15.8.2010 | 13:50
Fljótavík, í upphafi var endirinn.
Ég dvaldi viku í paradísinni Fljótavík í yndislegu veðri, friði og ró, sem Hornstrandir einar geta gefið manni.
Ég fékk þær fréttir þangað að föður mínum hefði hrakað mikið. Minn tími hefur því farið í að dvelja hjá honum eftir að ég kom heim. Og mun svo verða meðan hann kýs að dvelja hér meðal okkar.
Meðan við dvöldum í óbyggðum komu þessir ungu menn við. Sá sem sker kjötið er ættaður úr Fljótavíkinni, sonarsonur Júdithar systur pabba. Þeir gera sér gott af afgangi af læri.
Börnin á ströndinni. Ég var búin að taka fullt af myndum, þegar ég áttaði mig á því að kortið var ekki í
Kvöldsett er orðið og þokan situr fyrir utan.
Börnin hreinlega elska að vera hér. Það var stórstreymi og í nokkra daga fjaraði ekki út.
Bræðurnir að busla. Faðir þeirra elskaði Fljótavíkina þar var hans annað líf.
Sól strönd og börn. Hvað er yndælla?
Atlastaðir, hér vorum við 20 manns í heila viku, og aldrei neitt vesen. Þannig er Fljótavíkin.
Hér er Siggi frændi minn að steikja silung. En við gátum borðað fisk í hvert mál, ef við hefðum viljað.
Atli frændi ræðir við ungu mennina. Atli er skáti og alltaf viðbúinn.
Þetta er typiskt fyrir kvöldin í Fljótavík. Þ.e. fyrir þá fullorðnu, afslappelsi í rólegu og nærandi umhverfi.
Kvöldsólin glampar á fjöllum og gróðri.
Það er hér sem ævintýrin gerast. Og ég er viss um að það var hér sem Ísfólkið varð til.
Ó þú kvöldsól sem gefur oss fegurð.
Jamm Atli ræðir við ungdóminn og miðlar af sinni visku.
Myrkrið færist yfir, það þarf að huga að eldivið. Hér er ekkert rafmagn, eða símar eða eitthvað sem truflar friðinn.
ekkert sem truflar sólarsýn og skugga.
Engin truflun frá bílum eða raftækjum. Bara fullkomin þögn eða hróp og hlátur í börnum og fullorðnum.
Þá er farið inn og kveikt á kertum og spilað af hjartans lyst.
Og allir fá að vera með, kvöldsnakk er líka gott fyrir smáfólkið.
Svo er gripið í gítarinn.
þau litlu þurfa svo að fara að sofa.
Meðan þau eldri skemmta sér við söng.
Svo er kveikt á kertum.
Það er gaman að leika sér og allstaðar er hægt að finna eitthvað skemmtilegt að gera.
Þessi er nú aðallega fyrir Hrönn.
Þau eru frændkyn, hún svona ljóshærð og blaeygð, hann rauðhærður með brúnu augun frá Langafa sínum. Falleg þó þau séu svona skemmilega ólík í útliti, þá voru þau perluvinir.
Fleiri gestir, þessi kappi kom frá Kanada, hann var á göngu orðin matarlaus og átti eftir að ganga til Aðalvíkur, hann var leistur út með mat og góðum kveðjum eins og allaf hefur verið stundað í Fljótavíkinni.
Tilbúin til að fara að veiða silung.
Ekki dugir að hafa bitlausa hnífa þegar gera skal að fiskinum.
Og himnagalleríið er líka opin hér.
Og það þarf að höggva í eldinn.
Hann var yngstur af okkur þessi piltur Edilon Máni, bara ellefu mánaða, algjört krútt og bróðir hennar Katrínar Óskar. Svipurinn af ömmu leynir sér ekki.
Sólstafir.
Stundum rigndi á nóttunni svo reif hann af sér skýin um hádegið.
Hér er afi að grilla pylsur, það sést á áhugahópnum í kring um hann.
Kvöldin voru samt mest spennandi, þegar búið var að kveikja á kertum, snark í ofni og brennandi við bar við eyrun og svo var heimtað að fá að heyra draugasögur. Jafnvel þó þau væru dauðhrædd.
Atli frændi sagði söguna sem sló í gegn.
Í miðri hrollvekju kom svo draugur á gluggann. En það var auðvitað hrekkjusvínið hann afi, það urðu mikil öskur og uppþot.
En svo var hlegið af létti þegar allt uppgötvaðist.
Á svona stöðum verða allir eitt. Börn og fullorðnir renna saman sem ein heild, og allir hjálpast að. Það er stemning sem alltof sjaldan fæst í daglegu amstri í rafmagni og umferð.
Hver nýr dagur kemur með ný fyrirheit. Skyldi maður fá fisk hvert á að fara að veiða?
Víkinn hans pabba míns. Hann var á sínum endaspretti og ég var hér. Ég talaði til hans héðan frá rótunum, frá upphafinu og veit að hann skildi mig og heyrði hvað ég var að segja.
Það var litað teiknað og spilað, hlaupið, vaðið og farið út í Julluborgir sem er sandborg hinu meginn við ósinn. Og amma passar meðan hitt fólki fer á veiðar.
Veiðimennirnir að koma frá Reiðá.
Úlfur er fiskinn alveg eins og pabbi hans var. Enda fór faðir hans oft með þá báða syni sína að veiða á bryggjunni eða í fjörunni. Slíkt gleymist ekki. Enda var Júlli minn duglegur að kenna sonum sínum það sem hann taldi þá þurfa að vita, þegar hann færi.
Svo þurfti að mæla meta og skrá, skrifa niður í veiðibók. Allt vandlega og vel.
Kvöldstemning enn og aftur.
Kveikt upp í kamínu.
Við snarkið frá kamínunni les afi fyrir börnin.
Svo er horft á FLame eitt tvö og þrjú.
Svo er hægt að rista sér brauð.
Og spila.
Áður en haldið er heim, þarf að brenna rusli og taka til eftir sig.
Það þarf að skila öllu hreinu og þrifalegu fyrir næsta ættingja sem tekur við.
Katrín Ósk kallað okkur afa og ömmu, en við erum vön þvi að börn kalli okkur þannig, og kunnum því bara mjög vel. Enda er þetta frábær lítil stúlka dugleg og afskaplega yndæl.
Svo kemur síðasti morguninn hann er alltaf sér á parti, söknuður og spenna uppát á mat.
Hér eru niðjar þrigga systkina samankomin á einum stað, það er Hlíf dóttir Önnu Júl, Atli sonur Ingu Júl, Siggi, sonur Ástu sem er dóttir Geirmunar og svo ég dóttir Þórðar.
Amma taktu mynd af okkur Þau munu erfa landið og dýrðina.
Þá er að drífa sig af stað á flugvöllinn.
Hér eru nefnilega tveir flugvellir og þessi með a.m.k. þremur brautum.
Komin í loftið og horft yfir jökulfirðina.
Og Djúpið þarna má sjá Hestinn úr öðru sjónarhorni.
Eggsléttir fjallatoppar og litadýrð í hlíðunum sem fuglarnir hafa skapað.
Allt er þetta hrikalegt og stórfenglegt.
Fegurð engu öðru lík.
Ísafjörður.
Enn eitt skemmtiferðaskipið.
Og lent og back to normal.
en nú verð ég að þjóta. Það er komin minn tími að halda í vinnulúna hönd, strjúka gamla kinn, og segja viljasterkum manni að hann þurfi að sleppa takinu á þessu ástandi, fara burt inn í annan betri heim þar sem fjölskyldan bíður hans með opna arma. Það er erfitt fyrir okkur sem erum hér og elskum hann svo mikið. En stundum þurfum við að læra að sleppa takinu og leyfa ástvinum okkar að yfirgefa okkur. Það verður ekki að eilífu, heldur aðeins um stutta stund uns við sjálf fylgjum á eftir. Það er eitt af því sem við vitum alveg fyrir víst, ef við fæðumst inn í þennan heim, þá förum við þaðan aftur. Það er bara spurning um hvenær.
Fljótavík.
Einn á ég unaðsreit.
Engan ég betri veit
Paradís, prýði slík
Perla engu lík.
Ég löngum þar legg mína leið.
Þar lífið er auðnan greið.
Í norðrinu fagra og falda.
Þú fryssandi hvíta alda.
Syngur við kvöldsins kyrrð.
Mín fagra Fljótavík
Af friði ertu rík.
Þögnin er eðal þitt
Þakklætið er mitt.
Tiplar þar tófa létt um sand.
Tilheyrir henni það land.
Í ánni svo silungur syndir
Sál mín þann unaðinn fyndir,
fylgja þar landvætta hirð.
Svo Dísir á ströndinni dansinn sinn stíga.
Stormurinn ógnandi brýtur þar land.
Öskrandi helkaldar öldurnar hníga
Og ærslandi leika við fjörunnar sand.
Svo hljóðnar Ægisönd
Og andar sær við strönd.
Létt fer um vog og vík
volgran engu lík.
Hvíslar angurvær og hlý
hafsins golan enn á ný.
Og lýðurinn gleðst yfir ljóði.
landsins, og biður í hljóði
Um hollvætta nálægð og firrð.
Þú ert reyndar alls engu lík
Mín ástkæra Fljótavík.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir 9. október 2008.
Egið góðan dag elskurnar. Og fyrirgefið mér hvað ég vanræki ykkur.
.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
Bloggfærslur 15. ágúst 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023326
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar