3.8.2010 | 22:57
Kajak og kærleikur og maraþon myndasýning. .
Þá er verslunarmannahelgin farin hjá. Það var mikið um að vera á Ísafirði, en líka annarsstaðar. Veðrið lék við okkur vestfirðinga og allt fór vel fram. Vona að þið séuð nestu upp, því hér eru margar myndir. það var bara svo frábært að upplifa þessa helgi að ég gat ekki stillt mig. Njótið vinir mínir.
Hér var enn eitt glæsiskipið í höfn á laugardaginn. Og nokkrir gestir kíktu við og fengu að skoða sig aðeins um. Það er orðið daglegt brauð. Ég er örugglega að verða frægari en Sara Palin heheheh....
Mýrarboltinn komin í fullan sving, Heimsmeistaramót í þetta skipti thank you very much.
Ég get sagt ykkur að stemninginn var komin í algleyming strax um hádegi á laugardaginn, en ég var á annari leið, kíkti bara við. Gleðin og hamingjan leyndi sér ekki, þetta hefur örugglega verið frábært hjá þeim.
Og fyrst ég var nú einu sinni komin upp í Tungudal kíkti ég á ber og vitiði þau eru orðin týnsluhæf og líta vel út.
Girnileg ekki satt?
En mín leið lá annað, ég var sum sé að fara inn í Seyðisfjörð, þar ætlaði Kajakklúbburinn að vera með fjölskylduskemmtun og þangar var Elli minn þegar farin og barnabörnin mín.
Fjörðurinn minn, blárri en blátt.
Þetta er nú engin smásmíði, og hver ætli lóðsi nú þessa dasa inn í höfnina? Jú það er hann Muggi, hafnarvörðurinn okkar, hann er ótrúlegur alveg.
Og hér erum við komin inn í Seyðisfjörð. Veðrið lék við okkur allan tíman og allt var yndislegt.
Á þessum stað voru börnin í forgang, og allt gert til þess að þau skemmtu sér sem best.
Úlfurinn á Kajak, nýbúinn á námskeiði, og til í allt.
Eins og sjá má var líf og fjör.
Skútufólkið kom náttúrulega á sínum skútum. Og ef þið eruð að spá í hve nálægt landi þær eru, þá háttar þannig til þarna að það er aðgrunnt ákveðið út, og svo er bara hafdýpi rétt utan við. Ótrúlegt eins og hannað til þessara nota.
Eins og ég sagði þá voru það börni sem léku hér aðalhlutverkinn og svo voru stoltir foreldrar sem horfðu á og fylgdust með og nutu þess að upplifa þessa helgi með börnunum sínum.
Hér í miðju er Halldór Sveinbjarnar, einn af driffjöðrunum í Kajakklúbbnum Sæfara.
Það var þröngt setinn bekkurinn en allir glaðir og kærleikurinn sveif yfir vötnum.
Og ungviðið kunni svo sannarlega að meta þetta. Þau voru bókstaflega í sjónum frá morgni til kvölds.
Og allir nutu sín í botn.
Ó ljúfa líf eins og Flosi Ólafsson myndi kyrja.
Og sólin er að setjast.
Hér er Hilmar okkar búin að mala baunir og búa til eðalkaffi og bjóða kaffiþyrstum vinum sínum. Ekkert slor, nýmalað og lagað.
Æði.
Úbbs hvernig á að byrja á að tjalda???
Það tókst áður en sólin sendi sína síðustu geisla það kvöldið. Og ekkert gos nákvæmlega þá.
Litli stubburinn okkar var í sjónum allan daginn alla dagana, ótrúlegt úthald af fimm ára gutta.
Maður kona hundur, og langamma Jóns Ottó bjó hér fyrir ofan á bæ sem hét Uppsalir. Það kviknaði í þeim bæ um hávetur og það þurfti að bera langömmu hans í sæng frá Uppsölum til dóttur hennar sem bjó á Eyri, eða hér sem við dveljum nú. Svona getur heimurinn verið lítill. Þessi langamma hans átti sér draum þetta sagði ömmusystir hans mér í dag, eftir brunan komst hún ekki á ról lengur, nema að þegar vegur kom inn á Eyri um Djúpið, var gamla konan sótt og fékk að fara til Ísafjarðar, hennar helsta ósk var að komast í bíó. Það varð reyndar ekki af því, vegna þess að hún var svo þreytt eftir ferðalagið og eftir að hafa heimsótt ættingja sína inn á Kirkjubóli. En sagði Jana sem er ein af þeim yndislegri konum sem ég þekki, málið er nefnilega að fá að hlakka til og það er málið. Það er upplifunin sem ekki verður tekin frá manni. Að hlakka til. Það var líka svo gaman að einmitt þann dag komu við mamma hans og pabbi og móðursystir, og þær voru að segja okkur að þær myndu svo vel eftir sumardvöl á Eyri og hvernig var staðið að því að þvo ullina.
Og það húmar að, eldri drengirni höfðu safnað saman timbri úr fjörunni. Þeir fóru á sódíökum um ströndina og týndu upp við, og svo hlóðu þau bálköst.
Og svo var kveikt lítið bál, alveg innan löglegra marka. Vel passað upp á það. Því hér þarf að hafa gát á öllu slíku.
Það var auðvitað krafist ákveðns fatnaðar, hér þurfti sko að vera með bindi, og þetta er náttúrulega eini klæðinaðurinn sem krafist var, og svo börnin í vestum.
Gamla brýnið nýtur sín í botn, enda á heimavelli þar sem börnin og barnabörnin eru.
Ekkert fyllerí, en gamli góði máni var a.m.k, hálfur.
Og kvöldroðin leggst yfir Eyri við Seyðisfjörð. Það væri nú bara gott ef einhver þekkti þessar systur sem áttu hér heima og voru eitthvað snefsnar yfir uppákomunni, og sýndu þeim þessar myndir. 'Eg er viss um að það myndi gleðja þær að sjá hve glöð við erum og ánægð, ekki síst börnin.
Afi og stubbur að fara saman á kajak.
Hann er svo duglegur þetta litla skinn.
Þeir voru reyndar báðir stolt síns föðurs. Og ég er viss um að hann hefur vakað yfir þeim báðum þessa helgi og verið glaður með hve duglegir þeir voru.
Þau voru ótrúleg börnin, þau eldri gættu þeirra yngri og tóku þau með á sjóinn, og voru svo hjálpsöm að það var unun á að horfa.
Kvöldsigling.
Hér er hann enn og aftur þessi kraftmikli drengur.
Hér með stórabróður á kajak.
Hér er hann Einar, hann er að æfa sig í að róa standandi á kajak.
Sjáið þessi krýli? hvað þau njóta sín.
Hversu uppbyggilegt er ekki það að fá að leika sér svona?
En það eru ekki bara mannabörn sem fá að leika lausum hala. Hér eru hundarnir hans Leifs. Þetta eru sannkallaðir sjóhundar.
Og alltaf bætist við börnin og hundana.
Já hér var ýmislegt gert sér til dundurs.
Hér er svo Mugipaba blessaður í fríi frá stóru dössunum að lóðsa þá inn í höfnina. En bara að njóta sín með fjölskyldunni.
Hér er verið að velta sér. Þeir æfa sig í að velta svona, upp á öryggið.
Úbbs komin upp aftur.
Og Dóri Sveinbjarnar að rifja upp taktana með Mugison.
Hér eru svo barnabörnin mín að slaka á og spila.
Ég veit ekki hvort þið trúið því en hér var yfir 2o° hiti og ´sjórinn var mældur líka, hann var 17.9° svo þetta var bara algjört æði.
Stundum þurfa menn að leggjast ansi langt til að laga hluti. En það er þá bara þannig, hér þurfti að laga einhverja petala og hver gat það eiginlega betur en Pétur.
Já hér ríkti baðstrandastemning.
Málið er að við tökum þessu bara eins og vera ber, erum ekki að hlaupa með það í fjölmiðla, eða grobba okkar af góðaveðrinu, af því að það er bara hér svo oft.
Ef til vill þess vegna er veðrið á Vestfjörðum best geymda leyndarmál Íslands.
Jamm það er bara þannig.
Reyndar synti ég oft í sjónum sem krakki, hér fyrir neðan. meðan þar var ennþá fjara.
Og enn færist nóttin yfir og himnagalleríið opið.
Svo rís dagur á ný og fólk nýtur þess að vera til.
Og fólk nýtur þess að vera til.
Tveir flottir.
Ég á ekkert í þessu hundspotti, sagði Torfi. það eru krakkarnir
Sportsjómenn framtíðarinnar, þau eru ekki há í loftinu þessi tvö, en snemma beygist krókurinn.
Börn börn og vatn... sjór það er eitthvað samhengi þarna á milli sem er verðugt rannsóknarefni, og verður sennilega einhverntímann rannsakað, til dæmis með tilliti til að lækna brotnar sálir. Við lifum jú fyrstu 9 mánuðina syndandi í vatni.
Sjáðu þessa mynd? segir Halldór ljósmyndari.
Stubbur búin að vera alla daga allan daginn í sjávarmáli eða úti á sjó.
Mamma ég vil meira.
Svo er ein hér frá vini mínum Halldóri Sveinbjarnar í framhaldi af þessari:
Mamma please please please má ég fara út á sjó!!!
Og svo var grillað. Hafið þið smakkað lambakórónur? þær eru þvílíkt nammi namm.
Hvað er betra en að borða íslenskt lambakjöt í íslenskri náttúru?
Þetta er hann Guðmundur Harðarson flugmaður sem lifir og starfar í Lúxemburg. Þið ættuð að spyrja hann um Evrópusambandið og allt sem því fylgir. Það er nefnilega málið, þeir sem þekkja best til, vilja alls ekki fara þangað inn.
Hér frísar hesturinn!!!
Kynslóðabil hvað. Hér slást stóri stubbur og afi.
Og vitiði hvað, þetta er heilbrigðasta samband í heimi.
Enn ein himnadýrðin.
Þrjár flottar:
Móðir barn og hundur í útilegu.
Skipaborgin.
Birti þessa mynd í gamni. Drengurinn er svo ótrúlega flottur, líkur pabba sínum og búin að standa sig eins og hetja allan tímann ásamt hinum stóru strákunum.
Ólöf Dagmar fór í fyrsta skipti á kajak í þessari ferð og var ótrúlega dugleg, og byrjaði á kajaknámskeiði í dag.
Júlíana mín.
Og Sóley Ebba, komin alla leið frá Noregsi
Frábær ferð í alla staði.
Smábál fyrir litla stubba.
Talandi um sjóhunda.
Svo rennur alltaf upp þessi síðasti morgun, þegar maður þarf að fara að pakka saman og koma sér heim.
Það er svona eftirsjá og bið. En líka gleði yfir vel heppnaðri samkomu.
Það þarf að nota hugmyndaflugið til að koma bátunum upp úr fjörunni í kerrurnar. Það varð smá misskilningur í því að biðja um leyfi fyrir þessari yndislegu hátíð. Við ræddum við rangan aðila, og svo þegar bóndinn kom, var fengið góðfúslegt leyfi hjá honum, svo kom í ljós að tvær systur á Elliheimili áttu landið og það hefði þurft að spyrja annan aðila, sem reyndar kom seinasta kvöldið. En ég held að það hafi allt verið sjatlað í sátt, og nú vitum við allavega hvern á að biðja um leyfi. Því mér dettur ekki í hug annað en þessar tvær eldri dömur njóti þess að vita að þær geti leyft fjölskyldum að njóta þess sem þarna er í boði. Og ég segi bara takk elskulegar fyrir mig og mína og takk innilega samferðafólkið sem þarna var. Þetta er orðin algjör maraþon myndasýning. En þetta var allt bara svo frábært og erfitt að sleppa einhverju.
Og krían þurfti líka að nesta sig. er örugglega farin að hugsa til heimferðar.
Jamm náði þér....
Hér upp á bakkanum í þessum stól sat ég meiri hlutan af tímanum eins og leikstjóri, og naut hvers augnabliks. Að upplifa gleðina og hamingjuna hjá ungviðinu og stolt foreldra og aðstandenda. Það er ekkert til betra en það, segi og skrifa. Og það veganesti sem börnin fara með heim mun endast þeim lengi.
Komin úr berjaferð og við fengum til og með að fylgjast með Hrefnu sem var að synda út fjörðinn svona sem bless og takk.
Og svo komin heim búin að grilla læri og njóta þess með fjölskyldunni. En ég segi bara eigið góða nótt elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bloggfærslur 3. ágúst 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023326
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar