Nú förum við í laugina, og göngutúr í skóginum.
Trölli er pabbi kettlingana, þetta eru hreinustu kettir í heimi, því hann sér algjörlega um að halda þeim hreinum. Enda sleikja þeir aðra eins og hverjir aðrir hundar.
Hann vaktaði þá og gætti alveg frá því að þeir komu á heimilið, pínulitlir.
Golda Samúelsdóttir vill líka þrýfa kettlingana, enda er hún besta vinkona Trölla.
Áður en við fötum út, þurfum við að föndra smá, það er svo gaman.
Sjá prakkarasvipinn á þessu litla dýri.
Svo þarf mamma að skrifa nafnið á listaverkið.
Þessi hæð blasir við út um gluggann, það er eins og skorin hafi verið sneið af fjallinu, eins og með venjulega köku.
Hér er paprikuakurinn sem ég tíndi mér paprikuna í nesti, ég tók samt eina sem hafði fallið af jurtinni.
Dádýrin eru fallegar skepnur, þær eiga það til að hlaupa út úr skóginum og niður á götu, svo það þarf að aka varlega.
Ekki er ég viss um að íslenskir bændur væru ánægðir með svona vel hyrndar rollur, þessar eru ungverskar, og örugglega ekki gott að hafa þær margar saman í fjárhúsi. Kýrnar eru líka með svona skrýtin horn í Ungverjalandi.
Á leiðinni úr Familypark ókum við fram hjá risastórum rómverskum rústum. Ég reyndi að taka mynd gegnum girðingu sem girti svæðið af. Steinbruch Als Arena rústirnar, en þær eru rétt hjá st. Margarethe þorpi. Þarna voru þýðingarmiklar samgöngur rómverja á þeim tímum. Nú eru rústirnar nýttar sem óperuhús með allt að 450 leik og söngvurum, náttúruleikhús.
Risasvið.
Svo var kvöldið komið, og himininn fallegur, með svona flugvélaröndum.
Þetta er svo fallegt. himnagalleríið opið í Austurríki líka.
Þetta er stærsta vatnsrennibraut sem ég hef séð, og hún er í Þorpi sem heitir Lutzmannsburg og er í Blau Fränkisvínræktarhéraðinu.
Stelpunum finnst voða gaman að fara í laugina. Þær eru nokkrar svona stórar, staðsettar þannig að fólk getur komið úr nálægum sveitum, enda mikið í þær lagt.
Á helgum sækja margir þetta Spa, þarna er allt til alls, laugar, snyrtistofur, ljósabekkir og allt sem tilheyrir svona stöðum, hvíldarherbergi og nefndu það bara.
Með vissu millibili kemur hér öldugangur sem stigmagnast uns öldurnar eru risastórar.
Rennibrautirnar eru þrjár, bláa fyrir yngstu, gula fyrir flesta og svo þessi stóra sem þið sáuð áðan.
Hér er vaðlaug fyrir þau yngstu, ég held að það séu a.m.k.fjórar mismunandi laugar inni og svo er líka úti, fyrir utan heita potta og vatnaleiktæki.
Sú stutta með pabba í einni lauginni, Hanna Sól er flugsynd, og þessi fleytir sér alveg.
Úlfur og Hanna Sól að fara í gulu rennibrautina. Hér eru svo legubekkir fyrir fleiri hundruð manns, og fólk kemur hér og eyðir deginum með börnunum, ýmist í sundi eða liggur og slakar á í bekkjum, hér er líka matsölustaður og fólk hefur gjarnan með sér nesti. Hingað koma líka Ungverskar fjölskyldur, því þetta er rétt við landamærin.
Hér er útilaugin.
Hanna Sól og afi.
Svo þarf auðvitað að þurrka hárið þegar maður kemur upp úr.
Nú er að undirbúa sig undir skógarferð.
Haustlitirnir eru stórkostlegir.
Hér eru ávaxtatré, bændurnir eiga sína skika í skóginum, sem þeir nýta bæði til ávaxtaræktar og líka til að rækta timbur til húshitunar.
Hér er eldgamalt eplatré sem hefur fengið stuðning við greinarnar sínar.
Hér blasir höllin við hinummegin við daglinn.
Hér var áður eikarskógur, en bændur gengu svo nærri honum að hann eyddist, þá uxu upp beykitré, en það má víða sjá að eikin er að koma upp aftur, það mun taka nokkra áratugi samt fyrir hana að ryðja sér rúms innan um beykið, sem mun þá láta undan. Málið er að beykiskógur er miklu bjargari en eikarskógur, þannig að hætt er við að botngróðurinn hverfi, hér eru nefnilega allskonar falleg stofublóm eins og alpaklukkan.
Eins og sjá má hafa bændurnir komið sér upp forða fyrir veturinn.
Auðvitað þarf að faðma tré.
Ójá, þetta virkar!!!
Skottan fær bara burkna.
Hér eru íbúar farnir að skreyta, enda komið að thanks giving eða þannig.
Svona steingirðingar þekkjum við vel frá Óshlíðinni, hér er þetta notað til að halda jarðveginum á sínum stað í öllum hallanum.
Hvað ætli svona svalir þoli mikinn snjóþunga?
Fúksíurnar ennþá blómstrandi út í garði.
Svo er ágætt að setja mynd á þegar komið er heim.
Nú eða bara leika sér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.12.2010 | 11:25
Smá hugleiðing. Hver er munur á kúk og skít?
Þegar ég var lítil var mikill hræðsluáróður á heimilinu mínu um vondu kommúnistana. Afi minn var heitur sjálfstæðismaður, enda var flokkurinn þá byggður upp á annan hátt en í dag með Matthías Bjarnason og fleiri góða menn í forsvari. Afi sagði að vondu kommúnistarnir kæmu sínu fólki allstaðar að, og helst í fjölmiðlum til dæmis ríkisútvarpinu, þar sem þeir gætu haft sinn áróður í frammi.
Svo liðu árin og ég smátt og smátt þroskaðist og sá að þetta var nú eitthvað málum blandið. Fór að leita sjálf að þeim flokkum sem ég gat hugsað mér að styðja. M.a. með því að setja inn spurningalista á kosningaskrifstofurnar með þeim áherslumálum sem ég hafði. Sumir reyndu ekki einu sinni að svara, aðrir fabúleruðu eitthvað út í loftið og lofuðu öllu fögru. Endaði svo með því að finna Frjálslynda flokkinn sem ég gat samsamað mig við, og fann að þar var fólk eins og ég sem virkilega vildi vinna að þjóðþrifamálum, svo sem eins og breytingum á kvótakerfinu og bætta aðstöðu aldraðra og öryrkja og mörg önnur góð markmið sem voru vel útfærð og vel unninn.
En ég ætlaði ekki að tala um flokkadrætti á Íslandi. Eitt af því sem okkur sem krökkum var innprentað bæði í ræðu og riti og hjá afa var að bandaríkjamenn voru frelsishetjur, arabar voru hryðjuverkamenn, kínverjar alræðisríki sem píndi þegna sína til hlýðni við stjórnvöld.
Þessa heimsmynd lagði ég af stað með út í heiminn. Smátt og smátt hefur þessi mynd máðst og sullast saman. Til dæmis horfi ég upp á ráðamenn í Ísrael murka út líf og heimili Palestínumanna meðan Vesturveldin líta undan.
Svo eru það kínverjar sem eru brjálaðir yfir því að kínverskur professor hefur verið valinn til að taka við friðarverðlaunum Nóbels. Hann er kallaður hryðjuverkamaður og Kínverjar hóta þjóðum sem vilja vera viðstödd atburðin, þau eru líka ævarreið Norðmönnum fyrir tiltækið. Vestrænum þjóðum finnst þetta forkastanlegt, og fólkinu þar vinnst þetta svívirðileg árás, og sérstaklega að þessum ágæta kínverja var varpað í fangelsi, konan hans í stofufangelsi, sem stórhættulegu fólki fyrir alræðisstjórnina í Kína. Borgarstjórinn í Reykjavík bað kínverska sendiherrann að láta manninn lausan við litla hrifningu Kínverja.
En nú ber svo við að maður nokkur ástrali, stendur fyrir því að upplýsa um vansæmandi vinnubrögð lýðræðisríkisins og góðu kananna. Hver eru viðbrögðin ? Jú sá maður er komin í fangelsi, fyrir einhverjar skrýtnar sakir, fyrir að nota smokk ekki á réttan hátt, hvernig sem það er nú hægt. Það liggur ekki fyrir nein ákæra á hendur honum, samt er hann eftirlýstur af interpol og þegar hann gefur sig fram við lögreglu er hann umsvifalaust handtekinn og settur í fangelsi í Bretlandi. Það á að framselja hann til Svíþjóðar, hvernig sem það má vera þegar engar ákærur liggja fyrir. Og BNA gí yfir honum til að fá hann til sín.
Maðurinn hefur ekki brotið nein lög, og öfugt við Kína á að ríkja málfrelsi og upplýsingafrelsi í því sem við höfum hingað til kallað lýðræðisríki. Ekki bara að maður sé hnepptur í fangelsi eins og hver annar stórhættulegur kínverji, heldur loka á hann bæði Visa, Eurocard, Amazon og ég veit ekki hvað. Reyndar hef ég ekki heyrt borgarstjórann okkar biðja um að hann verði látinn laus.
Heyrst hefur að það sé hægt að styrkja Alquaida, og eiturlyfjabaróna meira að segja mafíósa með kreditkortum, en ekki þá starfssemi sem þessi maður hefur byggt upp, sem er að upplýsa almenning í heiminum um framferði ráðamanna heimsins, sem á að liggja í þagnargildi svo þeir geti farið sínu fram.
Það fer satt að segja um mig hrollur við þetta framferði ekki bara Bandaríkjamanna, sem ég hef fyrir löngu séð að eru heimsins mestu illmenni, samanber Quantanamo fangelsið illræmda á Kúpu, heldur hvernig þeir hafa att saman þjóðarbrotum til að komast yfir náttúruauðlindir, og ekki má gleyma innrásinni í Írak.
'Eg vissi allan tíman að kínverjar væru villidýr sem ber að varast, en að valsa um í sauðagæru og þykjast vera góðu gæjarnir, þegar þeir eru ekki hótinu betri, er eitthvað sem er ekki hægt að sætta sig við.
Ég er farin að hugsa sem svo að nú þurfi eitt syndaflóðið í viðbót. Það þarf að hreinsa út, þó við hin verðum látin fjúka líka, þá er komin tími á að þessi svokallaði Guð helli yfir okkur svo sem einu flóði eða svo. Það gæti vel verið að það væri hægt að smíða svo stóra örk að allir kæmust þar fyrir sem eru ekki svona spilltir og vondir, og svo þarf að vera pláss fyrir öll dýrin og plönturnar, því ekkert hafa þau gert af sér. Það mætti þess vegna vera geimskip, við erum allavega með eina geimveru í Reykjavík sem gæti haft samand við sitt fólk, og svo með geimverusérfræðing sem hefur líka örugglega góð sambönd þarna einhversstaðar uppi, við gætum svo fengið gistingu meðan hinn elskulegi réttláti og dásamlegi Guð eyðir hinum óæskilegu.
Það er bara einn galli á gjöf Njarðar, það væri nefnilega alls ekki víst að við þessi hjartahreinu fengjum far með geimÖrkinni. Það yrðu sennilega glæpamennirnir, auðvaldspakkið og ráðamennirnir sem fengu að fljóta með, en við hin yrðum eftir.
En ef svo færi, þá erum við hvort sem er laus við þetta illþýði og þá þyrfti ekkert syndaflóð og engar ráðstafanir, þá getum við bara byrjað upp á nýtt, með spillingu, valdagræðgi ráðríki og stríð. Því þegar upp er staðið þá býr þetta sennilega meira og minna í okkur öllum.
Þess vegna er sennilega best að reyna að fá fólk til að vakna og hugsa öðruvísi. Leggja meiri áherslu á að rækta sinn innri mann, elska náungan meira og hlú að fjölskyldu og vinum.
Með kveðju Ásthildur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggfærslur 9. desember 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar