6.1.2010 | 12:55
Í fullri alvöru segi ég nú!!
Það viðhorf sem birtist hér er alveg með ólíkindum. Ætlar ríkisstjórnin virkilega að fara í stríð við meirihluta landsmanna? Þau hafa ekki virt háværar kröfur og beiðnir fólksins um betri samning, haldið áfram sínum hræðsluáróðri. Þegar svo forsetinn hafnar þessum ólögum, þá er lagst í ennþá meiri fýlu, við ætlum ekki að gera neitt, þetta er bara starfsstjórn til að lágmarka skaðan sem forsetinn hefur valdið.
Því líkur barnaskapur.
Ég skal segja ykkur frá mínu brjósti, það voru rúmlega 50.000 íslendingar sem skrifuðu undir áskorun, samkvæmt skoðanakönnunum voru yfi 70 % landsmanna á móti þessum samningi. Nóta bena ekki á móti því að greiða samkvæmt samþykkt frá því í sumar. En þið þverskölluðust við og vilduð ekki styggja breta og hollendinga, vegna þess að DRAUMURINN UM ESB VAR STERKARI EN UMHYGGJA YKKAR FYRIR ÞJÓÐINNI. Þetta er nú sannleikurinn hann er sár, og það svíður undan honum. Mest svíður ykkur sennilega að fólkið í landinu fékk uppreisn með ákvörðun forsetans og néru því upp í andlitin á ykkur að þið væruð á rangri leið.
Þið ERUÐ EKKI AÐ LÁGMARKA SKAÐAN MEÐ SKÍTLEGRI FRAMKOMU YKKAR, ÞIÐ ERUÐ AÐ HÁMARKA HANN. í stað þess að vera í liði með þjóðinni, breyta um kúrs og standa með ákvörðun forsetans og allra þeirra sem stóðu með honum, þá sýnið þið ykkar rétta eðli hroka og yfirgang, með því að gefa bretum og hollendingum vopn í hendur, til að reyna að koma yfir okkur klafanum sem þið ætluðuð okkur alltaf. Til að fá miðann inn í ESB. Ykkar er skömmin. Ef þið ætlið ekkert að gera annað en að koma þjóðinni gegnum þjóðaratkvæði um Icesave, gerið okkur þá þann greiða að fara frá og láta aðra um að bjarga landinu. Þá eruð þið greinilega ekki fær um slíkt. Það hefur marg oft komið fram að málin þola enga bið. 'Eg hef séð svona framgang hjá ungum börnum þegar þau fá ekki það sem þau vilja. En þið eigið að vera fullorðið fólk, meira að segja fullorðið fólk með gríðarlega ábyrgð.
Í stað þess að fylkja ykkur um meirihluta landsmanna, og vinna af heilindum með okkur öllum, þá er sest út í horn í fýlu. Það er nú heila málið. Og það þegar landið brennur. Þið komuð okkur í þessa aðstöðu með þumbara hætti og viljaleysi til að hlusta á hvað þjóðin var að segja. Svo hlakkar í sumum við að Sjálfstæðismönnum og Framsókn verði hleypt að í stjórn. Ef svo verður, er það EINGÖNGU YKKUR AÐ KENNA, AÐ FÁ HRUNFLOKKUNUM ÞAÐ VALD AÐ STÖÐVA ALLAR RANNSÓKNIR. ÉG LÝSI FULLRI ÁBYRGÐ Á YKKAR HERÐAR EF SVO VERÐUR.
En ég krefst þess að forsetinn setji á utanþingsstjórn ef þetta eru hótanirnar ykkar, við þær er ekki hægt að una.
![]() |
Ríkisstjórnin er starfsstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
6.1.2010 | 00:00
Ég lít í anda liðna tíð. Græt núið, en vona það besta.
Með tár í augum kvaddi ég tengdadóttur mína, Sóley Ebbu og litla Símon Dag í gær, og hrærð kvaddi ég Inga Þór frumburð minn, drengina Kristján og Aron ásamt litlu Evítu Cesil í dag, þar sem flugu á vit ævintýra í Noregi. Nú er ég að bíða eftir því að Bára mín, Bjarki og stelpurnar komi heim, þau eru einhversstaðar á leiðinni, sú stutta farin að vilja koma heim í Kúlu.
En á meðan ég býð, datt mér í hug að gleðja ykkur fólkið mitt hér með nokkrum góðum myndum, svona í sárabót fyrir allt hjalið um pólitíkina.
Við erum komin á árið 1972 eða svo, erum að smíða okkur hús á Seljalandsveg 77, og unnum það að mestu sjálf með aðstoð fjölskyldunnar.
Hér er ærslafulli rauðhausinn systir mín Halldóra að mála.
Her er sami staður búið að mála, smíða og flutt inn í kjallarann. Og hér er örugglega veisla í gangi, og yngsta barnið í malla á mammadín.
6 ára afmæli Inga Þórs og pabbi og mamma í veislunni.
Hér bjuggum við áður en við fluttum í nýja húsið, þetta er ekki Ásthildur sulla niður Cesil, heldur Bára Aðalheiður mamma hennar
Það er nú myndarlegur gaur sem maður giftist svo eftir allt saman.
Fljótavík ættaróðal föður míns og margra fleiri. Þessi jeppi var með fyrstu farartækjunum sem notaður var til að flytja vistirnar frá fjöru til bústaðar. Núna dugar ekkert minna en sexhjól.
Nonni bróðir og Elli minn í Fljótavík, having a good time.
Það var svo farið í and á Sodiac.
elskuleg mágkona mín Badda.
Smá jólastuð þetta er fyrrverandi mágur minn og sjarmur Siggi Ásgeirs.
Meðan við vorum að byggja fengum við leigðan sumarbústað inn í Tunguskógi, hér eru Sigga systir, Inga Bára systir Ingi Þór og Bára.
Við ferðuðumst líka mikið með börnin innanlands, annað var ekki í boði, fátækir foreldrar að byggja sér hús. En þetta er dæmigert fyrir það sem koma skyldi, ég tek myndir og Elli minn sér um börnin hehehe.
Hér heiðrum við Bólu Hjálmar með nærveru okkar. Júlli krullinhærði ljóskollurinn hér fremst. Ingi og Bára. Skafti ekki fæddur.
Hér er svo Bára mín
Og Skafti, Sólveig Hulda er rosalega lík honum.
Og Ísafjörður mín kæru, svolítið öðruvísi en núna, en samt yndæli bærinn minn.
Svo segi ég bara góða nótt, megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Bloggfærslur 6. janúar 2010
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar