29.7.2010 | 20:26
Hótunin í kastljósinu.
Jamm það er alveg óþarfi að breiða yfir hver sendi hana eða hilma yfir hvers vegna. Hér er hún einfaldlega.
Ágæti Sölvi, mér hefur verið bent á viðtal sem tekið var við Jónínu Benediktsdóttur varðandi nýju bókina sem mér skilst að hún sé að semja með þinni aðstoð. Í þessu viðtali kom þetta m.a. fram:
Jónína á Útvarpi Sögu 23. júlí 2010:
"Svo sitja 6-7 einstaklingar heima á blogginu að níða mig niður fyrir það að namedroppa. Ég er með nöfnin á öllum þessum gaurum af því ég náði í ip-númerin hjá malefnin.com. Það er nú til dæmis ein sagan. Er það ekki mál að vita......
Guðmundur Franklín: "Hver á malefnin.com?"
Jónína: "Nákvæmlega. Það færðu að vita í bókinni."
Sölvi Tryggvason: "Þetta er allt skýrt."
Jónína: "Þetta er allt skýrt. Þetta er malefnin.com. Þeir stjórnuðu samfélagsumræðunni hérna
mjög lengi þó að ákveðnir aðilar neiti að viðurkenna það.
Sverrir Stormsker: "Var þetta ekki spyrt við DV á sínum tíma?"
Jónína: "Það kemur í ljós."
Mér finnst hið besta mál að Jónína gefi út bók og ekkert verra ef hún getur flett ofan af spillingu í þjóðfélaginu. En hér er hún á villigötum. Ég er ábyrgðarmaður Málefnanna.com og stjórna vefnum alfarið, ásamt nokkrum öðrum meðstjórnendum sem ég þekki alla vel. Núverandi eigandi Málefnanna er Guðmundur Ingi Hjartarsson. Við höfum átt gott samstarf að því marki að taka á ýmsum tilfallandi uppákomum, þar sem kvartað hefur verið við hann um nafngreinda íslendinga með slúðri og hótunum um lögsókn. Aldrei hefur komið þar upp nein tilmæli eða beiðni um að sérmeðferðar gæti við Bónusfeðga. Þeir hafa þó sennilega verið rakkaðir manna mest niður á Málefnunum.com.
Að þeir stjórni umræðunni þar er bull út í loftið, og ég vona að Jónína hafi meira fyrir sér í öðrum þeim málum sem hún hyggst setja fram í bókinni.
Ef hún svo ætlar að gefa upp IPtölur málverja, sem hún fékk með hótunum upp úr fyrri eiganda, mun ég kæra hana umsvifalaust til Persónuverndar og krefjast þess að stopp verði sett á útgáfu bókarinnar.
Hún getur einfaldlega ekki opinberað slíkar tölur, og ekkert sem réttlætir þann gjörning, þar sem umræðan á Málefnunum.com var einungis eins og aðrar umræður og stjórnað af mér og mínum meðstjórnendum og engum öðrum. Þetta er allt saman hægt að sanna og ég mun ekki gefa neitt eftir í því sambandi. Þar er sannleikurinn sagna bestur.
Svo það sé á hreinu þá rekur núverandi eigandi vefinn gegnum sitt fyrirtæki Netheim.is þ.e. sér um tæknihliðina, en ég og mitt fólk sjáum um stjórnunina og enginn getur vænt mig eða þau um að vera handbendi eins eða neins.
Þetta vil ég láta þig vita áður en þið farið út í einhverskonar krossferð á hendur Málefnunum á vitlausum forsendum.
Vil gjarnarn heyra frá þér um þetta mál frekar.
Óska ykkur að öðru leiti alls þess besta með kveðju Ásthildur Cesil Þórðardóttir.
Já svo mörg voru þau orð. Það getur svo sem vel verið að ég hefði átt að vera diplómatískari og tala undir rós. En ég er bara í fyrsta lagi vestfirðingur og í öðru lagi tala hreint út.
Svarið sem ég fékk er þetta:
Sæl Ásthildur.
Ég ber ekki ábyrgð á orðum Jónínu í umræddu viðtali, því að hún er stundum heldur hvöss.
Ég veit vel að Bagusfeðgar stjórna ekki umræðunni þar. Hins vegar var brotið freklega á
friðhelgi einkalífs Jónínu á sínum tíma og þeir sem bera ábyrgð á því verða að beina reiði sinni
að sínu eigin siðferði en ekki að mér.
Þú þekkir hins vegar umræðuna um IP tölurnar, sem var í fréttum á sínum tíma. Ég hef unnið
sem blaðamaður í 6 ár og unnið mér traust gríðarlega margra, enda aldrei unnið
óheiðarlega og mun ekki byrja á því nú.
Þess vegna finnst mér heldur verra að þú kjósir að hóta lögbanni á bókina án þess að hafa hugmynd
um hvað þar kemur fram. Mitt markmið er ekki að koma höggi á neinn. Mér leiðast svona hótanir og
þoli illa að talað sé við mig með þessum hætti.
Jamm og svo;
Og ég svara:
Heldur tekurðu nú orð mín of nærri þér Sölvi. Ég er ekki að hóta þér alls ekki, ég var að spyrja þig um það sem kemur fram í viðtali við Jónína varðandi IP tölurnar. Ég er nefnilega eins og Jónína stundum hvöss. Málið er að hún hefur verið lengi með þessar grillur um Málefnin og bendlað marga þar innanborðs við Baug og eins og kemur fram í viðtalinu sagt að Baugur stjórnaði umræðunum þar.
Ekki ætla ég mér að fara að skipta mér af hvernig þú skrifar söguna, skil ekki alveg hvernig þú færð það út. Ég hins vegar segi það alveg satt að ef spurning er um birtingu á þessum IP tölum mun ég beita mér. Það hefur reyndar ekkert með annað að gera en ábyrgð mína á Málefnunum.com og málverjum sjálfum.
Það er það EINA sem ég set út á þetta allt saman, og Jónína segir jú beinlínis í viðtalinu að það sé það sem hún ætli sér að gera. Þess vegna hafði ég samband við þig. Nú hefur þú staðfest að svo muni ekki verða og eins og ég sagði áður það nægir mér alveg.
Óska þér svo enn og aftur alls góðs með Jónínu, bókina og allt annað. Með bestu kveðjum Ásthildur Cesil Þórðardóttir.
Svar:
Sæl aftur
Ég hef ekki staðfest eitt né neitt. Bara sagt að ég muni vinna þetta heiðarlega og ekki gera neitt sem
stríðir gegn siðferði mínu.
Þú sagðist ætla að krefjast stopps á bókina. Það er hótun um lögbann Ásthildur. Ég tek þetta engan vegin nærri mér og er alveg nógu harður í ,,alvöru umræður", enda fjallað um handrukkara, dópsala og ofbeldismenn
og fengið alls konar hótanir. En ég þoli ekki tilraunir til ritskoðunar og svara þeim af fullri hörku.
bestu kveðjur
Sölvi
Og ég:
Efni: Re: Frá Ásthildi Cesil Þórðardóttur.
Eftir sem áður stendur að birting IP talna er samkvæmt lögum um persónuvernd ólögleg nema gegn dómsúrskurði að því ég best veit. Og þá í þessu tilfelli með mínu samþykki. Ég hef annars undir höndum á hvern hátt Jónína fékk þessar tölur. Hafa ber það í huga líka. Með bestu kveðjum Ásthildur Cesil.
Og hann:
Ég veit líka hvernig hún varð sér úti um þessar IP tölur og myndi að sjálfsögðu segja
frá því líka ef ég fjalla um málið í bókinni.
Ég;
En Sölvi þú ert ekki alveg að skilja pointið; birting IP talna er ekki leyfileg nema með dómsúrskurði. Samkvæmt lögum um vefmiðla og persónuvernd. Með kveðju Ásthildur Cesil.
Hann.
Ég skil þetta 100%.
bestu kveðjur
Sölvi
Já svona var þetta. Óþarfi að flæka þetta í einhverjar samsæristrakteringar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (45)
Bloggfærslur 29. júlí 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2023322
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar