Til hamingju með afmælið Sóley Ebba mín.

Ég veit ekki hve mörg ár eru síðan hún kom inn í fjölskylduna, en ég hafði fylgst með móður hennar lengi.  Efttir því sem ég kynntist henni betur, því vænna þótti mér um þessa hæfileikaríku fallegu stelpu.

Ferd í fermingu Arons. 194

Og nú á hún 13 ára afmæli orðin táningur eins og Úlfurinn og Júlíana Lind.  Táningur, stórt skref.

Börn og hundur

Í Fljótavíkinni.

Ferd í fermingu Arons. 181

Heitapottinum hjá ömmu.

IMG_0884

Með Júliönu í Kúlunni.

IMG_0651

 

IMG_2785

Með mömmu sinni og Evítu Cesil á leið til Fljótavíkur.

IMG_2912

Þar var hægt að una sér mikið. 

IMG_4167

Hún hefur einstaka músikhæfileika, og getur spilað á nánast hvað sem er.

IMG_4243

Með mömmu sinni og Símoni Degi.  Þær mæðgur hafa alltaf verið nánar, enda fékk hún aldrei að hitta pabba sinn, þar sem hann var dáinn áður en hún fæddist.  Það er erfitt að bera.

IMG_4665

Á tónleikum þegar hún var valin ásamt þremur öðrum úr tónlistarskóla Ísafjarðar til að taka þátt í píanókeppni.

IMG_5478

Að óska sér út af fjögurra laufa smára.

IMG_6280

Mömmuknús.

Innilega til hamingju með afmælið Sóley Ebba mín.


Sonur minn lifir.

Undanfarið hefur mér liðið undarlega.  Það er svona ljúfsár tilfinning, bæði sorg en samt einhver innri gleði líka.  Gleðin er vegna þess að ég veit að sonur minn lifir.  Hann lifir en er farin þangað sem ég get ekki heimsótt hann, en hann kemur til mín.  Ég bæði finn það sjálf og svo fæ ég líka kveðju frá honum gegnum aðra.  Það þykir mér vænt um. 

Þetta byrjaði fyrir alvöru þegar mig dreymdi drauminn sem var fyrirboði slyssins á litla barnabarninu mínu honum Símoni Dag og skilaboðin frá Júlla mínum um aloe vera plöntuna og notkun hennar á brunasár.  Sagði frá því hér: http://asthildurcesil.blog.is/admin/blog/?entry_id=1033348

Ég hef oft fundið fyrir nálægð hans og veit að honum líður ekki vel yfir sorg minni.  En við getum hvorugt gert neitt í því.  Það verður bara að hafa sinn gang.  En mér líður vel með að vita af honum, og vita að honum líður vel og að hann lifir fallegu lífi við að hjálpa öðrum, rétt eins og hann gerði meðan hann var hér.

En síðan mig dreymdi þennan draum, hef ég einhvernveginn orðið vissari í minni sök með nálægð hans.  Og þess vegna er ég glöð inn í mér.  Það er gleði sem er eins og ljós.  Skín inn í mér og lætur mér líða betur.  Ég hitti konu í gær sem flutti mér skilaboð frá honum og staðfesti reyndar það sem ég sjálf vissi innst inni. 

Við ræddum líka um það hvernig aðstandendur sem farnir eru safnast saman til að taka á móti þeim sem fer.  Þetta hef ég upplifað nokkrum sinnum hjá þeim sem farnir eru.  Þau sjá ástvini og eru jafnvel farin að tala til þeirra rétt fyrir andlátið, eins og þau séu á mörkunum og viti varla hvoru meginn þau eru. 

Afi minn heitinn sá þetta vel, þegar hann fór í jarðarfarir, hann sagði mér oft frá því, hann sá kirkjugestina, prestinn og kistuna, en þar handan við voru þeir ættingjar sem tóku á móti þeim sem var að skipta um stað.  Hann sagði mér líka að gömlu konurnar í sveitinni komu í langan tíma í kirkju og jarðarfarir eftir að þær yfirgáfu þessa jarðvist.  Þær vor fyrst eins og þær voru upprunalega, en svo smám saman þynntust þær út, þar til þær sáust varla lengur og hurfu svo alveg.  Þá voru skiptin orðin raunveruleg, og þær sáttar við að fara þangað sem þeim var ætla.

Júlli minn þurfti ekki svona langan tíma, hann var kallaður í sérverkefni.

Yngsti sonur minn Skafti er að fara til Noregs, þá eru þau öll farin til útlanda börnin mín, nema Rolando.

Ég veit ekki hvort ég get heimsótt þau eins og ástandið er í dag.  En ég veit af þeim og get fylgst með þeim á netinu og í gegnum símann.  Með Júlla minn þarf ég innsæið til að hafa samband.  Það er í sjálfu sér ekkert óraunhæfara en síminn og netið.  En maður þarf að hafa trú á því að skilaboðin og tilfinningin sé rétt.  Og þannig er það með mig.   Það er gott að geta sagt upphátt og trúað því sjálf, sonur minn lifir.  Heart

IMG_3549


Bloggfærslur 4. apríl 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2023321

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband