Vetrarmyndir og gróður í Kúlunni og smá pólitík.

Hér koma nokkrar myndir sem ég tók í fyrradag í einkar fallegu veðri.

IMG_1208

Það hefur snjóað dálítið, en samt ekki  nóg til að opna skíðasvæðið almennilega.

IMG_1209

Þegar maður hefur farið erlendis, þá verður manni ljóst hve litirnir á Íslandi eru hreinir og tærir.

IMG_1210

Það var líka fallegt í Bolungarvíkinni.

IMG_1211

Þangað förum við pabbi stundum í bíltúr, til að spjalla við Ella sem er að flísaleggja nýja félagsheimilið þeirra.

IMG_1212

Falleg sýnin yfir á Grænuhlíðina og Snæfjallaströndina í sólinni.

IMG_1213

Þessir hólar voru bara sandur hér fyrir nokkrum árum síðan.  Bolvíkingum tókst að græða þá upp, aðallega með rækjuskel, svo nú er þarna gras og gróður mest held ég þó melgresi, en enginn sandstormur.

IMG_1215

Hæstakaupstaðarhúsið, þetta fallega hús er friðað, og á að verða kaffihús í framtíðinni, það verður gaman þegar fólk getur sest út á Austurvöll með kaffibolla.

IMG_1216

Kúlan með sól í sinni.

IMG_1218

Það er gaman í góðu veðri.

IMG_1221

Stubburinn notaði góða veðrið til að fara á snjóbretti.

IMG_1229

Það skiptast á skin og skuggar.

IMG_1230

Daginn lengir, og bráðum kemur vor.

IMG_1238

Í Naustahvilftinni dísirnar dansa.

IMG_1240

Og hér er kúlan í forgrunni.

IMG_1241

Gamall mjólkurbrúsi.

IMG_1242

Þennan dverghvítþin hef ég átt lengi, það má sjá glæsilega könglana sem standa ennþá.  Hann ber köngla árlega.

IMG_1243

Það gerir líka þessi glæsilega stafafura.

IMG_1231

Inn í garðskálanum er farið að vora, brum farin að þrútna hér er jólarósin og stendur ennþá.

IMG_1233

Páskarósin kemur til með að standa allavega fram að páskum.

IMG_1234

Begonían er skrautleg allan veturinn.

IMG_1236

Þessi er búin að standa síðan í haust.

IMG_1237

Þessi er samt mesta undrið.  Hún er afskorin og er búin að standa síðan að jarðarförin hans Júlla míns fór fram, og nú er hún farin að koma með ný blöð og leggi.  Svei mér þá ef það er ekki táknrænt fyrir að hann lifir ennþá.  Ég ætla að passa upp á hana.  Þetta er í rauninni ótrúlegt, því hún stendur að vísu frammi í garðskálanum, en það var ekkert vatn lengur eftir í vasanum sem hún stendur í.

En að öðru.

Pólitíkin er undarleg tík.  Og ég held að aldrei hafi verið jafn mikill hiti í landsmálunum og nú.  Og sennilega aldrei verið jafn erfitt að vera stjórnmálamaður.  Fólk er búið að fá sig upp í háls af allskonar undanbrögðum, tilfærslu á sannleika og ólíkindalátum.  Það er ekki við almenning að sakast heldur sjálfa stjórnmálamennina sem hafa hagað sér þannig að ekki er hægt að bera virðingu fyrir þeim flestum lengur.  Það er nefnilega þannig að maður getur ekki keypt sér virðingu.  Hún er og verður alltaf áunninn. Ég held að verðandi stjórnmálamenn, og þeir aðrir sem ætla sér að leggja í vegtyllur ættu að hafa það í huga, að það er að pissa í skóinn sinn, að ætla að ljúga sig út úr hlutunum.  Þetta var hægt einu sinni, meðan fjölmiðlar voru flokksbundnir eða bundnir sínum eigendum, en með tilkomu spjallrása og bloggs, er þetta ekki hægt lengur.  Því fyrr eða síðar kemur sannleikurinn alltaf upp á yfirborðið.  Og þá er erfitt að standa nakinn frammi fyrir fólkinu og reyna að ljúga sig út úr vandræðunum eina ferðina enn.

Við höfum horft upp á þetta núna um hríð.   Og ég er satt að segja hálfpartinn farin að vorkenna þeim sem standa í framvarðarlínunni, vegna vandræðagangsins og hvernig þau standa úttauguð og búin á því frammi fyrir spurningum fréttamanna, sem verða að fylgja því eftir sem upp kemur á netinu. 

Ekki misskilja mig þannig að ég viðurkenni að þetta sé í lagi.  Því það er svo fjarri því.  En sjálfskaparvítin eru oft þau verstu.  Það er nefnilega svo að það er alltaf best að segja sannleikann og biðjast afsökunar.  Heldur en að reyna að skrökva sig út úr hlutum sem maður hefur komið sér í.  Það er auðvitað erfitt að viðurkenna að maður hafi gert vitleysur, en það er ennþá erfiðara að standa frammi fyrir vitleysunni þegar hún er skjalfest og vottuð.  Þetta eru okkar frammámenn að upplifa núna.

Ég held satt að segja að fjórflokkurinn eigi sér ekki viðreisrnarvon.  Ég spái því að ólgan sem er í dag muni hræra svo upp í pólitíkinni að enginn flokkanna sem nú eru á þingi þoli þann snúning.  Ég skynja það á fólkinu sem ég les og hlusta á að það er allt að breytast.   Það verður hreinsun og uppstokkun, sem er reyndar orðin bráðnauðsynleg.  Og það er trúa mín að það verði ekki aftur snúið.

Ég bendi til dæmis á samvinnu þriggja flokka hér á Ísafirði, sem ekki hefur borið neinn skugga á.  Það er Í-listinn sem samanstendur af Frjálslynda flokkum, Samfylkingunni og Vinstri grænum.  Þessu fólki hefur tekist að vinna saman sem einn maður, einn flokkur.  Og núna var að detta inn bæklingur um fólkið sem býður sig fram í vor.  Glæsilegur hópur, þau gefa út bæklinginn sameiginlega sem einn hópur, það er ekki einusinni rætt um hvaða flokki hver tilheyrir, heldur eru þau kynnt í stafrófsröð og almenn kynning á fólkinu sjálfu.  Ég er mjög ánægð með hvernig til hefur tekist á vali og uppsetningu. 

Sjálfstæðismenn eru nýlega búnir að standa í prófkjöri, þar var allt annað upp á teningnum, það voru þrír að berjast um fyrsta sæti, sem er auðvitað allt í fína lagi.  Þau voru með sér kosningaskrifstofur og hart barist.  Ég er ekki að setja út á þetta, einungis að benda á að þarna er munur á.  Einn flokkur þar sem barist er um hvert sæti, meðan hinir gera allt sameiginlega og í góðum vinskap.  Ég á örugglega eftir að ræða þessi mál betur seinna. 

Það er nefnilega ekki sama landspólitíkin og sveitastjórnarkosningar.  Það er meiri nærvera í heimahögum.  Það getur bæði verið slæmt og gott.  En það er allt öðruvísi.

Ég held að ólgan sem nú er að rísa hægt en örugglega verði okkur til góðs.  Það hreinsar út spillinguna og nýtt fólk kemur inn.  Ég hef enga trú á því að fólkið sem nú stendur í eldlínunni hafi orku eða þrek til að halda áfram, og ekki einu sinni löngun ef út í það er farið.  Atferli þeirra og framganga hafa orðið til þess að þau geta það ekki lengur.  Og nú þegar fólk er að vakna upp við vondan draum, þá held ég að það láti ekki svona koma fyrir aftur.   Eða ég vona það allavega. 

Sá fjórflokkur sem við þekkjum núna mun að mínu mati líða undir lok.  þeir munu allir klofna, sumir armar sameinast armi annars og aðrir hrökkva lengst til vinstri og lengst til hægri.  Við munum sennilega fá fleiri flokka og annarskonar samsetningu.  Þetta er í rauninni nauðsynlegt, eftir allt það sem við erum komin út í, reið, frústreruð og tortryggin. Hvergi haldreipi eða von um heiðarleika drenglyndi og virðingu fyrir þjóðinni. 

Þegar við svo vöknum upp við að menn hafa meira að segja gengið svo langt að falla á kné fyrir erlendum þjóðum og grátbeðið um að forða þeim frá þjóðaratkvæðgreiðslu, finnst mér eiginlega mælirinn fullur, ég verð að segja það.  Og það er raunar sorglegt að horfa upp á Össur reyna að smokra sér framhjá sannleikanum með því að segja þetta hafa bara verið aðstoð um hjálp fyrir Ísland.  Þegar það er ljóst af þessu að bæði sendiherra BNA og bretastjórn tóku þessu sem svo að það þyrfti að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna með öllum ráðum. 

Ég ætla bara að segja það hér, ef þið ágætu stjórnmálamenn úr öllum flokkum á þingi haldið að þið komist fram hjá þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, þá skuluð þið gleyma því.  Forsetinn færði okkur þetta vald, og þið fáið því ekki breytt.  Hvað svo sem kemur út úr þeim kosningum, kemur í ljós.   Þá er það ykkar eða annarra tilkallaðra að takast á við eftirleikinn.  Við erum nefnilega þjóðin, og það sem þarna fer fram verður okkar að greiða eða losna við.  Það hlýtur því að vera okkar að segja af eða á. 

Eigið svo góðan dag öll. 

 


Bloggfærslur 19. febrúar 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband