8.9.2009 | 20:14
Kúlulíf í smáu og stóru.
Ég er í það heila svona frekar jákvæð manneskja. Og ég get tekið áföllum held ég ágætlega. Það sem ég þoli ekki er óréttlæti og mismunum í hvaða mynd sem er. 'Eg get alveg lagt á mig meiri byrgðar og hert sultarólina. En ég er ekki sátt við að gera það til að aðrir sérstaklega þeir sem komið hafa okkur í þessa aðstöðu komist hjá ábyrgð. Og þá á ég við alla sem hafa komið að málinu. Útrásarvíkingana, stjórnvöld bæði fyrr og nú og svo þá sem eiga að vinna að því að koma réttlætinu á, til dæmis saksóknurum og dómsvaldi.
Þetta fólk verður að átta sig á því að óréttlætið brennur á okkur sem tókum ekki þátt í vitleysunni nema að hluta til, og eigum nú að sitja í súpunni, meðan ekkert er gert til að láta þá sem komu þessu af stað, sleppa bara með skrekkinn. Það er orðið afskaplega ótrúverðugt svo ekki sé meira sagt eftir heilt ár frá hruninu að það hafi ekki verið nægur tími til að taka á þessum fjanda. Og á meðan fyrnast málin óðfluga, þeir menn - pólitíkusar sem bera mesta ábyrgð eru til dæmis að sleppa, og sennilega verður líka séð til þess að aðalsakamennirnir sleppi líka með skrekkinn. Því þetta virðist vera eitt allsherjar samsæri, stjórnvalda og peningamanna. Og það sem er verst að við getum engum treyst til að vinna í okkar hag. Það er eins og allt kerfið sé kolsjúkt og samtryggingin algjör. Verðum við að setja upp höggstokk á Lækjartorgi og byrja að afhausa?
En ég ætla að hvíla mig á þessu svartnætti um stund, hef sofið illa undanfarið og haft áhyggjur. En ég ætla ekki að láta beygja mig í duftið. Lífið heldur áfram, hvað sem gerist. Og ég ætla að sigla minn sjó ofansjávar og ekki láta drekkja mér. Til þess mun ég beita öllum mínum kröftum, viti og reynslu.
Tek ég þar með upp léttara hjal.
Fyrst nokkrar fjalla og skýjamyndir fyrir fjallafólkið mitt.
Það er hlýtt þó það hafi rignt í dag.
Tunglið veður í skýjum, enda er máni gamli á sínu venjulega fylleríi þessa dagana. en seinnipartinn braust þó sólin fram.
Þessa bæjarmynd tók Hanna Sól í dag, þegar við ókum frá leikskólanum hennar.
Hér er hún svo að spá í að fá sér núðlur í eftirmiðdagsrétt.
Og restin af börnunum ákvað líka að fá sér núðlur, enda góður og ódýr matur.
Sigurjón kíkti við með pabba sínum.
Ásthildur sem er orðin voða stór og dugleg er hér að hjálpa afa að setja utan um rúmin. Og tekur því alvarlega, enda nýkomin úr sturtu.
Á meðan var barist með sverðum og vatnsbyssum út í garðskála.
Þar eru allir jafnir af hvoru kyni sem er. Enda er kynþáttamisrétti aldrei meðal barna, þau vita sem er að allir eru jafnir.
Ekki bregst fyrirsætunni bogalistinn frekar en fyrri daginn.
Svo er að finna íslenska barnaefnið, meðan amma eldar matinn.
Og laukurinn í tölvunni með músik og syngur við raust. Hann er allur í músikinni drengurinn sá.
Svona er lífið í kúlunni. Og verður vonandi áfram. Við sjáum til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Bloggfærslur 8. september 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 2023314
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar