Guðmundína Sigurfljóð Júlíusdóttir Horn, blessuð sé minning þín.

Í gær var jarðsett elskuleg frænka mín Guðmundína Sigurfljóð Júlíusdóttir Horn.  Mumma frænka eins og við kölluðum hana, var föðursystir mín.  Fædd 1915 á Atlastöðum í Fljótavík.  Hún dó 9 apríl 2010, í Bandaríkjunum.  Hennar hinsta ósk var að fá að liggja í íslenskri mold hjá föður sínum og móður, og litla bróður mínum Júlíusi, sem dó aðeins 7 mánaða gamall.

Mumma fór frá Fljótavík 14 ára gömul í vist á Ísafirði, en svo gerðist með flestar ungu stúlkurnar í sveitinni, það voru hefðarkonur hér sem gjarnan vildu fá duglegar stúlkur, saklausar úr fámenninu.  Sennilega hafa kröfur þeirra heldur ekki verið miklar, því ekki var um að ræða þægindi né annan lúxus.

Leið Mummu lá svo suður og þar kynntist hún eiginmanni sínum, William Horn, hann var hermaður í Ameríska hernum, en vann síðan aðra vinnu á Vellinum þegar tíma hans sem hermanns lauk. 

Mumma

Mumma var yndisleg kona og full af glettni.  Hún lét sér sko aldeilis ekkert fyrir brjósti brenna. 

Þau bjuggu í Keflavík, uns maður hennar lést, hún stóð þá uppi ennþá ung kona með tvo unglinga.  Hún átti um að velja að vera kyrr, en líka að fara til Bandaríkjanna og fá þar námsstyrki fyrir börnin sín og lífeyri. 

Hún ákvað að fara.  Keypti flugmiða aðra leið, og tók svo næstu rútu frá flugvellinum, og þar sem stoppistöði hennar var, fór hún út.  Og byrjaði þar að leita að húsnæði og vinnu.  Ef þetta er ekki Fljótavíkuráræðni og kjarkur þá veit ég ekki hvað. 

Myndamappa5 mynd10

Hún kom auðvitað börnunum sínum til manns.  Guðrún Agnes Horn.

Myndamappa5 mynd9

Og Villiam Horn Jr.  Hann er nú í alríkislögreglunni Bandarísku.

Myndamappa5 mynd11

Hér eru þau öll sömul. Og þau eru sömu íslendingarnir og þegar þau fóru.

Ýmsarmyndir2

Mumma á heimili sínu hún flutti til dóttur sinnar Guðrúnar eða Pet eins og hún var alltaf kölluð, þegar hún giftist Jerry Bedar.  Jerry er tannlæknir og ef þið haldið að tannlæknar í Ameríku hafi það rosalega gott, get ég sagt ykkur að Jerry vinnur allt að 10 tíma á dag, því þegar hann lýkur vinnu sinni á læknastofunni, fer hann og vinnur niður í bæ við að sinna þeim sem ekki geta greitt fyrir þjónustuna, sýnir bara hvers lags öðlingur þessi maður er.

úr möppu1.4

Her er pabbi minn og mágur hans, með Jerrý og Bill fyrir mörgum árum í USU.

IMG_4976

Það voru mörg knúsin hjá systkinabörnunum, ekkert síður en hjá mínum barnabörnum.  Við erum eins og rosagóðir vinir, og þó við hittumst ekki í 20 ár, þá er eins og við höfum sést í gær, þvílíkur er kærleikurinn milli okkar, Snúður lætur sér þó fátt um finnast.

Mumma frænka var eins og pabbi og fleiri systkinin prakkari hinn mesti.  Og hún var ákveðin í að láta jarðsetja sig hér á Ísafirði, og hún vildi láta brenna sig og setja öskuna í kaffikönnuna sem hún drakk sitt kaffi úr á hverjum degi.  Dagurinn hjá henni byrjaði ekki fyrr en hún var búin að fá sér kaffisopa út sínum kaffibrúsa.  Þetta finns mér sýna í hnotskurn hugsunina hjá þessum systkinum, þau gerðu sér grein fyrir því sem skipti máli.  Og hvað er betra en að fá að dvelja í sinni eigin kaffikönnu, heldur en að vera í einhverri fínni krukku sem hefur enginn tengsl við sál eða líkama. IMG_4994

Athöfnin var rosalega falleg og hjarnæm.  Þar mættu ættingjar bæði héðan og langt að. 

IMG_5003

Prestinum mæltisl líka vel, og hann talaði bæði á ensku og íslensku.  Því þó bæði Pet og Bill skilji heilmikið í íslensku, þá er það svo að barnabörnin skilja ekki nóg.  Svo athöfnin fór fram á báðum tungumálum.

IMG_5004

Yndislegur stúlknakór söng við athöfnina og gerði það með sóma.  Stjórnað af Bjarney Ingibjörgu Gunnlaugsdóttur. Organisti er Hulda Bragadóttir.  Bjarney söng svo lagið okkar Balda um Fljótavík og gerði það með sóma.

IMG_5008

Hitinn var yfir 20° og sólskin. 

IMG_5010

Prestur og fjölskylda Mummu komin alla leið frá New York, Guðrún Agnes, Jerry maður hennar, Jake og Jessica, og hennar kærasti sem kemur alla leið frá Hawaii. 

IMG_5017

Á eftir var svö öllum boðið í humarsúpu sem var sannarlega vel þegin.

IMG_5018

Jessica mín, þú mátt taka þetta sem hint.  Mamma þín er farin að þrá barnabörn, og svo er gifting á Hawaii næsta sumar, svo það verður stutt í svona ljúfust mín. Heart

Mappa3 myndir8

Hér eru fjögur af þessum systkinum, Mumma, pabbi, Jói og Judith. Þau voru alla tíð mjög samstæð og kærleiksrík og sterk bönd milli þeirra, alveg eins og við börnin þeirra finnum hjá okkur.

Mappa2 myndir6

Þau fóru rúnt um Vestfirði fyrir nokkrum árum fjögur systkinin, hér eru þau við bæinn þar sem amma þeirra fæddist.  En málið er að meðalaldurinn var rúm 80 ár, og þegar þau komu við í Bjarkarlundi, leit veitingamaðurinn út og spurði svo, hvar er bílstjórinn?  Það var reyndar pabbi minn. LoL en hér eru Júdda, Mumma og Jói.

IMG_4970

En eins og ég sagði, eru líka sterk bönd milli okkar barnanna þeirra, hér eru Atli frændi og Pet.

IMG_4988

Bill frændi og Atli. 

IMG_4998

Systkinin yndislegu í kirkjunni, komin alla leið frá BNA til að verða við hinstu ósk móður sinnar.

IMG_5020

Set þessa mynd af Sunnu frænku minni af einskærum prakkaraskap, því þetta er svo ólíkt henni, svona töffarastælar, hún er yndislegasta manneskja í heimi.Heart

IMG_5021

Hér sjáið þið Judith og Þórð Júlíusson júníor.

IMG_5034

Bill, Þóra og Grétar á góðri stund.

IMG_5040

Við áttum líka góða stund með bróður mínum Gunnari inn í "skógi" seinnipartinn, hér eru Grétar, Guðrún Agnes, Þóra og Elli.

IMG_5051

Elli minn Stína mágkona Inga kona Didda frænda, Diddi, Gunni bróðir minn, Guðrún Agnes og Þóra.

IMG_5056

Stolt amma.

IMG_5059

Stubbur með sveppi, sem hann ætlaði sko að borða í kvöld.

IMG_5062

Og svona mitt í öllu amstrinu fékk Atli frændi náðarsamlegast að taka upp kartöflur í matiinnW00t

IMG_5061

Smá himnagallerí, en hér er veðrið búið að vera þvílíkt með eindæmum gott, yfir 20° hiti og sól, með einstaka hitaskúrum á milli.  Gerist ekki betra.

IMG_5067

Og inn á milli smátími fyrir barnabörnin mín. Heart

IMG_5024

Elsku hjartans Mumma frænka mín, þú varst hetja eins og þitt fólk allt, og við börnin og barnabörnin vonandi líka.  Þín er sárt saknað.  Það var gott að koma til þín í heimsókn, og þú varst amma allra krakkana í hverfinu á Long Beach.  Ég er viss um að allt hverfið í kring um þig hefur misst mikið, alltaf varstu samt sama Fljótavíkurbarnið, hrein og bein, heiðarleg og dugleg.  Lést ekkert buga þig.  Ég er stolt af því að vera náin ættingi þinn og ég er stolt af uppruna mínum.  Ég er líka ánægð með að börnin þín ætla sér að koma oftar og vilja sækja sinn rétt um að vera íslenskir ríkisborgarar.  Blessuð sé minning þín og ykkar allra sem farin eru.  Elsku Judith mín sem ert ein eftir, megi allir góði vættir styrkja þig og vernda, og megir þú eiga marga góða og fagra daga framundan.  Fallega yndislega frænka mín. Heart

 

 

 

 

 


Bloggfærslur 5. september 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2023329

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband