Matur og myndir.

Smámatarveisla.

Tengdadóttir mín, eða svo kalla ég barnsmóður Júlla mín, eldaði þennan flotta mat fyrir okkur í fyrradag.  Hún er að prófa allskonar austurlenskan mat, og bauðst til að koma og elda slíkan rétt ef ég eldaði mína vinsælu(af fjölskyldunni) tómatsúpu. 

Það var virkilega notalegt kvöld og við átum á okkur gat.

_sthildur_ung_001.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Allir hjálpuðust að, meira að segja Sigurjón Dagur hér er hann að skera gulrætur fyrir mömmu sína.

_sthildur_ung_002.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann var rosalega áhugasamur.  Þarna má líka sjá "afaskyr" en svo kallast þessi abt mjólk á mínu heimili Smile

_sthildur_ung_003_1050885.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er Sigríður að elda gourme kjúklingarétt með allskona góðgæti.

_sthildur_ung_004.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og Úlfur fylgist vel með, enda mikill áhugamaður um austurlenskan mat. 

 

_sthildur_ung.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mér áskotnaðist þessi mynd af mér frá systur minni. Hún hafði orðið innlyksa í dóti frá mömmu. 

Þessi mynd er frá slysi sem varð á pilti á mótorhjóli, mamma hans hún Guðbjörg í Salem sést hér krjúpa við soninn, en ég virðist ekki veram mjög sorgmædd á svipinn, en ég man að ég lagði kápuna mína undir höfuð hans.  Þessi mynd er sennilega tekinn 1966 eða 7.  Gaman að þessum gömlu myndum.  


Þurfum við fleiri framboð?

Ég rakst á þessa upptalningu hjá bloggvini mínum Axel Þór Kolbeinssyni. 

Heimasíður stjórnmálasamtaka

Í stafrófsröð.

Þetta er enginn smá upptalning, af þessum 20 samtökum eru tvo sem ekki eru virk á heimasíðunni sinni. 

Þarna er auðvitað hægt að fara inn og skoða málefnasamninga flokkanna.  Það hlýtur bara að vera skráð á heimasíðurnar þeirra. 

Ég álít það frekar væri betra að þeir flokkar sem eiga þarna samleið sameinuðust frekar, heldur en að fólk hlaupi til og stofni nýjan flokk. 

Það verður ekki langt í kosningar, því er tímabært að menn fari að huga að framboðum, og fyrirkomulag kosninga.  Besta væri að kjósa persónur en ekki flokka. 

Við eigum að fara að kjósa menn eftir málefnum og hvernig þeir hafa staðið við sín kosningaloforð og hvernig þeir vinna en ekki hlusta eingöngu á kosningaloforðin. 

Í rúmlega 300.000 manna samfélagi höfum við ekkert að gera með 20 framboð eða jafnvel fleiri.  Nær væri eins og ég sagði áðan að forsvarsmenn þessara framboða kæmu saman og skoðuðu flöt á samstarfi eða sameiningu þeirra sem hafa svipaðar áherslur. 

Þetta er bara eins og í öllu sem við gerum, hver höndin upp á móti annari og öll erum við kóngar, sem höfun hinn eina rétta sannleika. Ef við viljum breyta samfélginu þá þurfum við að byrja á okkur sjálfum, fara að rökræða og gera málamiðlanir FYRIR KOSNINGAR.  Þora að refsa þeim sem ekki hafa staðið sig, og kjósa eitthvert annað framboð.  Þetta er lífsnauðsynlegt ef við viljum fá nýtt Ísland.  Þetta er allt saman í okkar höndum en til þess þarf þor til að breyta.  Við vitum hvað við höfum en ekki hvað við fáum.  En þegar við fáum það versta mögulega þá er varla hægt að segja að lengi geti vont versnað, ég held að við séum nú þegar komin á botninn, og náum ekki að komast lengra í baktjaldamakki, leikfléttum, svikum, og spuna en pólitíkusar viðhafa í dag.  Þannig er það bara. 

Byrjum á okkur sjálfum. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981


Bloggfærslur 30. desember 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband