Nokkrar kúlumyndir, og svo fyrirspurnir til sérfræðinga í plöntufræðum og meindýrum.

Ég hef ekki skrifað núna nokkurn tíma.  Ég er í einhverri verkfælni sem ég skil ekkert í sjálf, en finn að ég kem mér ekki eða illa að nokkru, nema ég verði að gera það. 

En hér koma nokkrar myndir til að gleðja ykkur elskuleg.

IMG_2458

Glaður stubbur með dótið hans stórabróður Tai Kwon Do hlífar.

IMG_2463

Og honum finnst spennandi að taka myndir, hér er ein af afa.

IMG_2464

Og ömmu, mér brá eiginlega þegar ég sé sorgina sem ennþá er í augum mínum.  Verð að reyna að gera eitthvað í þessu.

IMG_2465

Sigurjón er mikill afakarl, hér vill hann aðstoða afa við að kveikja upp í grillinu.

IMG_2466

Passa putana og vera varkár.

IMG_2468

Ó Ó þetta er hættulegt.

IMG_2469

Tjörnin skoðuð.

IMG_2470

Svo er bara að bíða eftirmatnum.

IMG_2498

Afaknús.

IMG_2499

Ferðamannastraumurinn byrjaður. Einhvernveginn skreppa húsin í bænum  heilmikið saman, þegar svona stórt skip kemur inn.  Í þessu skipi eru um 2500 farþegar, það þýðir að um borð eru jafnmargar manneskjur og í öllum Ísafjarðarbæ.

Næstu helgi er von á ennþá stærra skipi eða með um 3500 farþega, það liggur við að sé jafnmikið með þernum og starfsfólki um borð slagi upp í alla sem búa á Vestfjörðum.

IMG_2502

Það er ekki nóg að húsin skreppi saman, heldur verða fjöllinn undra smá í samanburði við þennan risadall.

IMG_2504

Og bærinn fyllist af fólki, og það labbar bara um göturnar eins og rollur í smábæ.  Það er eins og þeim finnist að bílarnir eigi að víkja fyrir þeim. Skrýtinn hugsunarháttur að mínu mati.

IMG_2505

Við áhaldahús bæjarins er aðstaða fyrir ferðalanga að taka vatn og losa sig við skolp.  Mér er sagt að þessi aðstaða okkar sé með þeim bestu á landinu. 

IMG_2514

Nokkrar blómamyndir.

IMG_2515

Pernilla mín.

IMG_2516

Og blómin í kúlunni.

IMG_2517

Þessi ilmar dásamlega.

IMG_2518

En það er ekki bara hægt að nýta sér kúluna innan, heldur líka utanhúss, margnota hús.

IMG_2519

Það er nefnilega líka gaman að renna sér niður.

IMG_2520

Og þá er mikið hlegið og skemmt sér.

IMG_2521

Já það er ýmislegt hægt að skemmta sér við þegar maður er ungur.

IMG_2526

Og hvað er betra fyrir sálina en að heyra glaðværan hlátur heilbrigðra unglinga sem leika sér í góðu veðri eins og þau börn sem þau eiga að fá að vera sem lengst.

IMG_2533

Erum við ef til vill stödd í norskum firði?  Nei í kúlunni.

IMG_2535

Ömmubörn.

IMG_2536

Að njóta sín.

IMG_2537

Beðið eftir grilli pulsum og hamborgurum.

IMG_2550

Daníel og Úlfur eru bestu vinir.......  oftast nær.

IMG_2555

Og fyrir ísfirðingana mína nær og fjær sést hvernig snjórinn hopar og úthaginn grænkar eftir eina góða rigningardembu. En við þurfum fleiri.

 

Að lokum þarf ég að spyrja einhverja sérfræðinga sem ef til vill kíkja hér við hvað er þetta eiginlegaL

IMG_2473

ég bað krakkana að týna fyrir mig fífla út túninu og þau komu með marga svona, þetta er mjög einkennilegt, eins og þeir væru hvor innan í öðrum.  Hvað getur orsakað svona?

IMG_2474

Getur þetta verið einskonar mengun?

IMG_2485

ég hef aldrei séð þetta áður, stönglarnir voru líka allir aflagaðir.

IMG_2489

er ástæða til að rannsaka þetta betur?

IMG_2493

ég hef satt að segja dálitlar áhyggjur út af þessu.

IMG_2495

Stönglarnir eru líka svona aflagaðir.

Svo er annað sem ég hef líka áhyggjur af en það er skordýr sem ég hef ekki séð áður.

IMG_2508

Líkist helst kóngulóm mjög smáum, sitja í hnapp og vefa sér vef utan um plöntuna.  Er þetta stökkbreyttur spunamaur eða hvað?

IMG_2511

eins og er hef ég bara fundið þetta á tveimur plöntum, en ef þetta breiðist út, verð ég að gera eitthvað róttækt.  Hvað er þetta og hvernig er best að eyða þessu.

IMG_25110

ef einhver veit svarið, vinsamlega segið mér hvað þetta er og hvernig best sé að fyrirbyggja að það breiðist út.

 

 

 


Bloggfærslur 12. júní 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband