10.3.2010 | 12:04
Smá nöldur í gömlu hrói.
Ég sit ofan í einhverri tímalausti holu og á erfitt með að krafla mig upp á bakkann. Mér er sagt að þetta sé fullkomlega skiljanlegt og það er meira að segja orð yfir þetta fyrirbæri, kallast ef ég man rétt áfallastreituröskun. En þetta birtist þannig að ég er eins og dofin, einhver innri söknuður og tregi. Ég er afllaus og tilfinningarnar hanga utan á mér. Ég kem mér ekki að neinum sköpuðum hlut, og á erfitt með að hitta fólk. Þó passa ég vel upp á að það sjáist ekkert utan á mér. Brosi og heilsa eins og ekkert sé. En finn hve ég er sundurtætt innaní.
Ég veit að þetta gengur yfir og ég veit líka að þetta er bara hlutur sem allir sem ganga í gegnum það sama verða fyrir. Sumir taka þetta út strax, aðrir eru að mjatla þetta smám saman.
Ég verð að taka á, til að fara á fætur á morgnana. Finn að hugurinn fer niður í holuna í myrkrið, ég verð að beita öllu mínu þreki til að láta hugan hoppa yfir þessa andstyggðargloppu Vera jákvæð, hugsa eitthvað fallegt
Erfitt að einbeita mér, þess vegna hef ég ekki farið blogghringinn minn nú í nokkra daga, ég hef einfaldlega ekki orku til þess. Sorrý mínir elskulegu vinir.
Þetta kemur fljótlega, nú fer að koma sá tími að það þarf að grufla í moldinni og fylgjast með því þegar plöntur fara að vaxa og dafna. Þær eru að gæjast upp úr moldinni og brosa til mín.
Að vísu ekki haustlaukarnir, þó það gæti sem best verið einmitt þannig.
Og nú vill bankinn eignast húsið mitt. Ég er víst enginn útrásarvíkingur sem get látið afskrifa skuldirnar. Verst að ég nýtti þá ekki í eigin þágu, þessum peningum sem ég á ekki til. Þeir fóru í annað.
En svona er lífið bara. Það gengur upp og niður. Og þó okkur finnist það stundum liggja meira niður en upp, þá vitum við að meðan við höfum heilsu og góða fjölskyldu þá er það einmitt það sem skiptir mestu máli. Svo er að sjá til með hitt. Hvernig maður getur spilað úr stöðu sem virðist vera vonlaus.
Málið er bara að þegar maður er orðin 65 ára og bráðum 66 Þá finnst manni einhvernveginn að það sé sá endi sem ætti að vera hvíld og rólegheit. Ekki sama þrælkunin og í upphafi, þegar við vorum að byggja upp hreiðrið og koma ungunum á legg. En lengi má manninn reyna.
Þó ég sé að nöldra svona geri ég mér grein fyrir því að það eru margir sem eru miklu verr settir en ég. Það er ekki málið. Við erum svo mörg í þessari súpu sem snýst endalaust og sogar allt niður í miðjuna. Við erum bara svo mismunandi langt frá miðjuhringsoginu. Að sumir ná að grípa í bakkann, meðan aðrir sogast niður. Og einhvernveginn hefur alveg gleymst að setja öryggisnetið undir niðurfallið.
Við sem hreykjum okkur af að vera svo rík þjóð. Og sum okkar sem endilega vilja borga skuldir til erlendra aðila langt umfram það sem okkur hugsanlega ber. Samanber fréttaritarann í Englandi sem sagði að íslendingar væru ekkert svo fátækir það þyrfti ekkert að vorkenna þeim að greiða skuldina. Við viljum nú ekki láta líta á okkur sem ölmusuþjóð sagði hún svona einhvernveginn, og hló við. Jamm svo er nú það. Við erum svo rík. Við erum svo rík að það er fullt af fólki á götunni, eða á leið þangað, þegar bankarnir bjóða upp húsin. Við erum svo rík að fólk tekur leiðina út þegar það sér ekkert framundan.
En ég ætlaði ekki að hafa þetta svona langt og mikið væl. Mig langaði bara til að heilsa upp á ykkur og segja að ég væri orkulaus og hef þess vegna ekki kíkt við hjá ykkur.
Set kannski inn nokkrar myndir til að létta þetta aðeins. Ég hef ekki heyrt frá litlu tátiljunum mínum um hríð. Ég sakna þeirra líka. Það er samt gott að vita að þær eru glaðar og hjá mömmu og pabba sínum.
Ásthildur litla í Náttúrminjasafninu í Vín.
Að leika við afa.
Afi og Hanna Sólin.
Óðinn Freyr og Daníel Örn í heimsókin.
Prinsessan mín fallega.
Og svo fara lömbin að fæðast bráðum.
Svo líður tímin og alltaf vorar meira og meira, og okkur eykst þróttur þegar sólin fer almennilega að skína á okkur.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Bloggfærslur 10. mars 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 2023321
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar