Maskadagur á Ísafirði - við möskum á mánudegi.

Í gær var Maskadagur á Ísafirði.  Það hefur alltaf verið alla mína tíð allavega síðan ég man eftir mér.  Hér áður fyrr var alltaf maskaball og veitt verðlaun fyrir flottustu búningana.  Stelpurnar í Kristjánshúsinu fengu oftast verðlaunin, enda myndarlegar í höndunum. 

Ég var með fullt hús af krökkum sem fengu að sofa í ömmukúlu í nótt.  Svo hér var fjör.  Enda er hér kistan hennar ömmu góða með öllum búningunum.

IMG_1168

Allt í fullum gangi við að klæða sig upp.

IMG_1169

Birta búin að mála Úlfinn.

IMG_1170

Tilbúinn í slaginn.

IMG_1172

Verið að leggja lokahönd á málninguna.

IMG_1173

Svo þarf að borða vel áður en allt nammið kemur.

IMG_1176

Tvær flottar.

IMG_1182

Tilbúin að fara og syngja og sníkja nammi.

IMG_1184

Þessir tveir voru líka á rúntinum og komu heim með fulla poka af nammi.

IMG_1206

Gaman gaman.

22745_494258855214_665990214_11285680_1769019_n

Þetta er samt mesta rúsínan.  Tók þessa mynd af Facebókinni hennar Tinnu minnar.  Sólveig Hulda flottust.Heart Nei afsakið Maja jarðarber.

 

Stúlkan í speglinum.

IMG_1190

Það vantaði eina gelluna í samkvæmið.  Hún fór nefnilega ekki að maska, vildi heldur vera í tölvunni.  En hér er hún Alej eða er þetta ef til vill álfabarn, eða glerdúkka?

IMG_1193

Stúlkan í speglinum.

IMG_11980

eitthvað dularfullt á seiði allavega svona daginn eftir maskadag.

IMG_1207

Og það hefur snjóað dálítið hjá okkur í dag.

18849_1349709311168_1484410268_954807_8145133_n

Þessi er líka tekinn af facebook, vinur minn sendi mér hana og spurði hvort ég hefði séð hana.

Hehehe hún er úr Dario Fo leikritinu sá sem stelur fæti.  Ansi langt síðan ég hef séð hana.  Alltaf gaman að skoða gamlar myndir. 

 

 

 


Bloggfærslur 16. febrúar 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband