26.2.2010 | 16:56
Það er Austurvöllur á morgun.
Ég vil minna á að á morgun Laugardag verður mótmælafundur á Austurvelli. Nýtt Ísland ætlar að vekja bæði Steingrím og Jóhönnu og gefa þeim báðum 7. mínútur til að ræða um skjalborgina og aðstoðina við almenning í landinu.
Það verður fróðlegt að vita hvort oddvitar ríkisstjórnar almennings í landinu velferðarstjórnarinnar svari kallinu og noti þessar mínútur til að tala til fólksins, vera á meðal þeirra og deila þessum tíma með fólkinu sínu.
Mér finnst nú sætt að vakningarlestinni að benda þeim tímanlega á þetta svo þau geti farið snemma að sofa og hugsanlega sett eitthvað þýðingarmikið niður á blað. Enda hljóta þau að taka þessu vel, fólkið sem ætlaði að endurvekja nýtt Ísland, með réttlæti, gegnsæi og velferð fyrir samborgara sína.
Þau gætu til og með sagt okkur frá hvernig gangi með Icesave og ESB og sona.
Maður getur látið sig dreyma um ýmislegt. Ég vil líka benda á að það er alveg tilhlýðilegt að vekja Össur líka og gefa honum svipaðan tíma. Hann hefur ekki legið á liði sínu að básúna skoðanir sínar um allar trissur, verst að þær skoðanir eru ekki endilega þær sömu og þjóðarinnar að stórum hluta til allavega, frekar en Jóhönnu og Steingríms. En hér ríkir jú tjáningarfrelsi ekki satt?
Hér er ég og ræðan mín til dæmis. Hún var aldrei flutt á Austurvelli, en hún hefur oft verið viðruð hér á þessu bloggi. Og ég segi; látum breta og hollendina sækja sitt eftir að við höfum hafnað Icesave. Og inn í ESB skulum við aldrei ganga. Það er orðið ljóst að þar verður ekkert gefið eftir, "vinir" okkar geta ekki beðið með að koma sér inn í landhelgina okkar, þeir vita líka fullvel af heita vatninu, kaldavatninu, tækifærum í hreinni matvinnslu og gróðurhúsum. Tækifærum sem sum okkar hafa ekki einu sinni hugmynd um að við höfum. En þeir verða fljótir að nýta sér og taka af okkur. Eins og til dæmis orkulindirnar okkar sem verið er að reyna að selja eða leigja til margra áratuga. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þannig er nú það.
Þegar menn segja að við getum ekki ráðið okkur sjálf, þá er það kjaftæði. Við höfum gert það í 1000 ár. Að vísu stundum undir harðstjórnum sem hafa notað vald sitt til að nýta það sem við eigum. Síðan 1944 höfum við verið sjálfstæð fullvalda þjóð. Og notið virðingar í samfélagi manna. Allt þangað til stjórnvöld voru orðin svo spillt að þau höfðu gleymt fólkinu í landinu. En þá reis fólkið upp og fór niður á Austurvöll, hrakti ríkisstjórnina frá og setti ný viðmið.
Við eigum ennþá til dug til að gera betur. Og krefjast þess að þeir sem nú sitja og allir sem að málum hafa komið undanfarið og ekki skilað NEINU fari frá og sett verði upp utanþingsstjórn, eða neyðarstjórn, sem leiðir þjóðina út úr þessari krýsu. Við eigum ennþá sömu rödd og þá, potta pönnur og önnur hljóðfæri.
Við þurfum bara að koma okkur út og framkvæma.
Þessi afskorna rós sem hefur verið án umönnunar síðan í byrjun október á síðasta ári og er ennþá lifandi og farin að vaxa á nýju ári, sýnir okkur svo ekki verður um villst að kraftaverk gerast. þau gerast ef fyrir hendi er kærleikur, trú og von og auk þess áræði til að breyta.
'Eg kemst ekki sjálf vegna þess að ég er of langt í burtu, en ég skora á ykkur öll sem eru með svipaðar skoðanir og ég að láta sjá ykkur á Austurvelli og láta heyra í ykkur.
Við verðum að standa vörð um okkur sjálf börnin okkar og framtíðina.

Smá glaðningur svona í endann. Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.
Öxar við ána, árdax í ljóma,
upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.
Skjótum upp fána, skært lúðrar hljóma,
skundum á þingvöll og treystum vor heit.
Fram, fram, aldrei að víkja.
Fram, fram, bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðarböndum,
tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bloggfærslur 26. febrúar 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar