4.8.2009 | 13:41
Jæja Jóhanna fundin!
Jæja þá er konan fundin í bili. Þið verðið að fyrirgefa mér að ég tali svona um Jóhönnu, en málið er að enginn manneskja hefur valdið mér meiri vonbrigðum en einmitt hún, sem hefði getað sameinað þjóðina og leyst stóran hluta vandans, en kaus í stað þess að kasta sprengju út í samfélagið og sundra fólkinu sem hún ætlaði að bjarga.
Ekki hefur heyrst púst í henni, auðvitað átti hún að tjá sig þegar aðstoðarmaður hennar réðst fram gegn Evu Joly, hún hefði getað slegið á þær gárur, eða á að segja risaöldur. Hún hefði einnig átt að koma sjálf fram í fréttum en ekki senda fjölmiðla fulltrúa sinn, því það var ljóst að hann hafði ekkert að segja. Og hún átti auðvitað að koma sjálfviljug fram strax þegar fréttabannið var sett á ríkisútvarpið. Hún gerði ekkert af þessu, það segir mér að hún sé í rauninni búin að gefast upp. Hún á ekkert eftir til að stappa stálinu í fólkið í landinu. Hún virðist ekki skilja að fólk vill að skjaldborgin rísi og aðstoðin verði að raunveruleika. En þess í stað er bankayfirvöldum gefin laus höndin með að framkvæma stærsta þjófnaðinn. Þ.e. að ræna fólk eigum sínum, og jafnvel hygla gæðingum sínum. Allavega ef sagan er sönn sem ég heyrði.
Hún er um mann sem hafði nýlega byggt sér hús. Hann var eins og svo margir aðrir fastir í lánasnörunni, sagan segir að hann hafi farið á fund bankastjórans síns og sagt að hann gæti ekki borgað lánið svona, en var samt með áætlun sem hann bar undir yfirmenn bankans. Svarið var nei, svo hann missti húsið. Svo frétti hann seinna að starfsmaður í bankanum hefði fengið húsið hans á þeim kjörum sem honum var neitað um.
Ég hefði vilja fá meiri staðfestingu á þessari sögu, og hvet þá sem þetta lesa og vita um þetta dæmi eða svipuð að láta í sér heyra. Því þetta er það ósvífnasta af allri ósvífni sem ég hef heyrt. Og ef þetta er satt, þá vil ég bara segja, hvað gengur stjórnvöldum til að hafa þvílíkar skepnur stjórnandi ríkisbönkunum? Það er mér óskiljanlegt. Samúð þeirra fyrir almenningi í landinu er þá ekki túsildingsvirði.
En núverandi forsætisráðherra hefur sýnt það undanfarið að hún er gjörsamlega óhæfur stjórnandi, og ætti því að rjúfa þing og fara fram á að landinu yrði stjórnað utanþings, með fólki sem væri algjörlega óháð stjórnmálaflokkum, fólk með reynslu, sérfræðiþekkingu á málefninu og hefði kjark og þor til að takast á við okkar brýnu málefni. Það mættu gjarnan vera erlendir aðilar. Eva Joly kemur þar sterklega til greina sem aðili, eða að tilnefna fólk sem getur og kann.
Mér er alveg ljós að Jóhanna Sigurðardóttir hefur ekki kjark eða úthald til að vera í forsvari fyrir þjóð sína því miður og á því þann kost einan að stíga niður og gefa okkur landsmönnum tækifæri til að vinna okkur út úr vandanum með fólk í fararbroddi sem er ekki á kafi í spillingunni eða samþættingunni.
Ég vil svo persónulega að flokkar verði tímabundið bannaðir á Íslandi, meðan þeir eru aflúsaðir og hvítþvegnir af þeim vandræðagangi og heimóttarskap sem þeir hafa sýnt síðan hrunið átti sér stað. Við viljum nefnilega athafnir en ekki innantóm orð, eins og Guð blessi Ísland, eða við viljum byggja skaldborg um fólkið í landinu. Þetta heita frasar með ekkert innihald, ekki frekar en peningar útrásarvíkinganna sem hvergi finnast og ekki einu sinni gerð tilraun til að nálgast þá.
![]() |
Forsætisráðherra segir lögbann fráleitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Bloggfærslur 4. ágúst 2009
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar