17.3.2010 | 20:36
Smákúlublogg.
Það er greinilega komið vor í bæði mannskap og dýr hér fyrir vestan. Lóan er komin líka.
Það eru líka falleg bros sem ylja.
Og framtíðin fríð.
Snúðar og snældur.
Ungviði sem leikur sér.
Hvar er hún/hann???
Amma ég er hrædd við kisu, svona í návígi.
Snúður er mjög gáfaður köttur, hann er búinn að læra að ef hann situr svona stilltur og rólegur og skyggir ekki á skjáinn fær hann að vera í friði. Það er bara svo skemmtilegt að eltast við músina á skjánum að hann gleymir sér, og þá er hann settur niður á gólf.
Og pabbi er farin að geta komið í kaffi, það er líka vorboði.
Honum finnst gaman að hitta barnabarnabörnin sín.
Þetta litla skott er fiktrass, hún er fljót að fara í stigan. Þá þarf að kenna henni bæði að fara upp og niður, svona eins og gengur.
Skemmtilegt að sjá fjöllin í dag, með svona hvíta rönd um sig miðja.
Það er engu líkara en skapanornirnar hafi brugðið á leik með hvítan tússlit.
Ótrúlegt en satt. Og þetta er 17. marz 2010.
Knús og notalegheit elskurnar. Svona á að hafa það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
17.3.2010 | 11:10
Samfélagið okkar litla og viðkvæma er ein ormagryfja.
Dv mun ef til vill heyra sögunni til, ef fer sem horfir. Nema Reyni Trausta takist að fá með sér fólk af götunni til að halda úti blaðinu. Hrægammarnir liggja allstaðar í leyni að því að sagt er, Vilja komast yfir blaðið, annað hvort til að halda úti sínum áróðri eða leggja það niður.
En DV hefur tekið á ýmsum þörfum málum undanfarið og örugglega komið við mörg kaun. Þeir sem reyna að þagga raddir eins og DV ættu að gera sér grein fyrir að þeir geta ekki þaggað niður umræðurnar. Þær færast bara inn á blogginn og spjallþræðina. Æran er ekki lengur fyrir hendi, svo það er ekki hægt að falla dýpra, það er einungis hversu langt menn hafa gengið í óþokkaskap en ekki hvort þeir séu óþokkar og glæpamenn. Það er vitað nú þegar.
En ég var að fletta síðasta Helgarblaðinu, og það sést svo vel hvernig þjóðfélagið er samansett við lestur þess að mann setur hljóðan.
Sævar gjaldþrota... en hann skrifaði allt á konuna, og svo kemur frétt um að þau séu að byggja sér 500 m2 höll á stað sem heitir Mosprýði.
Í sömu opnu er fyrirsögn, ekkjan skal borga. Kona nýorðin ekkja með þrjú börn fær ekki fyrirgreiðslu, sem hún var þó búin að reikna vel út og taldi sig geta staðið við. Nei það var ekki hægt, hún skyldi punga út eða vera borin út.
Sólón fékk 200 milljónir fyrir að hætta. Hvað innibert slíkt?
Þúsundir þiggja mat, og þá er verið að tala um þúsund fjölskyldur, og fer sífellt stækkandi hópurinn sá.
Fékk hundrað milljónir frá FL group, Jón Sigurðsson. Ætli þeim peningum hafi ekki verið betur varið í eitthvað annað?
Tryggingastofnun aðstoðar ekki við fermingu einhverfs drengs, pabbi hans er dáinn svo stofnunin neitar að greiða. Vá ég hélt að þetta væri jafaðarmanna flokkar og velferðarstjórn.
Björgúlfur situr heima í sínu húsi, og hugsar sig um, meðan verið er að vinna í hans málum. Hvað ætli mikið af fénu sé á Tortola? Ég er nokkuð viss um að fátækt hans felst fyrst og fremst í því að geta ekki gengið um eins og kóngur og spreðað með peninga. Hann hefur vel fyrir sig og sína.
En þegar við lesum svona, þá hlýtur hugurinn að reika um íslenskt samfélag og hvernig það er samansett.
Við hljótum að sjá að í rúmlega 300.000 manna samfélagi þá er þetta enganveginn hvorki réttlátt né líðandi.
Féð sem verið er að bruðla svona með eru peningar sem íslenskur almenningur vann í sveita síns andlitis, og treysti svo öðrum fyrir þeim til ávöxtunar.
Þeir sem eru að eyða peningunum hafa ekki unnið fyrir þeim, heldur eignast þá með klækjum. Og það versta við þetta allt saman, er að ríkisstjórnin segist ekkert geta né vilja gera til að taka þetta föstum tökum og skila illa fengnu fé til fólksins aftur.
Þau frekar vilja borga meira, og taka endanlega á okkar bök skuldbindingar sem þessir glæpamenn lögðu á okkur börnin okkar og barnabörn. Þeir vilja endilega samþykkja að við borgum allt upp í topp. Og sagt er vegna þess að innganga í ESB er svo spennandi kostur fyrir Samfylkinguna.
Jæja ég get sagt þeim sem þar eru að meiri hluti íslendinga vilja ekki fara þar inn.
Við viljum frekar sjá ykkur fara að taka á spillingunni, reisa skjaldborgina og koma á réttlætinu, öllu þessu var okkur lofað fyrir kosningarnar. Það þýðir ekki lengur að koma og segja að þið séuð á kafi í að vinna að málunum. Þegar ekkert kemur út úr þeirri vinnu sem sjáanlegt er.
Það vill ykkur til að við erum svo barnaleg íslendingar að við sitjum hér í ormagryfjunni hvar þið hafið kastað til okkar dúsum og rífumst um hverjum þetta sé mest að kenna, og að við viljum ekki að þessi fari því þá komi hinn.
Svona er hægt að halda okkur nokkurnveginn passlega niðri til að þið getið haldið áfram að gera ekki neitt, og láta alla spillinguna og viðbjóðinn blómstra áfram. Því það var alltaf meiningin ekki satt. Þið sitjið nefnilega öll í spillingarsúpunni við kjötkatlan og gulltryggið hvort annað. Og það væri algjör bjánagangur að fara að rokka þeim báti. Peningarnir eru og verða þar sem þeir eru, og þið njótið góðs af því.
En það gæti farið svo að það syði upp úr. Það eru nefnilega nokkrir aðilar sem hafa markvisst reynt að opna augu fólksins fyrir því að þetta er ekki að gera sig, og hér er enginn björgunarleiðangur í augsýn frá Alþingi.
Allir bíða í ofvæni eftir skýrslunni sem er á leiðinni. Og það er alveg morgunljóst að ef hún verður eitthvert húmbúkk og yfirklór þá verður allt brjálað. Ég veit það með sjálfa mig ég er orðin ansi reið, og ég heimta réttlæti. Ég heimta að því sé skilað sem af okkur var tekið og að þjófarnir verði settir inn.
Ég vil nýtt fólk og nýtt blóð í forystu á Íslandi. Burt með spillinguna, valdníðsluna og asnaganginn. Þetta er komið nóg.
Ætli okkur takist nokkurntíman að hrinda af okkur þessu oki óréttlætisins og byggt upp Nýtt Ísland? Allavega ekki með því að vera pikkföst hvert í sínu hjólfari og trúa öllu sem minn maður segir og allt hitt er bara bull. Það er spilað á okkur eins og hljóðfæri, þess gætt að við séum nógu ómstríð til að við finnum ekki samhljóminn, því hann er öllum þeim afar hættulegur sem er einungis að hugsa um sig og sitt, á kostnað okkar hinna.
Við höfum nefnilega í örfáum tilvikum fundið hann og þá hefur eitthvað gerst sem styrkir almenning í landinu og færir hann saman.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 17. mars 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2023320
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar