Garðplöntustöðin mín.

Jamm góðir ísfirðingar, þar sem mikið er spurt, þá get ég sagt ykkur að garðplöntustöðin mín er opin á virkum dögum frá 9 - 12 og 13 - 18 virka daga og frá 14 - 16 á laugardögum.  Ég er víst í samkeppni við Blómaval, því þeir hafa ákveðið að taka yfir sumarblóm og ýmislegt annað hér í bæ.  Og hver má sín gegn stórveldum?  Segi svona.

En ég vil bara gefa mínu fólki kost á að kaupa plöntur sem eru ræktaðar hér fyrir vestan með umhyggju og natni.  Góðar plöntur sem þola veðráttuna hér.  Og svo er ég mjög stolt af sumarblómunum mínum í ár.

IMG_2341

gullhnappurinn er flottur

IMG_2343

Svo eru ýmsar tegundir af thuju og syparis sem geta þolað veðráttuna hér.

IMG_2344

Hjartarsteinbrjóturinn er blómstrandi í dag.

IMG_2345

Snúður hjálpar til við að reyta arfa og vinna í garðinum, þar sem ég hef engan tíma.  Það veit Brandur og nennir ekki heldur.

IMG_2346

Heimaræktað birki, reynir og fleiri tré og runnar eru tiltæk.

IMG_2348

Tópakshornin eru flott.

IMG_2349

Milljónbells líka.

IMG_2351

Ýmsar gerðir.

IMG_2350

Hin sívinsæla hengilóbelía líka. Og margar tegundir.  Allt ræktað heima í kúlunni af okkur hjónum.  Eigum við ekki að hlú að því sem er í heimabyggð.  Eða halda menn að allt sé betra sem kemur langt að?  Stundum halda menn það, og þegar fólk hefur sameinast um það, þá verður enginn verslun meir í heimabyggð, heldur hafa risarnir unnið markaðinn, enda er það sennilega takmarkið.  Að ná undir sig því sem hægt er til að græða sem mest.  Það er alveg rosalega 2007 eitthvað ekki satt.

IMG_2339

Hér er svo stubburinn minn í peysunni sem Tinna tengdadóttir prjónaði á hann.  Hún er virkilega dugleg og peysan er flott og hann er svooooo ánægður.

IMG_2337

Undanfarna daga hefur bærinn uppljómast af ungu fólki, skólafólkinu okkar og kennurum í allskonar leikjum og útivist.  Það er yndælt að sjá gleðina sem skín úr hverju andliti, líka kennaranna.  Í gær kom svo fyrsta skemmtiferðaskipið hingað og bærinn fylltist af þjóðverjum.  Ég hef verið frekar löt við að munda vélina, synd því margt er að gerast og veðrið hefur verið með eindæmum gott og sólríkt nú um langt skeið. En ég vil helst frá rigningu, allt í lagi þó það sé bara að næturlagi.  En hér þarf svo sannarlega að rigna til að úthaginn taki við sér og önnur svæði sem ekki er gott að vökva.

En eigið góðar stundir mín kæru. Ég er alveg á kafi í vinnu og dauðþreytt á kvöldin og fer að sofa upp úr níu á kvöldin. Kissing

Það er gott að skríða upp í rúmið sitt dauðþreyttur og vita að dagurinn hefur verið vel notaður og góður. Góða nótt.Heart


Bloggfærslur 3. júní 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband