Ef til vill eigum við von!!!

Las þetta á blogginu hans Sigurjóns M. Egilssonar;

Flestir þeirra þingmanna sem voru kjörnir í síðustu kosningum, það er vorið 2009, eru ekki sáttir um hvernig störfum á  þingi er hagað. Vonbrigðin þeirra er mikil.
Ásmundur Einar Daðason upplýsti, á Sprengisandi á Bylgjunni í gær, að nýir þingmenn eru að tala sig saman um að mynda félagsskap, þvert á flokka, til að freista þess að fá þá eldri til að láta af þrætuáráttunni og gamaldags vinnubrögðum.
Mynda einhverskonar andóf innan þings vegna þeirra vinnubragða sem þar hafa tíðkast, og eru enn ráðandi.

Post a comment or leave a trackback: Trackback URL
Það er til málsháttur sem segir; Bragð er að þá barnið finnur.  Og það má útfæra það hér.  Ég er alveg gáttuð á forgangsröðinni hjá ríkisstjórn Velferðar og jafnaðar.  Fánalög, og ýmislegt svona dægurmálaeitthvað sem ég hirði ekki um að nefna.  Og stórnmálamenn rífast og jafnvel hnakkrífast í leikhúsinu við Austurvöll um hver sé sekastur.   Á meðan brennur allt á fólkinu í landinu.  Ég vitna aðeins í skrif skessunnar vinkonu minnar Heiðu;

VONLAUS STAÐA

10. júní 2010

Ég hef heyrt í og hitt óvenju margt fólk undanfarna viku sem er að gefast upp. Sumt af því hefur ennþá nógu mikinn baráttuvilja til að pakka saman sínu hafurtaski og yfirgefa landið... en aðrir bara hreinlega að gefast upp. Vonleysið algjört.

Það er ótrúlega sárt að horfa upp á vini sína og kunningja missa glampann úr augunum og verða hokið og sviplaust. Þetta sama fólk var í miklum baráttuhug fyrir hálfu ári síðan.
Þetta er fjölskyldufólk sem sér ekki fram úr því að fæða og klæða börnin sín. Fólk sem fær kvíðakast ef barni/börnum er boðið í afmæli.

Ætlum við bara að sitja hjá og horfa upp á þetta?

Von að spurt sé!!!

Ég heyrði í gær brot úr viðtali hjá Sirrý á rás2, þar var kona (sem ég því miður missti af nafninu)  að hún hefði verið komin á leiðarenda, en þá datt henni í hug að fara að skrifa niður bænir og gefa út bók um þær.  Þessum bókum hennar var vel tekið, og hún fékk nýja von. Hún sagði eitthvað á þá leið; Ég var alltaf að hugsa um kærleikan og viljan til að vera góð og gera vel.  Þegar ég var að skrifa þessar hugleiðingar, ræddi ég við prest, og hann sagði við mig, kærleikurinn er vissulega góður, en ræddu líka um vonina, hún skiptir svo miklu máli.

Þegar ég svo kom úr enn einni meðferðinni sagði þessi ágæta kona, fann ég að í hjarta mínu hafði kviknað ljós.  Og ég vissi að það var ljós vonarinnar.  Og mér leið svo vel.

 

Þetta ljós kæru stjórnmálamenn eruð þið að drepa niður í þjóðinni ykkar, þessari sem þið lofðuðu að vinna allt það besta.

Með hverju rifrildi, brígslyrðum og lygum á Alþingi drepið þið niður fleiri vonir meðal fólksins í landinu.   Þið hafið sýnt okkur þvílíka óvirðingu, og meðan fólk býður óttaslegið eftir úrræðum, SEM DUGA nótabene en ekki sýna ykkur í hetjuljósi, þá standið þið eins og hanar á priki í þingsölum og rífist eins og hundar og kettir. Og sýnið okkur löngutöng.  Því hugur ykkar er ekki hjá þeim sem þurfa á hjálp ykkar að halda, hugur ykkar er í EIGIN PYNGJU OG YKKAR EIGIN RASSGATI, svo og vina og vandamanna. 

Mikið megið þið skammast ykkar.  Ég get sagt ykkur að þolinmæði okkar er á þrotum, og við hvert óhappaverkið sem þið drýgið og reynið að fela eða ljúga ykkur út úr, dofnar vonin meira og meira. 

Ég á bara þetta að segja við ykkur; SKAMMIST ÞIÐ YKKAR OG ANNAÐ HVORT LJÚKIÐ ÞVÍ SEM GERA ÞARF OKKUR TIL HAGSBÓTA, FYRIR ÞINGLOK, EÐA HUNSKIST HEIM TIL YKKAR OG LÁTIÐ OKKUR EKKI SJÁ YKKUR MEIR, HVERT OG EITT YKKAR ER OKKUR HINUM TIL SKAMMAR, OG ÁSTANDIÐ ORÐIÐ ÓÞOLANDI FYRIR OKKUR, ÞIÐ AFTUR Á MÓTI ERUÐ Í VINNU HJÁ OKKUR VIÐ AÐ OTA YKKAR EIGIN TOTA OG REYNA AÐ GRÆÐA SEM MEST Á STANDINU. 

Ég heimta utanþingsstjórn og að þið stjórnmálatrúðar komið ykkur þangað sem við þurfum ekki að hvorki horfa upp á ykkur eða heyra í að minnsta kosti 2 ár.

c_documents_and_settings_jon_steinar_desktop_hvitur_fani2

VONANDI SJÁIÐ ÞIÐ AÐ YKKUR, ANNAR STENDUR ÞAÐ UPP Á OKKUR FÓLKIÐ Í LANDINU AÐ SÝNA YKKUR AÐ VIÐ ERUM BÚIN AÐ FÁ NÓG!!!


Bloggfærslur 14. júní 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband