Meiri pælingar um pólitík og allt þar á milli.

Ég vil nú eiginlega byrja á að biðja ykkur bloggfélaga fyrirgefningar á hver lítinn tíma ég hef núna fyrir blogg.  Ég er á kafi í vinnu, bæði hjá bæjarfélaginu mínu og svo að opna garðplöntustöðina.  En svo er ég líka í smá sálarkrýsu, þarf að berjast við ælu á morgnanna og sef illa á næturna.  Vakna yfirleitt um hálf fjögur og þarf að fara í vinnu kl. sjö.  Það er samt önnur saga.  Sennilega taugarnar... eða þannig. Devil Það er margt sem mæðir á.

En áfram með tilfinningar.   Mér finnst stundum eins og það sé alltaf verið að plata okkur almenning, annað hvort með því að leyna okkur því sem er að gerast; lesist hrunið og því sem þar fylgdi, þöggunina og alles.  Síðan mottóið hennar Jóhönnu um að menn ættu ekki að gagnrýna opinberlega samstarfsmenn sína.  Allt á að vera leyndó.. til gagns hverjum? ekki almenningi allavega. 

Það rifjaðist upp fyrir mér í dag, nákvæmlega daginn fyrir kosningar síðast, þ.e. sveitastjórnarkosningar fyrir fjórum árum, að Í-listanum sem er samtök þriggja flokka, Frjálslynda flokksins, Vinstri grænna og Samfylkingar, var spáð sigri í kosningunum.  Það greip um sig einhver örvænting hjá Sjálfstæðismönnum, og það sem mér þótti hvað verst var að upplifa að nokkrar konur þaðan, flottar skeleggar konur, sem ég leit upp til og treysti, og þar af allavega ein vinkona mín létu einhvernvegin hafa sig í að setjast niður á Langa Manga kaffihúsi og hringja út til fólksins á svæðinu, ef Í-listinn kemst að þá verður Langa Manga lokað, ef Ílistinn kemst að verður ekki malbikað meira á Hlíðarveginum só and só.  Þegar ég heyrði um þessar upphringingar eftir kosningar, þar sem Ílistinn fékk ekki það sem spáð var, heldur hélt meirihlutinn sínu, þá varð ég döpur.  Einhvernveginn held ég að ég myndi ekki gera svona.  Og ég hef oft hugsað um það síðan, af hverju lætur fólk hafa sig út í svona hluti?  Gott fólk og vel þenkjandi, sem einhvernveginn sogast inn í hringiðu stjórnmálanna og lætur hafa sig í svona svikamyllu?  Af hverju getum við ekki bara treyst á málefnastöðu okkar og leyft fólki að vega og meta verkin sem gerð hafa verið?  Getur verið að verkin hafi ekki sagt alla söguna?

Verkin sýna merkin segir einhversstaðar.  Og ef fólk hefur staðið vel við sín kosningaloforð og gert það besta fyrir bæinn sinn, þá þarf einfaldlega ekki að beita svona bolabrögðum.  Og það er lítillækkandi fyrir viðkomandi í þessu tilfelli góðar manneskjur sem létu hafa sig út í svona leirslag.

Í svona litlu samfélagi þá fréttist hvort sem er allt.  Meira að segja þegar einn af forystusauðum í einum flokki, mætir á sellufund hjá öðrum.  Þá kjamsa þorpararnir á því.   Enginn spyr opinberlega, og því fær viðkomandi ekki að tjá sig um hvað hann var að gera á neyðarfundi annars flokks?

Ég er svona að fabúlera um þetta, því mér finnst stundum eins og oft sé verið að fela sannleikann fyrir okkur almenningi.  Leika eitthvað númer, reyna að hafa andstæðinginn undir og koma að allskonar sögum sem erfitt er að átta sig á.  Þetta sést greinilega í Borginni, þar sem fjórflokkurinn reynir allt hvað hann getur að kasta rýrð á Besta flokkinn, af því að hann ógnar fjórflokknum. Ég hef séð í DV af því ég kaupi blaðið reglulega að þeir hvað eftir annað koma sér hjá því að nefna Frjálslynda flokkinn á nafn, af hverju Reynir minn?

Hanna Birna er eins og hún sé ein í framboði fyrir eitthvað allt annað en Sjálfstæðisflokkinn, því félagar hennar eru meira eða minna í krísu út af mútufé.  Hún sjálf er á kafi í allskonar plottum.

Á Ísafirði er nýtt framboð sem kallar sig Kommonista.  Þetta er ungt fólk sem gefið hefur kost á sér til bæjarstjórnar.  Það hefur ekki farið leynt undanfarið sögusagnir um að litil frændi minn Gunnar Atli sé potturinn og pannan í þessum lista.  Það var svo birt opinberlega í DV, ekki bara frétt heldur tilvísun í bréfaskriftir milli hans og annara í þessum nýja lista.  Ég get vel skilið að ungt fólk geri skyssur, reynslulítið fólk sem vill koma sínum málum á framfæri, hugsar ekki alltaf rökrétt, það er réttur unga fólksins okkar. 

Málið er að þessi flotti frændi minn er jafnframt formaður í Félagi ungra sjálfstæðismanna, svo málið er heldur pínlegt.  Nú get ég alveg skilið að honum hafi dottið þettað í hug, og jafnvel farið að stað með það.  En þá átti hann bara strax að segja að þetta hefði verið hugmynd sem hann hefði fengið, en síðan hætt við.  Um leið og fólk fer að reyna að skrökva sig út úr hlutunum fer tortryggnin af stað. Og sérstaklega á þessum tímum, þegar stuðningur við pólitíska flokka er í sögulegu lágmarki, sérstaklega fjórflokksins.

Þessi frétt kom í DV, og var svo birt í Skutli, blaði Samfylkingarinnar á Ísafirði.  Þegar fólk fer svo að væna Í-listann um sorahátt, þá segi ég;  Það er ekkert rangt við það að segja frá svona frétt, þar sem vitnað er í umræður viðkomandi.  Þetta gerðist þegar Jónína Ben var að plotta með Styrmi, og þetta er líka víða í rannsóknarskýrslunni. Stundum þarf að vitna í gögn, ef talið er að þarna sé eitthvað sem verið er að reyna að fela.

Nú getur vel verið að það sé satt sem Kommonistar segja að þeir standi fyrir sínu og Gunnar Atli sé bara vinur þeirra.  En þá hefði verið nær að segja strax frá því að hann hafi staðið fyrir þessu í upphafi og síðan hætt við. Það er nefnilega svo að sannleikurinn er alltaf sagna bestur.  Og ég þekki strákinn ágætlega og veit að hann er góður drengur.  Unggæðisháttur getur leitt alla af réttri leið, en það er alltaf þessi leið út að viðurkenna strax hvernig liggur í málunum.  En ekki bara að ráðast á og skjóta sendisveininn. Sérstaklega er þetta viðkvæmt í litlu samfélagi þar sem allir þekkja alla, og þar sem fréttirnar berast fljótt og vel, það er alltaf einhver sem uppgötvar og segir frá.  Það er eiginlega kosturinn við lítil samfélög að það er erfitt að leyna sannleikanum.

Svo við ég bara segja að ég óska öllum hins besta á morgun, ég mun ljá Í- listanum mitt atkvæði, ég hef starfað mikið með Frjálslyndaflokknum og veit að þar fer heiðarlegt og gott fólk, og ég hef líka kynnst flestum sem eru á listanum af góðu einu.  Fólk sem hefur réttlætið að leiðarljósi.  Ég held í raun og veru að flestir vilji það, en einhvernveginn dragast menn inn í eitthvert drullusvað sem þeir ráða ekki við sjálfir.  Það er sorglegt, þegar eiginhagsmunir eða hagsmunir flokksins fara að taka yfir heilbrigða skynsemi. Því ég hef trú á því að innst inni vilji allir vel.

IMG_2314

Hér eru Framsóknarmenn að grilla. 

IMG_2316

Á Silfurtorgi var margt um manninn, enda var Ílistinn að grilla, og kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er þarna rétt hjá, og margir þeirra sátu á torginu og nutu veitinga og að spjalla við fólk.

IMG_2321

Og eins og alltaf í kosningum gefur Frjálslyndi flokkurinn fisk í soðið.  Hér er Gauji stóri þessi elska að fá steinbít.

IMG_2322

Mummi og Gylfi og fleiri í Samfylkingu og vinstri grænum að grilla pylsur.

IMG_2325

Hér eru svo Frjálslyndir; synir Adda Kitta Gau að gefa fisk, ýsu, þorsk og steinbít.  Bæjarbúar kunna vel að meta þetta í kosningum.

IMG_2326

Jóna Ben og Arna Lára VG og S að gefa fólki pylsur.  Já svona er þetta fyrir kosningar.  Megi sá besti vinna, og ég meina það.  Ég hef trú á mínu fólki en ég er auðvitað hlutdræg. InLove

IMG_2318

Gluggarnir hjá Ílistanum eru svona eins og frambjóðendurnir og fólkið í kring um þau, glaðlegir og yndælir.

IMG_2319

Fullir af bjartsýni og vori, eins og sjá má.

IMG_2254

Þetta er auðvitað svona algjör hanaslagur!!!

IMG_2260

Hver kíkir niður af sínum haug og svona!!

IMG_2261

En lífið er ekki eintóm sæla, það eru úlfar á ferli.

IMG_2264

Maður þarf auðvitað alltaf að vera á verði fyrir rándýrum.

IMG_2269

Ef maður ofmetnast ekki, heldur er varkár og heiðarlegur er ekkert að óttast.

IMG_2281

En stundum hoppum við of hátt, og dramb er falli næst.  Auðmýkt gefst alltaf betur þegar til lengri tíma er litið.

IMG_2285

Og við vitum aldrei hvað hættan liggur í leyni. Sérstaklega ekki í pólitík.

IMG_2297

En það er samt alltaf einhver sem passar upp á okkur ekki satt?

IMG_2288

Ég vona að vinkona mín og hennar vinir sitji ekki á Langa Manga við að hringja út og segja... Ef Ílistin kemst að.... það er bara einhvernveginn fyrir neðan þeirra virðingu að mínu mati.  Því þetta eru flottar konur og skörungar.

IMG_2299

Elskuleg vinkona mín Þórunn Matthíasdóttir gaf sér tíma í vikunni til að taka sér frí frá pólitíkinni og koma í heimsókn, við áttum góðar stundir saman í kúlu.

IMG_2300

Og svo er ég búin að opna Garðplöntusöluna, og hér er vorið.  Salan er opin frá kl. 9 á morgnanna til 6 virka daga og 2 - 4 á laugardögum.  Á sunnudögum þarf ég að eiga frí.  Kissing

IMG_2304

Verð að segja það að við ákváðum í vor hjónin út af efnahagsástandinu að ráða ekki starfsfólk í priklun eða umönnun, heldur gerðum við þetta allt sjálf í aukavinnu eftir aðalvinnuna.  það hefur verið mikið álag en skemmtilegt.

IMG_2310

Við erum líka með mikið úrval af kryddjurtum og grænmeti.

IMG_2312

Auðvitað þurftum við að minnka magnið af plöntum líka út af efnahagsástandinu, svona er þetta bara.

IMG_2311

Og þetta er Ástrún sem ætlar að vera hjá mér í sumar og selja fólki blómin.  Hún er dugleg stúlka.

IMG_2308

Get ekki stillt mig um að sýna ykkur drottningar blómaskálans þetta er Nína.

IMG_2309

Pernille í fullum blóma.

Útlendingarnir farnir að koma og fá að mynda húsið og fá að fara inn í garðskálann og mynda.  Þetta er bara það sem er venjan hér á þessum bænum. 

Eigið góða helgin elskuleg, og munið að atkvæði ykkar skipta máli, ekki bara kjósa eitthvað af því að þið og ykkar ættbálkur hafið alltaf kosið það sama og alls ekki sitja heima, skilið frekar auðu.  Þorið að takast á við nýja tíma og nýtt fólk.  Ég get lofað ykkur að þau ellefu ár sem ég hef unnið náið með Frjálslynda flokknum þá hefur hann alltaf reynst verður sinna stefnumála og á mjög góða stefnuskrá. Heiðarlegt og gott fólk sem þar er innanbúðar, þó við höfum vissulega reynt eins og mörg ný framboð að fá til okkar fólk sem var beinlínis að hugsa um sinn eigin frama.  Þá bjargaði góða stefnuskráin okkar okkur út úr þeim vandræðum, svo nú er friður á okkar vígstöðvum. 

við Frjálslynd í Ísafjarðabæ höfum bundið trúss okkar við Vinstri Græna og Samfylkingu í bæjarfélagianu í þessum kosningum, höfum starfað með þeim í fjögur ár og það fólk sem hér bíður fram í nafni Ílistans er fólk sem hægt er að treysta fyrir málefnum bæjarins.

Megi það afl sem best er að því komið sigra á morgun.  Ég óska samt öllum heilla og segi bara ég mun setja mitt atkvæði á Í fyrir Ísafjörð.

Eigið góða helgi mín kæru.

 


Bloggfærslur 28. maí 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband