Hátíðarundirbúningur og svo hitt og þetta frá mér.

Ég hef ekki haft tíma til að fara blogghringinn minn elskuleg, er á kafi í að grufla í mold og bara sinna mínu andlega atgerfi, það reynist stundum heilmikil vinna get ég sagt ykkur. 

En hér eru nokkrar myndir frá því í dag.

IMG_1650

Horfast í augu grámyglur tvær, sú skal vera músin sem mærir, kötturinn sem sig hrærir , fíflið sem fyrr hlær og skrímslið sem skína lætur í tennurnar Nei ég er búin að gleyma þulunni. En flottir eru þeir.

IMG_1651

Áfram heldur þrautinn, þú skalt tapa flónið þitt.

IMG_1653

Sagði þér það, ég er stærri og sterkari.

IMG_1654

ég get sagt ykkur að hér er allt endurnýtt, gamlir snjóskaflar samanmokaðir verða fínustu rennibrautir.

IMG_1655

Hef grun um að þetta sé í boði annað hvort Sólborgar eða Eyrarskjóls leikskólanna og fóstrurnar hafi fundið þessa frábæru leið til að skemmta ungunum sínum.

IMG_1656

Og þau skemmta sér vel börnin.

IMG_1658

Hér er verið að flytja snjó niður í miðbæ, til að setja skíðahátíðina, en svo var líka fluttur snjór upp á skíðasvæði, þannig að snjórinn er nýttur og endurnýttur allt eftir behag, geri aðrir betur.

IMG_1659

Já hér skiptir allt um stöðu eftir því hvað þarf að nýta í það skiptið.  Hér er bara hugsað í lausnum, frábært að gjörnýta alla möguleika.  Bílarnir aka bara annarsstaðar.

IMG_1661

Hér getur að líta út um bæjarhlaðið hjá mér hvar Aldrei fór ég suður hátíðin verður.

IMG_1663

Fánarnir blakta við hún.

IMG_1664

Skíðavikufánin og hinn íslenski vísa veginn inn í Tungudal og Seljalandsdal, dalina tvo.

IMG_1666

Það er ekki mikill snjór en eins og sjá má, er nægur snjór í skíðabrautunum, bæði hefur verið ekið snjó úr miðbænum og svo framleiddur snjór og svo sendi Guð okkur smá líka svona yfirlag til að fullkomna verkiðTounge Málið er að þegar ég sá um skíðavikuna, þá galdraði ég bara snjóinn, þurfti ekki að keyra hann eitt eða neitt hann koma bara ofan af himinum.

IMG_1668

Séð yfir Ísafjörð ofan af Tungudal.

IMG_1669

Og hér er verið að undirbúa Aldrei fór ég suður, sjálfboðaliðar að reisa sviðið.

IMG_1671

Málið er að þetta risabatterí er að mestu unnið af sjálfboðaliðum, og allir gefa vinnuna sína, líka þeir sem koma fram, þetta byggist allt á samvinnu frá smæsta verkefni til þess stærsta. Einungis þannig getur þetta gengið.

IMG_1673

Eins og sjá má er það nauðsynlegasta komið líka þ.e. klósettinn LoL

IMG_1675

Hér er svo pókermót í fullum gangi.  Hér er keppt um Júllabikarinn til heiðurs syni mínum, sem var liðtækur pókerspilari.

IMG_1678

einhver þessara flottu stráka fara heim með bikarinn sem hér er í forgrunni.  En skyldu engar stelpur spila póker?

IMG_1679

Snæfjallaströndin hulin dulúð íslenskrar náttúru.

IMG_1681

Annar snjóhaugur, önnur börn. Hér er allt nýtt sér til skemmtunnar.

IMG_1682

Meira að segja bæjarbrekkan sett undir keppni.  Ég er svo ánægð með hugmynda auðgi okkar unga fólks sem sér um skíðavikuna.  Frábært aldeilis.

IMG_1683

Eins og sjá má hefur snjó verið komið fyrir í bæjarbrekkunni og þar fór fram brunkeppni held ég.

IMG_1684

Og allt þokast í rétta átt í Aldrei fór ég suður, það má skoða prógrammið á aldrei.is þar sem hægt er að sjá hverjir koma fram og hvenær, nema allt getur þetta skolast til, eftir því sem aðalgúrúinn segir Bjarki Slikk.  En vonandi gengur þetta allt upp.  Því mikil vinna liggur hér að baki.  Gamanið byrjar klukkan sex annað kvöld.

IMG_1685

Hér eru hetjurnar sem voru að vinna í dag á fulli við undirbúninginn.

IMG_1687

Og veðrið fallegt eins og sjá má.

IMG_1688

Vorglaðningur í kúlunni.

IMG_1689

Og með kvöldsólina í baksýn óska ég ykkur gleðilegra Páska.  Hér er allt tilbúið til að taka á móti gestum og gangandi, gleði ríkin og gömul andlit í sjónmáli.  Þetta er yndæll tími.  Ég vildi ekki missa af þessu.  Eigið góða páska. Heart


Bloggfærslur 1. apríl 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2023321

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband