Jólin, hátíð ljóssins og vonarinnar.

Jólin eru róleg á mínu heimili.  Ég er frekar löt og nýt þess vel við að lesa hanga á netinu og borða góðan mat.

Ég verð nú að segja að ég hef ekki fundið fyrir tilhlökkun né þessara venjulegu tilfinninga sem barnið í mér hafði alltaf fyrir jólin.  Þó hefur mér alls ekki liðið illa, það er bara þessi tómleiki í hjartanu, sem er svo sem vel hægt að lifa við.  Ég hef meiri áhyggjur af nokkrum vinum mínum þarna úti, og þeirra sem einhverra hluta vegna hafa farið á mis við jólahátíðina.  Venjulega hefur ein þeirra dvalið í konukoti um jólin, en nú er hún í fangelsinu í Kópavogi. Samt sem áður virðist hún ekki vera döpur.   Ég sendi henni kort fyrir jólin með nokkrum myndum sem ég vissi að myndi gleðja hana.  

Það er einhvernveginn svo að þegar mér líður svona, þá gleðst ég heilmikið við að gleðja aðra.  Og finna að það sem ég geri skipti máli.  

jolamyndir_og_fleira_2010_038_1050122.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er svo sem ekki þannig að ég þurfi að kvarta.  Þau voru hér hjá okkur Sigga tengdadóttir Sigurjón og Ólöf og auðvitað Úlfurinn.

jolamyndir_og_fleira_2010_039.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sigurjón er fjörkálfur hinn mesti. 

jolamyndir_og_fleira_2010_044.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og Snúður er jólaköttur líka, hér tekur hann Kol með varúð. 

jolamyndir_og_fleira_2010_045.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er hann svo í jólaþvættinum, en hann var afskaplega forvitinn um jólapakkana.

jolamyndir_og_fleira_2010_047.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann er líka eini kötturinn sem ég þekki sem vill láta ryksuga sig, þá snýr hann sér á alla kanta og vill fá ryksuguna jafnvel á magan sem bakið.

jolamyndir_og_fleira_2010_053.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jólasveinninn okkar og mamma hans. Heart

jolamyndir_og_fleira_2010_055.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þó Snúði þyki gott að kúra á jólapökkunum var hann samt meira í að nappa sér kúlum af trénu og hlaupa með þær um allt. 

jolamyndir_og_fleira_2010_060.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Undirbúningurinn í fullum gangi og greinilegt að börnin hlakka til.

jolamyndir_og_fleira_2010_061.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Allt að verða klárt til að borða kl. sex og allir hjálpast að að leggja á borð og gera klárt.

jolamyndir_og_fleira_2010_064.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég man hvað það var langur tími sem fór frá því að maður lauk við matinn og þangað til búið var að ganga frá öllu.  Á mínu æskuheimili borðuðu allir saman, afar ömmur, pabbar mömmur, börn og barnabörn. Það hefur ekkert breyst með þá tilhlökkun, þó kynslóðaskipti hafi orðið.  En sama reglan ekki byrjað að eiga við pakkana fyrr en búið er að ganga frá. 

jolamyndir_og_fleira_2010_067.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Krakkarnir skiptust á að lesa utan á pakkana, og svo var opnar einn í einu.  Reglur sem þau settur Ólöf og Úlfur. 

jolamyndir_og_fleira_2010_068.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Verst er biðin fyrir litla stubba, en nú er þetta alveg að koma. 

jolamyndir_og_fleira_2010_075.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér hjálpast bræðurnir að við að lesa utan á pakka.

jolamyndir_og_fleira_2010_077.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vá en gaman, þessi var frá mömmu.  Nýjir kuldaskór.

jolamyndir_og_fleira_2010_089.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var hægt að klæða sig í jólagjafirnar, en voða flott. 

jolamyndir_og_fleira_2010_094.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og svona lítur þetta út þegar búið er að opna alla jólapakkana LoL

jolamyndir_og_fleira_2010_104.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En svo þarf að leika sér með gjafirnar.

jolamyndir_og_fleira_2010_107.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Slást af alefli.

jolamyndir_og_fleira_2010_118.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Flott tilþrif hjá afa er hann verst fimlega.

jolamyndir_og_fleira_2010_123.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo er líka frábært að knúsast. 

jolamyndir_og_fleira_2010_124.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stóri stubburinn minn flottur. 

Heyrði í börnunum mínum erlendis og fjær, og það var gott að heyra að þeim líður öllum vel, og allt í góðu hjá þeim.  

Ég er að hugsa um að beyta lífinu mínu á næsta ári. Er svona að hugsa málið.  Ég er ekkert á förum neitt, bara breyta því sem hér er.  Stundum þarf maður að gera eitthvað allt annað, þora að brjóta upp það sem verið hefur áratugi og snúa sér að einhverju öðru.  Það er hvort sem er komin tími til þess, þar sem ég get farið að taka mér eftirlaun og fara að hlú að því sem að mér snýr, en eyða ekki öllum mínum kröftum og tíma í aðra.  En það kemur auðvitað í ljós. 

Ég veit líka að með hækkandi sól kemur framkvæmdagleðin aftur, og ég veit líka að þetta sinnuleysi hverfur smátt og smátt.  Það taka við nýjir tímar, með nýjar áherslur, og nýja sýn.  Við erum nefnilega aldrei of gömul til að breyta til.  Vilji er allt sem þarf. 

Ég veit ekki einu sinni hvort mér tekst að halda kúlunni minni, þar sem hver rafturinn á fætur öðrum sendir mér bréf frá sýslumanni um uppboð, þar tekur hver við af öðrum, og skuld upp á 700 þúsund verður á ótrúlegal stuttum tíma að fimm milljónum. En það er alveg víst að fyrr læt ég mig hafa það að vera hrakinn héðan út, en að verða þræll einhvers banka að húsasmiðju eða hvað nú sem fyrirtækin heita, eru reyndar öll á höndum ríkisins svo ótrúlegt sem það hljómar. Ég held að ráðamenn og lögfræðingar geri þetta til að hafa af því laun að skrifa rukkunarbréf og hrella fólk bara til að fá meira í sinn vasa sjálfir í allskonar laun og bitlinga fyrir að áreita íslenskan almenning meðan þeir afskrifa milljarða annara. 

En núna er ég ekki að hugsa um svoleiðis.  Ég er á kafi í að vera löt, láta mér líða bærilega, lesa, bæði bækur og netið, borða á mig gat, fá mér rauðvín og jafnvel horfa á sjónvarpið.  

Sendi ykkur öllum ljúfar kveðjur og innilega takk fyrir mig, það er svo notalegt að fá hlý orð, gleðilegar kveðjur, knús og kram, og svo sannarlega hef ég blessunarlega verið svo heppinn að fólk finnur hjá sér þörf fyrir að gefa mér það allt.  Heart


Bloggfærslur 26. desember 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband