22.3.2010 | 15:16
Draumur - eða skilaboð að handan?
Ég brá mér örstutt af bæ og fór á landsþing Frjálslyndaflokksins. Það var virkilega ánægjulegur tími, og gott andrúmsloft. Loksins er sami gamli friðurinn og var í árdaga flokksins, sömu gömlu tryggu andlitin og hlýjan og væntumþykjan sem var, en einnig ný andlit og fersk, og svo gömlu félagarnir sem höfðu flúið lætin og erjurnar sem voru orðin nánast óþolandi sem eru að týnast inn aftur.
Skemmtilegast var að heyra að eftir meira en áratug, stendur málefnasamningurinn eins og klettur. Svo vel var staðið að gerð hans fyrstu árin. Sumt hefur áunnist, þ.e. aðrir flokkar hafa tekið að hluta til undir þau sjónarmið sem koma þar fram, önnur bíða. Það hefði betur verið hlustað á okkur í meira mæli. Guðjón Arnar sagði líka í sinni lokaræðu að hann væri fastur fyrir, og ef menn kæmu nýjir inn í flokkinn og vildu svo fara að breyta um kúrs, yrðu þeir að yfirgefa flokkinn. Stefnan og málefnin héldu. Málefnasamningur sem grasrótin hefur unnið og skrifað upp á blívur. Auðvitað þarf alltaf að vera að skoða og bæta inn í eða breyta smávegis, þar sem tímarnir breytast, en svo sannarlega stendur megin kjarni okkar föstum fótum. En því verður ekki breytt nema á landsþingi með meirihluta atkvæða. hægt er að skoða hann á xf.is
Ég á eftir að koma hér með myndir og upplýsingar um fundinn okkar, en það verður ekki í dag.
Við hittumst þrjár dömur á Kaffi Hressó á sunnudaginn og ræddum landsins gagn og nauðsynjar. Við vorum fulltrúar Samfylkingarinnar, Frjálslyndaflokksins og Borgarahreyfingarinnar. Eftir þær umræður er ég komin á þá skoðun að við konurnar, þessa venjulegu og svo mjúku mennirnir eigi að fá stjórnvölin í hendur og fá að leysa úr málum landsmanna. Við höfum réttu sýnina og kunnum að tala saman og vinna saman. En það er bara alltaf þessi eiginhagsmunastefna og pot sem er að fara með allt til fjandans.
Þess vegna ber ég von í brjósti um aþingi götunnar, það er bara fólk eins og ég og fleiri sem þar eru að vinna þarft og gott starf.
En ég ætla að segja ykkur núna dálítið sem bar fyrir mig, þessa helgi, og mér þykir afar merkilegt.
Ég skrifaði þetta upp, svo ég gleymdi ekki smáatriðunum.
Aðfararnótt laugardagsins 20. mars dreymir mig draum sem var svo erfiður að ég vaknaði upp og fann hvernig það hríslaðist óttatilfinning um mig alla. Var ekki svefnsamt eftir það.
En mig dreymir að ég send fyrir ofan og innan æskuheimili mitt Vinaminni. Það var snjór yfir, snjófjúk og dimmt. Þá sé ég flugvél koma út úr kófinu, og fer sína vanalegu leið inn fjörðinn. Ég hugsa samt og veit að það er ekki kveikt á ljósabúnaðinum á vellinum. Svo flugvélin fer aftur.
Skömmu síðar birtist hún aftur, en nú er líka við hlið hennar önnur flugvél, þyrla. Ég horfi á þessar tvær flugvélar fljúga yfir mig og inn fjörðinn, en ég sé að þetta muni ekki enda vel, þær eru of nálægt hvor annarri loks fer svo að litla vélin (þyrlan) rekst utan í þá stærri og þeytist upp í fjallshlíðina og það kemur heilmikið bál. Ég missti sjónar af hinni flugvélinni, en veit samt að hún hefur flogið áfram, frussað öllu bensíninu úr og yfir bæ sem stendur þarna Hafrafell. Ég hugsa með mér að það þurfi að aðvara fólkið, því ef einhver neisti verði, þá muni húsið standa í björtu báli vegna bensínsins. Ég vissi ekki símanúmer fjölskyldunnar, en hringi í 112 og bið um að fólkið sé vakið.
Ég vakna þarna upp og líður ansi illa.
Ég sagði fólki þennan draum á laugardagsmorguninn, og ein þeirra spyr mig hvort ég sé berdreymin. Ég segi að mig dreymi stundum fyrir ýmsu, en það sé yfirleitt tákn sem ég skilji. Segi þeim frá fiskabúrunum sem mig dreymir oftast undan atburðum, og fer eftir ástandi fiskana og búrsins hvort hann er fyrir góðu eða slæmu.
Um kvöldmatarleytið er svo hringt í mig, það var vinkona tengdadóttur minnar sem býr í Noregi. Hún segir mér að yngsta barnið þeirra sonar míns hafi brennst illa og hafi verið fluttur með þyrlu á sjúkrahús og sé haldið sofandi. Það sé ekki vitað hvort hér sé um að ræða tveggja eða þriggja stigs bruna. Fannst mér sem þarna væri einhver vísbending. Ég náði svo í son minn um kvöldið í síma, og fékk þetta staðfest. Ég spurði hann hvort hann hefði brennst eitthvað líka, þar sem hann sat með barnið þegar þetta gerðist. Nei sagði hann ég brenndist ekkert.
En það var svo aðfararnótt sunnudagsins sem ég fékk samhengi í málið. Það var einhvern veginn komið til mín, ýtt inn í huga minn atburði sem ég var búin að gleyma. En sem sýndi mér svart á hvítu að hér var verið að koma til mín skilaboðum.
En það gerðist fyrir nokkrum árum að við fjölskyldan voru stödd í Fljótavík, þangað sem við förum oftast einu sinni á ári. Júlíus sonur minn var þarna líka, og eitt kvöldið þá var kveiktur varðeldur, og hann ætlaði að sprella, tók upp í sig flugvélabensín og ætlaði að frussa því út úr sér, og leika eldgleypi. Það vildi ekki betur til en svo að það kviknaði í bensíninu í andlitið á honum og hann skaðbrenndist. Það vildi honum til að þarna var stödd stúlka, sem var gift lækni á Akureyri. Það er sími á einum bæ þarna, sem var óvenjulegt á þeim tíma, en hún gat hringt í manninn sinn norður og fengið upplýst hvað bæri að gera gegnum símann. Hún og móðir hennar vöktu svo alla nóttina yfir syni mínum og kældu andlit hans. Það kom svo flugvél morguninn eftir og sótti hann og hann fór á sjúkrahúsið. Þar fékk hann að vita að andlit hans væri tveggja til þriggja stigs bruna, og hann mætti búast við að fá ör. En hann og yngsti bróðir hans Skafti, fóru heim og ég átti stóra aloe vera plöntu, sem þeir skáru niður og suðu úr mjöð. Þetta bar hann svo á andlit sitt stanslaust. Eftir viku, þegar hann fór í eftirlit á sjúkrahúsið var andlit hans gróið, og ekkert ör að sjá.
Þegar þetta rifjaðist upp fyrir mér, skildi ég drauminn. Þarna voru allar vísbendingarnar komnar.
Stóra og litla flugvélin, eldurinn, meira að segja frussið með flugvélabensínið, síminn og fyrst og síðast, plantan sem læknaði hann svo vel.
Það eina sem ég var hugsi yfir var að mig dreymir þetta aðfararnótt laugardagsins, en barnið brennist ekki fyrr en á hádegi daginn eftir. Það er eins og þetta hafi verið vitað fyrirfram og gerðar ráðstafanir til að koma skilaboðunum áfram til mín. Ég þykist sjálf sjá puttaför sonar míns á þessu. Og er viss um að hann var þarna að senda skilaboð. Og þegar ég kveikti ekki á perunni, gerði hann aðra tilraun. Með því að koma atvikinu inn í huga minn í svefni.
Ég er sannfærð um að ef eldri sonur minn fer eftir þessum ráðum, mun barninu batna fyrr og vera öralaus.
Eigið góðan dag elskurnar. Og það er gott að vera komin heim aftur. Tíminn flýgur frá manni þegar svona er. Og enginn tími gefst til neins. Það er bara vinna og útréttingar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bloggfærslur 22. mars 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2023320
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar