Í dag.

Ég á eftir að setja inn nokkrar skemmtilegar myndir frá heimsókn litla Arnars Milosar og pabba hans og mömmu, og fleiri myndir, en ég byrja á nýjustu myndunum.

IMG_2941

Hér er hann litla skottið með afa.

IMG_2942

Hér var svo amerísk skúta í nokkra daga, það hefur fjölgað skútum hingað, ef til vill vegna nýrrar aðstöðu fyrir skútufólk hér.

IMG_2944

Því hér er ágætis bæði skútu og kajakmenning.

IMG_2944

Þeir eru nú farnir og líka bretar sem voru hér í tæpa viku.

IMG_2946

ég var að tala um um daginn að fyrirtæki aðkomin væru að trana sér hér fram, til að ná í meiri sölu.  En hér eru nokkrar túristabúðir, hér er ein ísfirskar handmyndakonur hafa komið sér upp verslun.  Málið er að fyrir nokkrum árum var hér ráðin kona til að auka atvinnurekstur kvenna.  Elsa heitir sú ágæta kona sem mest og best vann hér þá, fyrir utan að við sameinuðumst um að koma hér upp saltfiskvinnslu unglinga, þá átti hún sinn þátt í að sameina konur í handverki, bæði hér á Ísafirði, Dýrafirði, Önungarfirði og Súgandafirði, á öllum þessum stöðum er nú hægt að kaupa fallegt handverk kvenna á staðnum og ekki bara prjón og hekl heldur mikið úrval af allskonar fallegum munum.  Við erum hér komin í Karitas, á Ísafirði.

IMG_2947

Úrvalið er frábært og fallegt.

IMG_2948

eins og sjá má er hér mikið úrval af allskonar fallegum hlutum sem unnir eru hér í heimabyggð.

IMG_2949

Konurnar vinna hér alfarið sjálfar og sitja gjarnan með prjónana sína eða hekluverk og afgreiða fallega hluti, allt svo vinalegt.

IMG_2950

Og alltaf gaman að skoða fallegt handverk.

IMG_2951

Ég er rosalega stolt af þessum konum, og öllum í hinum stöðunum líka.

IMG_2952

Er eiginlega ákveðin í að kaupa mér eina ullarpeysu fyrir veturinn hjá þessum frábæru konum.

IMG_2953

Börn og kúlan, þessir krakkar eru ættaðir í móðurættfrá Mexico og frá Mazátlan, þar sem mágkona mín býr, já heimurinn er lítill, afi og amma þeirra eru vinir mákonu minnar.

IMG_2954

Og börn og kúlan eiga einstaklega vil við.

IMG_2955

Og það var gaman að hitta þetta yndæla fólk frá Mexico.

IMG_2956

Hér er auðvitað allt til alls fyrir börnin.

IMG_2960

Þau voru reyndar að bíða eftir að komast að í Tjöruhúsinu hjá Magga Hauks og Rönku, en það er rómað víða um veröld.

IMG_2964

Og tjörnin hefur alltaf sinn sjarma fyrir öll börn.

IMG_2965

Heyja Dona Kristína hér eru vinir þínir í góðum höndumHeart Og báru mér kveðju frá þér.

IMG_2971

Tekin í morgun ásamt þeim myndum sem á eftir fara, himnagalleríið opið.

IMG_2973

Um klukkan sjö í morgun og orð geta ekki lýst þessu, en reynið að hugsa um fulgasöng og þar fyrir utan algjöra kyrrð.

IMG_2974

IMG_2975

IMG_2976

IMG_2977

IMG_2978

IMG_2979

Morgun eftir morgun, dag eftir dag núna nær í tvo mánuði, Ísafjörður með þeirri reisn sem hann á til sem bestan.  Hér þarf ekki orð, bara andakt og fuglasöng og algjöra kyrrð þar fyrir utan.  Eigið gott kvöld elskuleg mín, ég er svo þakklát fyrir að loksins sjá ljós og tilgang, þó sorgin sé þarna fyrir innan og söknuður yfir sonarmissir.  Þá læknar flest sár svona yndislegur staður og náttúran sem ég veit að elskar mig eins og ég er, sættir sig við mig eins og ég er, og jafnvel veitir mér alla sína ást, bara eins og ég er.  Málið er bara að hafa þroska til að taka á móti öllu því sem að mér er rétt, og það geri ég. Heart

 


Mér líður vel.

Ertu hætt að blogga spurði elskuleg vinkona mín í gær þegar hún hringdi í mig.   Nei elskurnar ég er ekki hætt að blogga, og ég er alveg að komast upp úr öldudal í bili allavega.  Líður vel og er jákvæð, en ég hef bara svo rosalega mikið að gera þessa dagana.   Er að reyna að vinna upp margra mánaða störf heima hjá mér, og svo er það bærinn.  Hann þarf að líta vel út og vera stolt okkar Ísfirðinga eins og hingað til.  Þetta tekur allan minn tíma eins og er.

En ég er með heilmikið af skemmtilegum myndum sem ég er ákvðin í að sýna ykkur þegar ég má vera að.  Og ég hugsa mikið til ykkar sem hér komið inn og heimsækið mig.  Og ég er ykkur þakklát fyrir stuðningin gegnum tíðina.   Það er ómetanlegt þegar maður lendir í krýsum og sorg að finna alla þá hlýju og samhug sem bæðí þið og samborgarar mínir hafa sýnt mér.   Ég er svo heppin kona að eiga svona marga góða að.

Loksins rigndi smávegis í gær, en það er búið að vera sól og hlýja a.m.k. í tvo mánuði eða lengur.  Jörðin er farin að þrá vökvun. 

Á næstu helgi og þarnæstu verða svo ættarmót hjá mínum fjölskyldum, frá mömmu og svo frá pabba.  Ég ætla að fara á bæði og hitta ættingja mína. 

En eigið góðan dag mín kæru og mér líður vel í moldinni og útiverunni.  Það er móðir jörð sem hefur fóstrað mig undanfarnar vikur og gefið mér ró.  Heart

Hanna Sól og Ásthildur á Dóná.

Hanna Sól og Ásthildur Cesil við Dóná.  Þeim finnst gaman að synda í ánni, og leika sér. 


Bloggfærslur 30. júní 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband