Myndir, prakkarasögur og smápólitík.

Veðrið er fallegt þessa dagana.  Stundum dett ég samt niður í sút og verð orkulaus.  En svo kemur eitthvað sem drífur mig áfram.  Fyrir það er ég þakklát.  Ég var að snúast við pabba í dag.  Hann hringdi og vildi fá mig í bíltúr, hann er á spítalanum, fordekraður af stelpunum þar, en leiðist samt sem áður.  Frændi okkar og konan hans voru hjá honum þegar ég kom, við skutluðum þeim svo í heimsókn í annað hús.  Við fórum síðan í íbúðina hans, þar sem hann setti þvott í þvottavélina, svo fengum við smá fyrirlestur um nýja öryggisbúnaðin sem verið er að setja upp á Hlíf.  Þvínæst fórum við og heimsóttum Gunna bróðir í vinnuna.  Og þvínæst vildi hann koma við á Ömmu Habbý og fá sér einn bjór.  Þetta var ágætis dagur, og minn karl bara sæll og glaður.  Hann er prakkari hann pabbi.

IMG_1245

Eins og er þá er þetta rassgat eina smábarnið á heimilinu.  Það er ekki hægt með góðu móti að vera í tölvunni, því hann er svo forvitinn og vill bara leika sér við skjáinn.

IMG_1248

Skemmtilegast er samt að skoða myndir af sjálfum sér. Og elta músina, þ.e. tölvumúsina hann kann ekkert á hinar, enda á Brandur eftir að kenna honum allt svoleiðis.  Hann er líka prakkari.

IMG_1249

Sigurjón Dagur tilbúin til að spæla ömmuegg.  Þ.e. úr kúluhænunum.

IMG_1250

Svo borðar hann þau með tómatsósu nammi namm, segir Sigurjón.

IMG_1254

Hann er rosamömmukarl. Vonandi man hann samt smá eftir pabba. Heart Hann er samt líka prakkari eins og pabbi hans var alltaf.

IMG_1256

Pabbi í góðu yfirlæti á öldrunardeildinni, með gesti.  Þarna eru líka margar yndælar konur sem ég þekki vel, Heiða og Jana, sem er ótrúlega flott kona, og man svo margt. Hún er með yndælli konum sem ég hef kynnst.  Svo er þarna yndisleg lítil kona með löbbu, (þau eru auðvitað öll með svoleiðis tryllitæki) en hún er með fullt af böngsum og dúkkum í sinni, líka fallegar myndir og stórt flott skilti með nafninu sínu,  Maggý, hún er einhvernveginn eins og lítið barn, svo saklaus og yndisleg að mig langaði að taka mynd, en ég mátti það ekki.  Og virði það.  En það er stundum eitthvað sem snertir við hjartað í manni og mann langar að deila því.  Þarna eru líka tvær kjarnakonur sem eru komnar yfir 100 árin, Dísa handboltakona Alberts og Torfhildur Torfa, þær eru alveg sprækar og flottar.  Mikið er gaman að koma í svona samfélag, allt gert svo heimilislegt og ró yfir öllu, gleði og áhyggjuleysi ríkir og þau spauga, ræða daginn og veginn á góðlegan þroskaðan hátt. 

IMG_1255

Þó mér hafi ekki fundist snjóa mikið í ár, þá hafa okkar menn verið duglegir við að moka og víða standa snjóhraukar, sem verða svo keyrðir út í sjó þegar vorar.  Mig grunar að þennan snjó sé verið að geyma þarna til páska, til að aka honum niður í miðbæ til skíðaferðar um miðbæinn um leið og þeir opna skíðavikuna.

IMG_1257

Skin og skuggar koma svo fallega út í fjallinu á svona degi. 

IMG_1258

Og kúlan í aðeins meiri fjarlægð.

 

Ég heyrði á forystumönnum allra flokka í dag að þeir voru sammála um að neita þessum deal sem hollendingar og bretar buðu.  Verð nú að segja að það er góðs viti.  Loksins virðast forystumenn ríkisstjórnar vera að sjá ljósið.

Ég verð samt að segja að þegar maður sér svona tilboð sem "þið getið ekki hafnað", haft eftir hollendingum, þá segi ég, þegar maður ætlar sér að fara út í samningaviðræður, þá byrjar maður alltaf í toppi.  Við byrjuðum með að lyppast niður og bara viðurkenna allt.  Síðan fær maður mótframboð, og þá er ekki besta ráðið að senda besta vin sinn með pennan á lofti til að skrifa undir.  Eftir það, þegar ljóst er að þjóðin sættir sig ekki við slíka afarkosti, þá er mjög erfitt að ætla að fara gera kröfur svona eftir á.  En það er sem betur fer reynt.  Þó Steingrímur og Jóhanna hafi fullyrt að ekki væri hægt að breyta neinu, þetta væri glæsilegasti samningur sem hægt væri að fá. 

Og tilboðið sem nú kom fram er auðvitað í anda þessarar málsmeðferðar.  Þeir hlæja að okkur bretarnir og hollendingarnir, eða hlóu, þeir hlæja ef til vill ekki meira, því loksins náði seiður goðanna þeim, þegar verst setti. 

Nefnilega nú þarf að byrja upp á nýtt.  Nú á bara að bíða eftir þjóðaratkvæðagreiðslunni, láta þjóðina hafna þessu alfarið, eins og við munum gera.  Og síðan mega menn bara koma skríðandi á hnjánum til okkra til að biðja um eitthvað bara til að halda andlitinu. 

Þjóðin og Ólafur versus bretar og hollendingar.  Hitt liðið getur bara setið hjá og leyft réttlætinu að hafa sinn gang.  Þau geta til dæmis eytt tímanum sínum í að byggja skjaldborg um heimilin og fólkið í landinu.  Það er ekki vanþörf á því.  Kyrrsett auðmenninga og fryst eigur þeirra.  Tekið á spillingunni innan bankageirans, nú eða bara haldið sig til hlés meðan við gerum þetta allt sjálf.  Réttlætinu skal fullnægt.


Bloggfærslur 22. febrúar 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband