Væri ekki nær að byggja fangelsi.

Það eru tvær fréttir sem ég get ekki gleymt, það er annars vegar fésið á Álfheiði Ingadóttur, þar sem hún rakti að það ætti að byggja háskólasjúkrahús, eða hátæknisjúkrahús hvaða nafni sem ráðamenn vilja nefna þessi ósköp, annars vegar og svo viðtal við Erlend Baldursson um stórlega vöntun á fangelsisplássum.

 Nú þekki ég dálítið til, eða gerði hér í denn um fangelsismál.  Ég hef líka átt góð samskipti við Erlend Baldursson.  Og veit að þar fer gegnheill maður.  Einnig gladdist ég mjög þegar Margrét Frímannsdóttir var ráðin forstöðumaður að Litla Hrauni.  Enda held ég að þar hafi verið unnið gott starf undir hennar stjórn.  Og margt gott áunnist.

En betur má ef duga skal.  Ég þekki það að það er afar erfitt fyrir fólk sem hefur hlotið fangelsisdóma að þurfa að bíða eftir að fá að afplána, og því erfiðara eftir því sem tíminn lengist.  Málið er að þeir sem þannig er ástatt fyrir, búa við streitu og kvíða meðan á biðinni stendur, en ekki bara það, heldur hafa þeir oft á tíðum unnið í sínum málum, eru komnir í annað líf, með fjölskyldu, börn hafa unnið bug á fíkn og slíkt.  En eiga samt alltaf þetta inni.  Það er bara óásættanlegt að mínu mati að menn þurfi að búa við svona aðstæður.

Þetta hefur líka annan flöt og miður skemmtilegan, en það er að þeir sem verst eru settir, hugsa sér til að það sé í lagi að fremja glæpi, vegna þess að þeir þurfi ekki að fara inn fyrr en eftir dúk og disk.  Það er hinn flöturinn á peningnum.

Ég set hér inn grein eftir Lýð Ægisson, þar sem hann tiplar á þessu hátæknisjúkrahúsi, Lýður er læknir og veit um hvað hann er að tala.  Ég set líka hér inn viðtal við Erlend Baldursson.

Og ég spyr er ekki nær að byggja fangelsi, ef menn vilja endilega bruðla með fé almennings til bygginga, í stað þess að taka skynsamlegri ákvarðanir?

Það er í raun og veru absúrd að þau skuli virkilega halda að þetta gangi í almenning, þegar verið er að loka deildum, segja upp fólki í stórum stíl og skera niður þjónustu.  Áð þá getum við sætt okkur við að setja 45000 milljónir í slíkt bruðl?

Við skulum muna að þeir sam hafa lent á rangri braut eru líka fólk, og það er betra fyrir samfélagið að þeir hljóti þá umönnum og aðstoð við að komast út í lífið sem fyrst sem betri menn.  Það verður ekki gert með ástandið eins og það er núna. 

http://bb.is/Pages/82?NewsID=137179

 

 

 LydurArna 

 
Lýður Árnason.

Lýður Árnason | 07.09.2009 | 15:31Hátækni í hallæri

Samkvæmt stjórnarliðum á að fara á fjörurnar við lífeyrissjóðina og fá þá til að fjármagna draum fyrrum einræðisherra um hátæknisjúkrahús. Ætla mætti að Perlan og ráðhúsið dygðu sem bautasteinar en allt skal vera þegar þrennt er. Fulltrúi stjórnarmeirihlutans sagði í sjónvarpi byggingu hátæknisjúkrahúss ekki bara atvinnuskapandi heldur einnig arðbæra og nefndi í því sambandi 2000 milljónir árlega. Byggingin sjálf á svo að kosta 45000 milljónir. Ekki veit ég á hvaða plánetu þetta fólk lifir en samkvæmt niðurskurðaráætlun sömu aðila slagar tap fyrirliggjandi hátæknisjúkrahúss hátt upp í þessar 2000 milljónir. Að ekki sé minnst á uppsagnir starfsfólks og lokanir deilda. Atgervisflótti blasir við og þvæla um atvinnusköpun er móðgun við starfsfólk heilbrigðisgeirans hvar í lagi sem það er.

Hvers vegna er aflögufærni lífeyrissjóðanna ekki notuð til að tryggja landsmönnum áframhaldandi eignarhald orkuauðlinda? Sjá stjórnmálamenn ekki að utanaðkomandi yfirtaka verður fjármögnuð með hækkun orkuverðs? Hagur hluthafans verður metinn hærra en neytandans eða hefur fólk ekkert lært? Umgengni einkaframtaksins hefur vægast sagt ekki verið til fyrirmyndar gagnvart íslenskum almenningi og nóg að vísa til gegndarlausrar sjálftöku, skírða ýmsum nöfnum og réttlætta enn verri rökum. Fjármagn, innlent sem erlent, er auðvitað innspýting og eftirsóknarvert en fyrst þarf að hanna regluverk sem tryggir almannahagsmuni. Þangað til verður að stíga varlega niður í þessum efnum.

Skuldastöðu Íslands lýsa sumir í einu orði: Gjaldþrot. Hvort ofmælt sé kemur í ljós á næstu mánuðum en endurreisnarvonin felst ekki í hátæknisjúkrahúsi né músikhúsi, hvorutveggja er í peningum talið óarðbærar framkvæmdir og ætti að flokka sem dekurverkefni ríkra þjóða sem ekki vita aura sinna tal. Endurreisnarvonin felst í nýju sjókorti, nýrri stjórnarskrá þar sem einkaframtakinu eru settar skorður og almenningur varinn fyrir öllu því forréttindasukki sem viðgengist hefur í stjórnsýslu og fjármálalífi. Endurreisnarvonin felst ekki í endalausum fjárskuldbindingum heldur þvert á móti fjárhagslegu sjálfstæði. Endurreisnarvonin felst í raunverulegri verðmætasköpun og hana sækjum við til sjós, fiskurinn spriklandi út um allt. Endurreisnarvonin felst í skýrum skilaboðum frá stjórnvöldum um að þeir sem að hruninu stóðu og hinir sem létu yfir höfuð leggjast að bregðast við séu látnir sæta ábyrgð, sóttir til saka eða látnir taka pokann. Hvað allt þetta áhrærir eigum við langt í land og valdhafar fastir í rangri forgangsröð. Og þetta innlegg núna með byggingu hátæknisjúkrahúss veikir enn vonir manna um vitrænan kúrs. Að hanga á vondum hugmyndum í góðæri er bruðl en í hallæri eins og núna brjálæði.

Sé eitthvert vit í atvinnuuppbyggingu ríkisstjórnarinnar ætti hún að beinast að tugthúsi undir útrásarlabbakútana sem rændu bankana og betrunarhúsi fyrir stjórnmálamennina sem sváfu á meðan. Ekki væri amalegt að vera arkitekt og fá að teikna slíkt.

L Á.

 

Brotamenn bíða þess að afplána

262449_258_preview

Erlendur S Baldursson, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun, segir að brotamenn þurfi í sumum tilvikum að bíða í nokkur ár eftir plássi í fangelsum. Um 240 manns bíða eftir því að geta byrjað afplánun.

 

Erlendur segir enn kröfu um það í þjóðfélaginu um að refsingar verði þyngdar. Um leið og einhver fær þriggja ára fangelsisdóm í stað eins árs, þýði það að hann verði miklu lengur inni í fangelsi og þá losna færri pláss.
Í hegningarhúsinu á Skólavörðustíg er maður frá Brasilíu sem sakaður sé fyrir mjög alvarlega afbrot í heimalandi sínu og ófrísk kona frá Litháen, komin sex mánuði á leið. Erlendur segir það engar ýkjur að ástandið sé slæmt.

 

frettir@ruv.is


Bloggfærslur 16. september 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2023313

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband