Beograd

Ég er í afslöppun upp æa hótelherbergi nákvæmlega núna.  Við Elli fórum á baðströnd hér í dag, ekki á sjó en við ána Sava. Þar var margt um manninn og verulega heitt, þar sem hitinn er yfir 35 %. 

Í gær fórum við að borða í stærsta spilavíti í Evrópu að því að okkur var sagt.  Sannarlega 5 stjörnu restrausrant enda maturinn og þjónustan algjört æði sértaklega fyrir sveitalubbana okkur, núna er fólkið vinir og vinnufélagar Bjössa komin og þetta er því um 20 manna hópur.  Serbarnir vildu allt fyrir okkur gera, því við erum stærsti hópur ferðamanna sem hafa komið hingað hingað til.  Ferðaskrifstofa ríkisins hefur umsjón með þessu öllu og þið fáið síðar að vita allt sem þar er innifalið. Forstjóri ferðaskrifastofunnar var þarna kominn til að fylgjast með að allt færi vel fram.  Það virðist meiriháttar mál að fara inn í spilavíti, það þarf að fylla út einskonar register eins og maður þarf að fylla út í flugvélum, síðan er tékk inn hlið, það þarf að sýna passa og leitað á fólki, gengið inn um hlið eins og á flugvöllum, allar myndavélar teknar af manni og svo framvegis.  Eins mikið og ég er nú á móti svona, lét ég mig hafa það í þetta sinn, og ég varð ekki fyrir vonbrigðum með mat eða þjónustu. En sorry engar myndir.

En það er gífurlegur hiti hér í Beograd,  Eftir smá stund förum við að sigla á Dóná og borðum kvöldmat um borð í ferju. En ég ætla að senda ykkur nokkara myndir frá í dag, ein auðvitað fáið þið svo ferðasöguna beint í æð þegar heim kemur.

Belgrad 15.7.09 217

Þetta er aðvísu ekki sandströnd, en ósköp notaleg fyrir utan það

Belgrad 15.7.09 060

Útsýnið út um gluggan á Hótel Zíra.

Belgrad 15.7.09 052

Lítill ömmustubbur Arnar Milos með pabba sínum, en hann er rosalega duglegur strákur.  Við erum núna öll saman á  Hótelinu líka fyrrverandi hans Ella míns, en við erum bara flottar saman.

Belgrad.15.7.09 013

Mín á markaðnum að kaupa sér húfu, enda nauðsynlegt í öllum þessum hita.

En nú þarf ég að þjóta, bless mín kæru og hafið það gott.  Ég er að verða uppétin af fjandans moskitóunum og að drepast úr kláða, en þá er bara að bíta í jaxlinn og bölva í hljóði.

Mikið er ég annars sorgmædd yfir hvernig stjórnmálin eru að þróast heima, þegar við þurfum virkilega að standa saman sem þjóð, þá kasta stjórnamálamenn hverri bonmbunni á fætur annari og skilja fólkið eftir í rjúkandi rúst. Svei þeim bara. Við eigum ekki að láta þá blekkja okkur, og við eigum alls ekki að verja þá vegna flokkadrátta það sem gildir í dag er að við fólkið stöndum saman og látum engan blekkja okkur, því hér er ekkert upp á borðum eins og þau reyna að segja  okkur, hér er allt njörvað undir borðinu og enginn veit hver er að gauka hvað að verjum, eins og þýskur vinur minn sagði, það er það sem þeir gera, og þeir hafa nóga peninga til að kaupa fávísa pólitíkusa til fylgilags við hvað sem er.        


Bloggfærslur 18. júlí 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband