Gleðilegt nýtt ár!!

Nú gengur þetta ár senn til viðar.  Og nýtt ár tekur við. Þetta ár hefur vissulega verið erfitt mörgum og sérstaklega fyrir sálartetrið, þar sem við erum að takast á við erfiðar aðstæður og líka eru flestir óánægðir með úrvinnsluna á vandræðunum.  Traustið farið á þeim sem tóku að sér að koma okkur út úr þessu.  Sérstaklega þegar þau ákváðu í upphafi að sundra þjóðinni með því að reyna að þröngva okkur inn í ESB, í stað þess að þjappa þjóðinni að baki sér í því að reyna að vinna á þeim risavanda sem við erum ennþá að glíma við.  Það voru hrikaleg mistök Jóhönnu og Steingríms.  Þau þekktu greinilega ekki sinn vitjunartíma og nú er sá tími liðinn og við bíðum eftir því að þau gangi á fund forsetans og leysi upp þessa ömurlegu ríkisstjórn sem hefur gjörsamlega miss tökin á ástandinu og eru rúin trausti og velvilja þjóðarinnar. Sorglegt mál því svo sannarlega hélt ég í barnaskap að þó ég næði ekki mínu fólki að, þá væri þetta það besta sem byðist okkur. 

gamlarsdagur2010_002.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 En í kvöld gleymum við öllum slíkum væringum og erum ákveðin í að njóta kvöldsins.  

gamlarsdagur2010_004.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má sjá Snúð, sem er jólabarnið okkar, hann hafði gífurlegan áhuga á jólapökkunum og ekki síður jólatrénu, þar sem hann plokkar hverja jólakúluna á fætur annari af og skottast með hana um allt gólfið.

gamlarsdagur2010_005.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann hættir ekki fyrr en honum tekst að losa kúluna og svo búmsara búms

gamlarsdagur2010_009.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Notar öll meðul LoL

gamlarsdagur2010_012.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Unglingarnir eru líka spenntir, nú er verið að skoða flugeldana og það sem fylgir.  

gamlarsdagur2010_014.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gleðin er auðsæ og ekki síður hjá Snúði.  Sem betur fer þurfa þau ekki að hafa áhyggjur af framtíðinni því við munum auðvitað gera allt til að hún verði tryggð, þegar þau þurfa að fara að takast á við lífið.

gamlarsdagur2010_016.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nýtt ár með nýju yndislegu fólki og góðri framtíð, hvað getum við óskað okkur betraHeart

img_0914_1051019.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Sendi ykkur öllum mínar bestu kveðjur um Gleðilegt ár og bjarta framtíð. Ég sjálf sagði starfi mínu lausu í dag. Ég ætla að hefja nýtt líf, breyta til.  Það var ekki auðveld ákvörðun þar sem ég hef nú starfað fyrir bæinn minn frá árinu 1966 með hléum, og sem garðyrkjustjóri og umsjónarmaður opinna svæða frá árinu 1978.  Mest sakna ég þess að fá ekki að starfa með nýja bæjarstjóranum okkar honum Daníel Jakobssyni, því þetta er eðal drengur, bræður hans tveir voru heimagangar hjá mér öll uppvaxtar ár drengjanna minna sérstagklega Þórir.  Ég hef starfað með öllum bæjarstjórum bæjarins nema Jóni Guðjónssyni.  

Ég hef átt ótrúlega góðan stuðning bæjarbúa og hef fundið þakklæti þeirra alveg frá byrjun.  Fyrir það er ég þakklát og þykir vænt um bæinn minn og fólkið sem þar býr.  Nú var einfaldlega komin tími til að gera eitthvað annað.  Sem segir okkur að það er aldrei of seint að breyta til.  

Ég hef verið einstaklega heppin manneskja, sem hef í raun verið borin á höndum fólksins í bænum mínum.  Nú ætla ég bara að setjast til hliðar og njóta þess að eiga minn tíma sjálf.  Vona að ég koðni ekki niður og geri ekki neitt InLove

Nebb það mun ég ekki gera.  Það eru næg verkefnin sem bíða mín.  

En nú þarf ég að fara að hafa mig til, ég er boðin í mat og partý hjá bróður mínum og konunni hans.  Eigið gott og skemmtilegt kvöld elskurnar mínar, og njótið ykkar vel og lengi. Heart

 


Bloggfærslur 31. desember 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband