Guðmundur Þór Kristjánsson blessuð sé minning þín.

Vinur okkar hjóna Guðmundur Þór Kristjánsson var borinn til moldar í dag.  Mummi fór allof snemma, það var eitthvað svo gott við þennan dreng.  Enda var það auðséð í dag, því þó veðrið væri alveg hræðilega vont var kirkjan yfirfull og margir fóru með honum inn í kirkjugarð. 

 Mummi þekkti sorgina, því hann missti 17 ára gamla dóttur sína í bílslysi.  Hann skildi vel mína sorg og ég er honum innilega þakklát fyrir öll samtölin sem við áttum niður í Samkaupum, þegar við hittumst þar.  Jafnvel meðan hann barðist við illvígan sjúkdóm sem að lokum lagði hann að velli, átti hann huggunarorð til mín.   Aldrei kvartaði hann, heldur sagði ég tek alltaf hverjum degi eins og hann er.  Ég þakka fyrir að vakna á morgnana og ég þakka að kveldi hvern þann dag sem ég hef lifað.  Við ræddum svo margt þarna í biðröðinni við kassann og við kjötborðið og þar sem við hittumst.  Og í hvert skipti kveikti þessi yndislegi maður ljós í mínu brjósti, og í hvert sinn gekk ég út með ljós í hjartanu eftir þau samtöl. 

Takk kæri Mummi fyrir alla þína nærveru og yndisleika, þú varst eiginlega engill, ef þeir eru þá til og ganga á jörðinni.  

ungverjaland20084_104.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér erum við í skemmtilegri ferð sem við fórum með karlakórnum Erni til Ungverjalands.  Karlakórinn söng yfir honum í dag svo fallega, og það mátti sjá rök augu vina hans í kórnum.  

ungverjaland20084_116.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Elsku Mummi það væri auðvelt verk að fylla fleiri blaðsíður með skrifum um þig. 

img_7763_1048663.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En ég ætla bara að kveðja þig með nokkrum myndum úr ferðalagi sem karlakórinn Ernir fór til Ungverjalands. 

ungverjaland2008_075.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vertu sæll minn kæri og innilega takk fyrir mig. 

ungverjaland2008_113.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Elsku Ella mín, þinn missir er mikill. En þú stóðst með honum eins og klettur.  Þín innri ró og æðruleysi er mér sérstaklega minnistæð.  Ég sendi þér og fjölskyldu þinni inni mínar innilegustu samúðarkveðjur.  Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.  En Guðmundar Þórs verður saknað lengi hér í bænum.  Eins og presturinn sagði svo réttilega, í litlum bæ úti á landi stoppar tíminn þegar einhver deyr, því allir taka þátt í sorginni.  Heart


Bloggfærslur 17. desember 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband