El Salvador - ógnaröld og nokkur orð um Fjallkonuna.

Ég var bæði sorgmædd og glöð í morgun að heyra fréttirnar frá San Salvador.  Þetta eru hræðilegir tímar, ég er glöð vegna fólksins míns sem er hér úr allri hættu, en sorgmædd yfir þessum hryllilegu slátrunum og svo leið vegna þess að hluti fjölskyldunnar er þarna ennþá og kemst ekki burtu.  Ekki hingað m.a. vegna þess að landinu okkar er lokað öllum nema Evrópubúum, og ekki allra Evrópubúa því í Serbíu er líka fólk sem gjarnan vill komast hingað til að sameinast fjölskyldu sinni, en fær ekki að koma vegna duttlunga stjórnvalda. 

En hér er linkur á þessar slæmu fréttir frá El Salvador. http://www.elsalvador.com/mwedh/

 

Ég vil svo biðja ykkur lesendur mína og vini afsökunar á hve lítið ég er hér við núna, en bæði hef ég allof mikið að gera og svo er ég haldinn einhverri fælni sem ég losna ekki við.  En er að vinna í málunum.  Útiveran hjálpar mér mikið.

Ég er annars með fullt af skemmtilegumf myndurm sem ég ætla að setja inn fljótlega. 

 

G1N49PDS

En út af 17. júní.  Mér finnst að fjallkonan eigi að vera þroskuð kona með fullri virðingu fyrir ungum fallegum stúlkum.   Fjallkonan er móðir, kona, meyja.  Enginn tvítug stúlka getur komið fram með þeirri reisn og reynslu sem fimmtug kona getur gert.  Kona á miðjum aldri getur bæði borið glæsileik meyjunnar, kærleika móðurinnar og reynslu konunnar. 

Við erum ekki komin lengra á þroskabrautinni en það að fá gjarnan ungar stúlkur oft tæplega tvítugar til að fara með þetta stórkostlega hlutverk.  Sem er gróíð í hjarta okkar og sál.  Hún er þarna fulltrúi lands og þjóðar.  Á að hafa reynsluna, glæsileikann og jafnvel þann hrikaleik sem landið okkar er.   Því vil ég sjá á næsta ári, ef við verðum þá ennþá til sem þjóð; fjallkonur landsins allar eldri en fertugar.  Mega þess vegna vera ýturvaxnar og stöðugar, en fyrst og fremst sterkar.

Fjallkonan er ímynd landsins okkar fagra.  Þess vegna finnst mér við hæfi að benda á þetta og biðja um að bætt verði úr.  Þetta er nefnilega ekki fegurðarsamkeppni, né hæfileikakeppni eða leiklistarkunnátta.  Hún er tákn alls þess sem í landi okkar er fólgið.  Sverð okkar sómi og skjöldur. 

Eigið góðan dag mín kæru og fyrirgefið mér að hafa ekki farið blogghringinn allof lengi.  En það kemur að því fljótlega. 

Fjallkona

Set hér inn til gamans fjallkonuna árið 1994.  Þegar lýðveldið var 50 ára.  Þá var ég fengin til að fara með þetta einstaka hlutverk, þá ræddi ég um huldar vættir og landvættir og endaði á Í faðmi fjalla blárra eftir okkar ísfirska skáld Jónas Tómasson, þar var enginn Einar Ben, og sumir tóku víst andköf.  En okkur hættir til að fara niður í öll þau hjólför sem hægt er að finna til þess eins að komast ekki upp úr þeim, nema einstaka skrýtnar nornir og sérkennilegir kvistar.  Svoleiðis er það bara.

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981


Bloggfærslur 21. júní 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband