Með viðkomu í Köln.

Já Köln, hvers vegna fór ég þangað?

Ég á nokkrar góðar vinkonur gegnum allt mitt líf, sú elsta og kærasta er auðvitað Dísa Gríms, en þar á eftir koma Alley og Obba. 

Ég kynntist þeim þegar ég vann í SÍS í Austurstræti, í skóbúðinni, þegar ég fór til tannlæknis, fyrst vann ég í frystihúsi og síðan þarna í skóbúðinni, á efri hæðunum unnu með fleirum Alley og Obba, og þegar ég ákvað að freista gæfunnar í Glasgow sem aupair, báðu þær mig um að skoða fyrir þær, hvor ég gæti útvegað þeim slík pláss líka.

Að vísu varð ferðin mín ansi ævintýrarík, því ég var stoppuð á flugvellinum af svokölluðu útlendingaeftirliti, lítill karl með pent rakað yfirvaraskegg, sem spurði mig hvað ég ætlað að gera í Skotlandi.  Ég svaraði af bragði að ég ætlaði að koma til að fá vinnu.  Ertu með atvinnuleyfi, spurði karlinn. Nei svarað ég, kokhraust.  Þá færðu ekki að koma inn í landið, svaraði karlinn af myndugleik.  Nú þá fer ég bara til Svíþjóðar svaraði ég fullum hálsi, ég ætla ekki að láta senda mig heim eins og heypoka.  Nei sagði karlinn, við verðum að senda þig heim til Íslands.  Nei sagði ég, ég neita að fara.  Sem betur fer fyrir mig voru komin til að taka á móti mér vinafólk sem ábyrgðist mig í einhverjar vikur.  Jæja þá sagði karlinn, en þú mátt bara vera hér í hálfan mánuð og reyndu ekki að fá þér vinnu. hehehehe.....ég fékk vinnu á elliheimili í Paysley, sem var reyndar skítadjobb,  og fór svo þaðan í aupairinn.  En ég frétti svo seinna að flugvélin hefði verið látin bíða eftir prakkaranum í tvo tíma meðan ég þrasaði við breska ljónið um tilverurétt.LoL

Hvað um það, í Köln býr nú þessi vinkona mín Alley, hún er að vísu búin að vera út um allan heim, í London, BNA, Suður Ameríku og fleiri stöðum, en býr nú í Köln.

Alley og ég.

Jamm Glasgow skvísur árið 1965.

slides_0148

Og við Loch Ness,mikið vorum við flottar á þessum dögum Alley mín, varstu búin að gleyma þessu?

slides_0147

Hér er annar gæinn sem við fórum með. Hinn tók myndirnar.

slides_0183

Við erum auðvitað flottustLoL

Alley og ég.3

Eða manstu puttaferðalagið í maí áður en ég fór heim? Frá Glaslllgow til Tour í Frakklandi?

Það verður rifjað upp annarsstaðar.

IMG_5045

Hér erum við allar eftir þrjátíu ár, mikið hefði ég viljað hafa þig með okkur í haust elsku Obba mín.

IMG_5055

En svona er sönn vinátta tímalaus og alltaf eins.

IMG_5949

En nú erum við á leið til Kölnar frá Berlín í lest.

IMG_5952

Komin á brautarstöðina.  Hér verður bara stiklað á stóru, því aðal ástæðan fyrir komu minni hingað er að heimsækja vinkonu mína.

IMG_5955

Það var smámiskilningur milli okkar um tímann, og meðan við biðum eftir að Alley kæmi eða eiginmaður hennar Manfred, fengum við okkur að borða.

IMG_5967

Áttum svo yndislega stund með þeim hjónum um kvöldið, en urðum að fara daginn eftir, með loforði um að stansa lengur næst.  Og við fórum smárúnt um hina fallegu Köln, áður en við lögðum í hann til Dietlingen í Svartaskógi.

Hér erum við að skrönglast yfir vegg á leið í miðbæinn.

IMG_5968

Og hér er Elías með eina töskuna.

IMG_5969

Hér á þessum slóðum 11. 11. klukkan 11 mínútum yfir 11, er haldin skemmtilegur siður.  Þá fara konur á pöbbarölt með skæri í farteskinu og klippa bindi af karlmönnum sem þær hitta. Gólið er að koma heim með sem flest afklippt bindi. Þetta er svona karnivalstemning, og hér sést að undirbúningurinn er þegar hafin.

IMG_5973

Dómkirkjan í Köln er eitt af því fallegasta af byggingu sem til er. Og hún er bara við hliðina á járnbrautarstöðinni.

IMG_5989

Tilkomumikil og flott.

IMG_5986

Hér er stubburinn að kveikja á kerti fyrir Magnús Erlingsson sóknarprest okkar, þar sem hann er í fermingarfræðslu.

IMG_5977

Og fyrir utan syngja menn af hjartans lyst.

IMG_5979

Og hér eins og annarsstaðar eru svona götulistamenn.  Af hverju er þetta ekki til dæmis í Reykjavík?

IMG_5995

Eins og í öllum öðrum gömlum borgum eru götur mjóar og bara ætlaðar hestakerrum, og lítlið við því að gera.

IMG_5997

Og húsin allskonar.

IMG_5998

Sjáið hvað ég meina.

IMG_6000

Hér höfum við ána Rín.

IMG_6003

Vilð ættum ef til vill að vera mildari í dómum okkar um skipulag og húsavernd.

IMG_6005

Úlfurinn settur í böndLoL

IMG_6006

Ég meina að það getur alveg harmonerað saman gamalt og nýtt ekki satt?

IMG_6007

Og við þessa elskur, alveg í takt.

IMG_6008

Eða þannig, hún er dálítið skrýtin þessi ótrúlega væntumþykja, gegnum súrt og sætt, þykkt og þunnt, en svona er það bara.Heart

IMG_6016

Og rómverjar voru allstaðar ekki satt?

IMG_6018

Skemmtun á götum úti.

IMG_6019

Og enn og aftur flottur arkitektur.

IMG_6020

Og svo var farið inn á kaffihús og pantað súkkulaði og ís.

IMG_6027

Svo lá leiðin áfram til Svartaskógar, til Birgin og Stefan ástkærra vina okkar þar.

IMG_6039

Elsku Alley mín ég lofa að stoppa lengur næst, ef til vill bara koma sjálf og við ruslumst um Köln og nágrenni, og ég reyni að dobbla Obbu með það myndi verða ofsalega gaman. Heart Innilega takk fyrir okkur Manfred og Alley.

IMG_6043

farin áleiðis til Dietlingen í Svartaskógi.  En þar verður næsti áfangi.

 


Kosningar eða ekki!

Mér finnst svífa yfir vötnum að kosningar eru í farvatninu.   Ekki vegna þess hvernig ríkisstjórnin reynir að segja okkur annað, eða vegna tunnumótmælanna, né heldur grasserandi óánægjunnar í þjóðinni.

Nei það er eitthvað annað.   Það er hvernig menn eru allt í einu farnir að skrifa, menn sem alltaf reyna að komast að, fyrir kosningar,  þeir eru svokallaðir atvinnuframbjóðendur.   Reyna annað hvort að fara fram sjálfstætt, eða hengja sig á nýrri framboð og samtök. 

Nú bólar á þessum aðilum, og sýnist mér að þeir séu komnir í fullan gang að vekja á sér athygli. 

En það er líka greinileg örvænting þeirra sem styðja þessa ríkisstjórn.   Hvernig þeir á allan hátt reyna að gera lítið úr mótmælum, reyna að koma því inn hjá fólki að öll mótmæli í dag séu runninn undan rifjum Sjálfstæðismanna.  Þeir eru aðal grýlan í dag.  Ég vona að fólk hlusti ekki á þessar aumkvunarverðu raddir fólksins sem sjálft stóð og hafði hæst í búsáhaldabyltingunni, og heimtaði réttlæti, gagnsæi og jafnræði. 

Nú þegar þeirra eigið fólk er við stjörnvölin, og jafnvel fjölskyldur, og fólkið mótmælir þeim svikum, lygum og þöggunum sem núverandi ríkisstjórn beitir, þá heitir það eitthvað allt annað.   

Ég tek líka eftir því að menn eru að verða orðljótari og illskeyttari en áður.  Það lýsir ákveðnu vonleysi um að réttlætið sé handan við hornið.  Enda er greinilegt að ekki er mikið að gerast í slíku hjá núverandi ráðamönnum.  Þeir hafa greinilega gefist upp fyrir erlendu ráðríki, og hugsa bara um að sigla fleyinu inn í "örugga" höfn ESB  og AGS. 

Það er svo pínlega augljóst að þau Steingrímur og Jóhanna eru ekki að hugsa um almenning í landinu, heldur sig sjálf og framtíðina hverju sem þeim hefur annars verið lofað til að vera þæg eins og börn á leikskóla.  Og fylgjendur þeirra dansa með, rétt eins og grillararnir og skemmtanafíklarnir í XD gerðu á sínum tíma.

Jæja þeir skulu nú upplýstir um það að mómælendur í dag eru margir þeir sömu og áður, það er fólkið í landinu sem er orðið dauðþreytt á valdagræðgi og ráðslagi svokallaðs fjórflokks, það fólk sem stendur fremst í mótmælum núna styður ekki lengur þá pólitík sem stunduð hefur verið um áratugi.

Þetta fólk vill breytingar.  Það vill réttlæti, gagnsæi, og að hugað verði að almenningi og þörfum hans, en ekki persónulegum högum pólitíkusa hvaða nafni sem þeir nefnast.

Þegar verið er að reyna að sverta Hreyfinguna og Frjálslyndaflokkinn, með því að varaformaður F og baráttumanneskja í Hreyfingunni séu þarna að mótmæla, þá er það bara út í loftið.  Því það eru einmitt þessir tveir flokkar sem eru ásamt Borgarahreyfingunni og Hægri grænum mesta von Íslendinga um réttlæti og aðgerðir til handa borgurum landsins.

Í dag eru þetta litlir flokkar, mest megnis vegna þöggunnar og tilrauna fjórflokksins til að halda þeim í skefjum.  En ef fólk les málefnasamning Frjálslynda flokksins og horfir yfir það sem þeir gerðu á sínum tíma á Alþingi, og hlustar á hvað Hreyfingin hefur verið að gera, opna dyrnar og gluggana til almennings, rétt eins og þeir lofuðu fyrir kosningar, þá ættu þessir flokkar að fá meirihluta á Alþingi næst þegar kosið verður.

Fjórflokkurinn vill ekki breytingar, þeir vilja ekki nýja sterka aðila inn, vegna þess að þeir eru búnir að koma sér vel fyrir í kerfi þar sem þeir hvort heldur sem er, eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, hafa sína bitlinga í friði, og ekki er hróflað við neinu sem skiptir máli.  Það sést best nú undanfarið á ráðningu Árna Matthísen til FAO og endurráðning Halldórs Ásgrímssonar í Norðurlandaráð.

Ef fólk vill ekki opna augun og sjá hvað er að gerast, þá er okkur ekki við bjargandi.  Þá getum við bara spriklað í spillingarsúpunni, það sem eftir er, meðan unga fólkið okkar flýr land, til að lifa betra lífi með fjölskyldu sinni. 

Ég finn það allstaðar að meiri hluti fólks hugsar líkt og ég í þessu, ég sé það á ályktunum þjóðfundarins, og ég heyri það sem fólk segir, og það sem það skrifar.  Við viljum breytingar, og við megum ekki láta bera okkur af leið, með því að láta spillingaröflin etja okkur saman í flokkadrætti. 

 Við verðum að fara að standa saman og koma greftrinum út, ef við viljum láta okkur líða vel í landinu okkar fagra og gjöfula, þar sem allir ættu að hafa nóg að bíta og brenna.

Upp með tunnur og barefli, upp með penna og blokk, upp með tölvuborð og blogg.   Orðið er sverð þeirra sem komast ekki niður á Austurvöll.  Og orðið getur verið beitt vopn, sé því beitt af hógværð og stillingu, en festu og ákveðni. 

Stöndum nú einu sinni saman öll um að koma á því réttlæti sem við öll þráum.  Sýnum að við getum staðið saman sem þjóð.  Og breytt þeim gangi sem nú er.  Ef við komum þessari ríkisstjórn ekki frá völdum, neytum þá allra bragða til að veita henni það aðhald sem hún þarf til að halda sig við vilja og þarfir okkar sem hér búum.  Það ætti að vera forgangsmál þeirra, en ekki að flengjast um heimin leikandi stóra karla, og þenja sig, meira útlengindum til athlæis en eitthvað annað. 

Ein þjóð í einu landi, saman getur lítil þjóð lyft grettistaki, það höfum við þegar sýnt svo ekki verður um villst en meira þarf til.  Nú er lag.

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

Að lokum vil ég biðja frambjóðendur til Stjórnlagaþings að auglýsa númer sín helst á mynd sinni eins og Kolbrún Baldursdóttir bloggvinkona mín gerir.

Ég er nefnilega að fara að huga að þeim sem ég ætla að kjósa, og þar sem það verður númerið sem skiptir máli en ekki nafnið, vil ég endilega fá að vita númerin.  Ég ætla mér að vanda valið, og lesa það sem frambjóðendur hafa fram að færa.  Þarna eru margir sem ég hef áhuga á að styðja, og þess vegna þarf ég að fara að nótera niður hjá mér númer þeirra sem ég treysti best.


Bloggfærslur 8. nóvember 2010

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband