Kindermuseum og Christina vinkona mín í Vín.

Kindermuseum ég hef reyndar sýnt ykkur myndir þaðan áður.  En þetta er eiginlega niður í miðborg Vínar, þar eru allskonar söfn, og í Kindermuseum geta foreldrar komið með börnin sín í allskona uppbyggilega listsköpun og fræðslu.  Þar er líka hægt að skilja börnin eftir í tvo til þrjá tíma, meðan foreldrar athafna sig í borginni.

img_7616_1047027.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er Christina Gobbi vinkona mín islandsvinur sem býr í Vína, hún vinnur í barnasafninu með börnum við allskonar listræna viðburði. 

img_7617.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Núna þetta tímabil eru þau að leira. 

img_7620.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og allir afar áhugasamir, við fengum auðvitað frítt inn út af kunningsskap.

img_7622.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Pabbarnir voru ekki síður áhugasamir í föndrinu en börnin, sumir hverjir.

img_7623.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það var líf og fjör, og stelpurnar skemmtu sér afar vel.

img_7626.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það voru líka allskonar tæki og tól til að vinna með leirinn hakkavélar, vinduvélar og bara allskonar.

img_7628.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og listaverkin hrannast upp.

img_7631.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér fær sköpunargáfan algjörlega að njóta sín.

img_7632.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sjáðu amma!!

img_7637.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi naut sín ekki síður. 

img_7638.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og það er ekkert smáræði sem búið er að búa til af foreldrum og börnum þarna.

img_7643.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var rætt við þátttakendurna. Og þeim sýndar allskonar myndir.

img_7646.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

EInhver ætti ef til vill að starta svona smiðju hér á landi.  Gæti verið skemmtileg nýbreytni fyrir einhverja sem eru listrænir og hafa ekki vinnu. 

img_7648.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þennan karl bjó einn pabbinn til, hann sat allan tímann við að gera karlinn, og krakkarnir gerðu hinar fígúrurnar. LoL

img_7649.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það var farið að rökkva þegar við komum út.  Og við ákváðum að finna okkur pizzastað til að borða.

img_7650.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Ein af skreytingunum á húsiniu, sýnir að hér er elsti hestaskóli og sjúkrahús Evrópu. 

img_7654.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Ekki málið að finna pizzur, en ég ætlaði mér um of, tók of margar pizzur í fangið og missti helmingin á gólfið LoL Varð því að kaupa helmingi fleiri en áætlað var.

img_7656_1047047.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En þær voru góðar og víst nutum við matarins. 

img_7665.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við erum reyndar stödd á aðalverslunargötunni í Vín. 

img_7679.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Leikhúsið.

img_7681.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér er greinilega verið að sýna Puntila og Matta.

img_7685_1047052.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Auðvitað þarf að taka menningarlega mynd. 

img_7703_1047054.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og það er farið að rökkva, svo það er best að koma sér upp í þorpið með börnin.

Ég hugsa að við förum í sundlaugina á morgun, og jafnvel í annað Hof, sem tvær systur eiga, þar eru mörg íslensk hross.  

En eigið góða rest af deginum. Heart

 

 


Bloggfærslur 7. desember 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband