Jólahlaðborðið með myndum.

Ég fékk myndir af jólahlaðborðinu og veislunni frá ágætri konu Helgu Ásgeirsdóttur sem var þarna sama kvöld og ég.  Hún veitti mér góðfúslegt leyfi til að nota myndirnar sem hún tók.  Takk Helga mín.

rokk_og_jol_18_des_2010_001_1049038.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Ekkert smáflott og líka rosalega gott.

rokk_og_jol_18_des_2010_002.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Glæsilegt. 

rokk_og_jol_18_des_2010_003.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi tré eru annað með nammismákökum og hitt með jarðarberjum

rokk_og_jol_18_des_2010_004.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vertarnir eru nýfluttir vestur, og ekki var verra að vertinnan kallaði til mín og minnti mig á að við hefðum hist áður í eldhúsinu hjá Bergþóru Árnadóttur, sem var hennar besta vinkona og góð vinkona mín líka blessuð sé minning hennar.

rokk_og_jol_18_des_2010_005.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta veitingahús á eftir að gera það gott það er ég viss um.  Innilega takk fyrir mig.

rokk_og_jol_18_des_2010_021.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og ekki var skemmtunin síðri.  Þau voru alveg frábær.

rokk_og_jol_18_des_2010_026.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Trylltu salinn og mig með.

rokk_og_jol_18_des_2010_027.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jamm ég stóðst ekki mátið hehehe... gamli rokkarinn kom upp í mér hér syngjum við Proud Mary. 

 Það er að vísu til videoupptaka af þessu lagi með okkur hér, en ég get ekki sett linkinn inn, það er reyndar hægt að skoða hann á facebókinni minni. Ég er ekki alveg búin að átta mig á þessu nýja umhverfi hér í tölvunni minni.  En ef einhver hér er klár, má hann setja myndbandið inn hér á eftir. Smile  En myndbandið er frá henni Áslaugu Vinkonu minni á facebook og baráttu jaxli um verndun Austurvallar hér á Ísafirði. 

 

 

 

 

 


Bara hitt og þetta.

Mig langar að benda ykkur aftur á vinkonu mína sem er að berjast við krabbamein og er að skrifa sögu sína hér: www.tilfinningatorg.wordpress.com.  Get ekki ennþá copy peistað svo ég verð að skrifa þetta svona.

Vinkona mín er svo sannarlega hetja sem hefur barist með kjafti og klóm fyrir heilsu sinni.  Sú barátta hefur ekki síst verið við geðlækna og lyf sem hún var látin taka.   Eftirtektarverð frásögn og góð lesning fyrir fólk sem er í sömu sporum og hún.  Ég dáist að henni, og hugsa oft um þá sem hafa gengið í gegnum það sama og hún.  Og hve margir hafi gefist upp á þeirri leið.

 

 Ég fór á jólahlaðborð í gærkvöldi, því miður hafði ég myndavélina ekki með.  Við fórum á matsölustað sem heitir Vesturslóð.  Nýlega opnað.  Maturinn var æðislegur og fallega upp settur.  Þarna var svo rockshow sem Litli leikklúbburinn og Guðmundur Hjaltason sáu um.  Þetta var alveg meiriháttar sýning, og margar rockperlurnar sem þar voru sungnar og líka svo vel að á tímabili hélt ég að þau mæmuðu bara, og lögin væru leikinn á bak við.  En svo sannarlega var það ekki.  Ég ætla að snýkja myndir út úr honum Steina umsjónarmanni Edinborgar.  Hann sagði mér að hann lumaði á myndum.  Frábær matur og frábær skemmtun.  

Takk fyrir mig. Heart

img_0384_1048997.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Myndir úr safni.

img_0387.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sennilega fyrir ári síðan.

img_2602_1048999.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Rennur hinn bjarti röðull til viðar. 

 


Bloggfærslur 19. desember 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband