2.3.2010 | 17:57
Stöndum saman íslendingar.
Já það er málið. Þetta er eins og í þorskastríðinu og baráttunni við dani á sínum tíma. Loksins tekur þjóðin sjálf af skarið og dregur mörkin. Og nákvæmlega á þeim tímapunkti sem þráinn Bertelsson segir að stór hluti þjóðarinnar sé fífl.
Ég hef stundum sagt að við séum kjánar og kunnum ekki fótum okkar forráð. En núna er ég stolt af mínu fólki. Loksins göngum við í takt og erum sem þjóð, stöndum upp og segjum hvað okkur finnst, við gerum það ekki endilega á Austurvelli, við gerum það heima við tölvuna. Við gerum það í kaupféllaginu, við gerum það í saumaklúbbunum, og við gerum það á söngæfingum og í saunaklefanum.
En við erum að komast að samkomulagi um að nú sé eiginlega nóg komið. Reyndar vorkenni ég dálítið Jóhönnu og Steingrími, ég held að þau hafi viljað vel. En einhversstaðar á leiðinni misstu þau af lestinni og misstu af þjóðinni. Aðrir í stjórninni hafa bara ekki komið neinstaðaðar nálægt nema Össur svona smá, sem sendi hvuttana sína til að tala við BNA, og hafði gleymt að hann hafði sjálfur móðgað þá alveg rosalega með afturköllun á orðu, sem hann hefur reyndar aldrei útskýrt af hverju hann gerði.
En áfram íslenska þjóð.
Öxar við ána, árdax í ljóma,
upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.
Skjótum upp fána, skært lúðrar hljóma,
skundum á þingvöll og treystum vor heit.
Fram, fram, aldrei að víkja.
Fram, fram, bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðarböndum,
tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.
![]() |
Sama aðferð og í þorskastríðunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
2.3.2010 | 11:57
Bretar að snappa.
Það er að koma æ betur í ljós það sem vinir mínir bæði í Þýskalandi, Austurrík og Danmörku hafa verið að segja. Evrópusambandið er skíthrætt við þessa litlu þjóð í ballarhafi. Nú er hótað sem aldrei fyrr. Hollendingar sitja eftir sárir og móðir, rúnir orku til að ljúka málinu.
Hér eykst aftur á móti andstaðan við óréttlætið og þvinganirnar. Þrátt fyrir endalausan áróður ríkisstjórnarinnar.
Gætið að hvað þessi maður segir, John McFall, þetta hafi afleiðingar fyrir alla Evrópu, kosning hér upp á Íslandi. Þeir vita sem er að á eftir kemur þeirra eigið fólk, og að spillingin mun vella upp á yfirborðið á fleiri stöðum en hér.
Ég las einhversstaðar í gær að menn væru að BÍÐA MEÐ AÐ SENDA ÚT KOSNINGAGÖGNI, TIL AÐ SJÁ HVORT VERÐI AF ATKVÆÐAGREIÐSLUNNI: Hverslags ósvífni er þetta eiginlega? Eru menn algjörlega fyrrtir veruleikanum. En hann er sá að hér verður kosið eftir nokkra daga. Þið komist ekki hjá því kæru stjórnmálamenn, því ég get lofað ykkur því að meirihluti landsmanna mun aldrei samþykkja að gengi sé þvert á bak vilja meirihluta þjóðarinnar, og það er ekki verið að tala um 51% það er verið að tala um yfir 70% og fer talan hækkandi eftir því sem nær dregur.
Fólk sem áður var meðfylgjandi ESB inngöngu hefur snúist á sveif þeirra sem ekki vilja í í töluverðum mæli. Þrátt fyrir mikinn áróður og allskonar leigupenna, bæði hérlendis og erlendis til að hræða úr okkur líftóruna, séu með flesta miðla á sínu bandi. Það dugar ekki til.
Við viljum fá að kjósa. Og Jóhanna, þú spyrð kjósa um hvað? 'Eg skal segja þér hvað ég vil kjósa um; 'Eg vil segja með þessu atkvæði mínu að ég hef algjöra skömm á framkomu ykkar í þessu Icesavemáli.
Þið getið sem best haldið áfram að stjórna landinu, ef ekki er hægt að setja á neðarstjórn, því þrátt fyrir allt, eruð þð skárri en D og B. En þið verðið að fara að opna augu og eyru fyrir því sem fólkið í landinu er að segja ykkur.
Hætti þessu ESB brölti og einbeitið ykkur að vanda fólksins í landinu. Frasinn um að moka flórinn, að lögð sé nótt við dag í að vinna að málum, eða þetta sé vandi síðust ríkisstjórna, duga bara ekki lengur sorrý það er komið meira en eitt og hálft ár.
Snúið ykkur að þvi sem brennur á fólki og látið þessi hugðarmál ykkar forystumannanna í glatkistuna í bili. Icesave og ESB eru ekki á dagskrá hjá þjóðinni. Það er aftur á móti skjaldborgin um heimilin og þjóðina, skattar sem eru að slig almenning sérstaklega öryrkja og aldraða, og slík mál. Þau mega einfaldlega ekki bíða lengur. Ef þið getið ekki komið ykkur í þann gírinn, ber ykkur að segja af ykkur og leyfa öðrum að komst að.
Ég geri mér grein fyrir að enginn núverandi stjórnmálaflokkur vill taka við þjóðarbúinu, þá verður að skipa utanþingsstjórn, og í hana þarf að velja vel. Ef það á að voga sér að skipa gamla afdankaða pólitíkusa eins og Þorstein Pálsson eins og heyrst hefur, þá springur það allt saman framan í andlitin á þeim sem það reyna. Við erum búin að fá nóg af gömlu spillingarliði, og öllu sem það inniber.
![]() |
McFall: Telur að lausn verði að nást |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggfærslur 2. mars 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 2023321
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar