafríið. Ekki gott að komast á netið eftir það, því hún þarf að horfa á DDDDóru eða eitthvert annað myndband Svo þarf að sækja skóladömuna um fjögurleytið. 'Eg er samt ekki að kvarta því mér finnst þetta frábært. Ætlaði ég ekki að breyta algjörlega til???
Hér eru komnir tveir kostgangangara, einn þýskur og annar austurrískur sem eru í skólanum með Bjarka, svo það þarf að sýna vissa útsjónarsemi við eldamennskuna. En ég er sem betur fer vön því síðan í árdaga þegar við Elli minn vorum að byrja að búa með ekkert milli handa.
Það var dálítið hrollvekjandi í morgun að þurfa að byrja á að aka bílnum niður þessar rosabrekkur, en dóttir mín var alveg ákveðin mamma þú ekur..... ókey hugsaði ég þetta er nú bara hérna niður stóru brekkuna og leikskólinn og skólinn bara rétt fyrir neðan. Svo þegar við höfðum skilað stelpunum okkar, sá ég mér til hryllings að dóttir mín gekk einbeittum skrefum beint á farþegasætið... á ég að aka??? alla leið út í hesthús... spurði ég og vonaði að hún hefði bara gleymt sér smá.... Já mamma þú ekur.
Þar fór það, ókey ég vildi ekki vera chicken og ákvað að láta sem ekkert væri, ég er auðvitað vön að aka allskonar bílum, en við þurftum að aka gegnum Mattersburg
Mér tókst þetta þokkalega, nema dóttir mín ætlaði að deyja úr hlátri þegar ég var komin í fjórða gír, en pústið er bilað á bílnum, svo það er erfitt að hlustá á vélina.... Hún ætlaði að benda mér vinsamlegast á að ég væri í fjórða gír á 50 km. hraða, og ég setti hann umsvifalaust í fimmta gír
Dóttir mín dó hreinlega úr hlátri. En það er nefnilega þannig að maður þarf smá tíma til að þekkja bíl og sér í lagi ef hann er ekki með hljóðkút.
Við komumst svo klakklaust út í hesthúsið, og svo var byrjað á Birtu fyrsta hrossinu, ég náttúrlega búin að gleyma öllu um hesta og beisli og þvíumlíkt. Vonaði svona innst inni að við ætluðum bara að þjálfa þetta eina hross
En annað kom á daginn, næst var það Strútur hann er með háls eins og strútur, karlinn í þessu hrossasamfélagi, hann var þungur á bárunni, en flottur samt. Ég hugsaði með mér, af því dóttir mín sagðí mér að hin væru tryppin að sennileg myndi ég sleppa við að láta þau hlaupa. En nei mér varð ljóst að hér voru enginn undarbrögð, ég þyrfti að þjálfa öll fimm hrossin, láta þau brokka og stökkva fimmtíu hringi og halda þeim við efnið. Allt var farið að hringsnúast í hausnum á mér, eftir hross númer tvö, en só be it, ekki ætlaði ég að gefast upp.
Dóttir mín ætlar að koma með mér aftur á morgun og ég lofa að taka myndavélina með og sýna ykkur hvernig ég tek þetta með Western style
Ég get svo svarið það, mín er komin á fullt í ævintýri sem ég veit ekki hvernig endar, en er það ekki bara amen á eftir efninu??? Held það bara. Eg er allavega á lífi og að takast á við eitthvað annað en heima hjá mér. Við höfum sennilega öll gott af að rífa okkur upp á rassinum og treysta á guð og lukkuna, lifa er það ekki sem þetta allt snýst um?
Eigið gott kvöld, það er komin tími á mig enda klukkan orðin margt hér í Austurríki. Og allir sofnaðir nema ér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
10.1.2011 | 15:58
Jón Gnarr - ein Narr?
Jamm í Austurríki er gefið út blað sérstaklega fyrir atvinnulausa, þeir selja svo blaðið og fá hluta af innkomunni, í morgun þegar við dóttir mín fórum í SparO stóð ungur laglegur dökkur og afar vingjarlegur maður fyrir utan verslunina og vildi selja okkur eintak. Og jú þegar við skoðum blaðið nánar kom í ljós að Borgarstjórinn okkar grínaktugi var á flennimynd á forsíðunni með hundinn sinn væntanlega. Ég ætla inn í blaðinu er svo grein um Jón og þá nýjung sem verið er að gera á Íslandi með nýja pólitík. Ég ætla að skanna þessar myndir og inntakið í greininni og setja hér inn, ekki á morgun heldur hinn.
Þetta var afskaplega skemmtileg uppákoma. En þetta sem er heitið á blogginu Stendur þar;
Die Welt schaut nach Reykjavík. Jón Gnarr, ein Narr?
Svona í framhaldi er ég ekki frá því að hundurinn líkist svolítið Óttari Proppé
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 10. janúar 2011
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar