6.12.2010 | 21:11
Vinaheimsókn og Fjölskyldugarðurinn.
Familypark eða Freizeitpark er stærsti skemmtigarður Austurríkis, þarna eru jafnframt húsdýr sem börnin geta skoðað. Reyndar er allur garðurinn miðaður við börnin.
En fyrst fengum við heimsókn, ég hafði haft lambakjöt með mér dröslað því alla leiðina frá Keflavík og suður um alla Evrópu, vinir okkar, sem reyndar eru mjög góðir vinir Báru minnar og þeirra, komu í heimsókn og gistu hjá okkur eina nótt, það var afar skemmtilegt.
Stelpurnar voru glaðar að fá vinkonu sína Mirijam í heimsókn, og þær skemmtu sér vel.
Heidi og Samúel eru afskaplega indælar manneskjur og hafa reynst dóttur minni vel. Hér eru þau með kettlingana á heimilinu.
Ég get sagt ykkur að hér var steikt bæði læri og hryggur og það var allt etið upp til agna. Enda er lambakjötið besti maturinn sem til er fyrir utan íslenskan ferskan fisk.
Vinkonurnar Mirijam og Hanna Sól.
Sætar saman.
Og það var brugðið á leik, við áttum skemmtilegar stundir saman.
Daginn eftir var farið í hesthúsið sem Bára og Bjarki hafa hestana sína, ásamt mörgum öðrum. Og við fórum í langan göngutúr meðfram endalausum ökrum, bæði maís, jarðaberja, epla og paprikur nóg af öllu. Hér eru margir íslenskir hestar, og fólkið sem á þá, fer afskaplega vel með þá og eru miklir íslandsvinir, Bjarki segir að þau séu mörg hver meiri íslendingar en við sjálf, þau ganga í íslenskum peysum og hestarnir halda allir sínum íslensku nöfnum.
Menn eiga góða hesta, og það er riðið út á hverjum degi. Hér er litla skottan mín að príla.
Þessir kettlingar eru í hesthúsunum og stelpurnar elskan þá.
Glæsilegur knapi, Bjarki hafði ekki tíma til að leika sér með okkur, hann þurfti að ríða út og járna, hér járna menn á 28 daga fresti, svo það er nóg að gera fyrir klára járningamenn.
Þegar við vorum lögð af stað í göngutúrinn uppgötvaði ég að ég hafði gleymt að borða morgunmat, og var orðin sársvöng, á vegi mínum varð akur með paprikum, ég stal mér einni, og borðaði með bestu lyst, hér erum við svo að nappa eplum, sem voru rosalega góð.
Úlfur með stærðarepli. Það var af nógu að taka, hugsa að bændurnir hafi ekkert séð eftir þessu ofan í okkur.
Þetta er svona loðdýraskrímsli
Og krakkarnir náðu sér líka í maís. Veðrið var fínt eins og reyndar alla ferðina, og við skemmtum okkur vel í risastórumgöngutúr.
Svo þurfti auðvitað að gera að maísnum þegar heim kom.
Nú erum við komin í Fjölskyldugarðinn. Þessi dreki svífur ofar jörðu hátt hátt uppi.
Það voru ýmis tæki prófuð.
Ég lét meira að segja hafa mig í ýmislegt gamla brýnið.
Stelpurnar áttu meiriháttar skemmtilegan dag.
Og reyndar Úlfur líka.
Meira að segja að aka traktor.
Maður lætur nú hafa sig í ýmislegt.
Og afi líka
Hér sýnir hann svaka tilþrif í góðum höndum.
Ég get svarið það ég fór meira að segja í rússibanan, hélt það yrði mitt síðasta.
Þetta tæki lét ég reyndar alveg eiga sig.
Afi það á alltaf að lyfta höndunum svona, þegar skipið fer hátt upp!
Hér voru svo öll ævintýrin, það var hægt að ýta á takka og þá var ævintýrið lesið og fígúrurnar ýmist hreyfðust eða voru kyrrar.
Þetta var líka agalega gaman.
Og Ásthildur fékk að fara alein í svona tryllitæki, það hafði hún aldrei fengið áður, en til þess eru afi og amma að spilla ekki satt??
Vatnsrennibrautinn var tvímælalaust vinsælasta leiktækið hjá krökkunum.
Búúúúmmms!
Eins ogh sjá má hafa sumir engu gleymt!!!
Það var búið að loka, en stelpurnar neituðu af yfirgefa tækið, og vörðurinn lét það eftir þeim að fara þrjá leiki til viðbótar.
Svo eftir skemmtilegan dag var haldið heim. Vonandi getið þið líka skemmt ykkur með okkur í þessum frábæra garði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bloggfærslur 6. desember 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar