Daglegt kúlulíf.

Lífið gengur sinn vanagang hér í kúlunni. 

IMG_9069

Sumir eru að verða sjálfstæðari, ég gedidda sjál.  Ekki hjápa mé.

IMG_9073

Og svo er puðast við, þangað til þetta er komið.  Gedidda.

IMG_9070

Ekki hjápa.

IMG_9071

Afi hjápa mé.

IMG_9076

Svo gerum við sona og sona....... Heart

IMG_9077

Sú stóra fór í ballett kjól í gærmorgun.

IMG_9081

Þetta er örugglega lítill búálfur LoL

IMG_9083

Krían í varpi á Suðureyri. 

IMG_9087

Veðrið á sjómannadaginn.

IMG_9092

Afi matar ungana LoL

IMG_9094

Svo notar maður bara það sem hendi er næst sem leikföng.

IMG_9098

Svo hjálpar maður ömmu að vökva.

IMG_9099

Það er ábyrgðarmikið starf eins og sést á ákveðninni í svipnum.

IMG_9103

Stóra systir fékk líka að prófa aðeins.... en bara aðeins.

IMG_9105

Úbbs hehehe smá hryllingsmynd.  En ekkert plat samt.

IMG_9102

veðrið í gær var líka ágætt.

IMG_9106

ár og dagur síðan það hafa verið svona margir togarar í höfninni í einu.

IMG_9107

ég fékk fjórðubekkinga í Grunnskólanum í heimsókn um daginn.  Eitt barnabarnið er þar í bekknum og þau hafa verið að lesa söguna sem ég samdi fyrir krakkana mína í bekknum þeirra í vetur Ævintýrið um Loðfílana.  Einn kennarinn spurði þau hvort þau vissu úr hvaða dýri þetta bein væri.  Það stóð ekki á svarinu.  Þetta er loðfíll  LoL Og það er nokkuð öruggt ekki satt?

IMG_9108

svona var veðrið fyrst í morgun, en nú hefur létt til.  Þó er ekkert sérlega hlýtt.

IMG_9113

Tilbúnar í leikskólann í morgun.  Aðlögunin búin og hún voða dugleg á Sólborg.

IMG_9114

Og minn á námskeiði í sumarháskóla unga fólksins.  Var að læra creative writing í gær og myndmennt í dag.  Þetta er spennandi og skemmtilegt fyrir krakka.  Þau eru allavega ánægð Sóley Ebba og Úlfur.

En þetta er skammturinn í dag af myndum.  Eigið góðan dag Heart


Hugsað upphátt.

Sökum þess hve mikið er að gera hjá mér þessa dagana hlusta ég lítið á fréttir, kastljós eða aðra fréttatengda þætti.  Ef til vill sem betur fer.  En það er líka til þess að ég er orðin alveg rugluð í ríminu.  Það bylja á okkur skrifin og hasarinn um Icesave og ESB.  Þetta virðist samtengt og ekki hægt að skilja hvað frá öðru.  Mönnum er heitt í hamsi og margir ofsareiðir.

Ég hef ekki vit á Icesave, hvort skynsamlegra sé að ganga að þessum nauðasamningum, eða reyna að klóra sig á annan hátt út úr vandanum.  Held helst að Guðjón Arnar og Frjálslyndi flokkurinn hafi verið með réttu lausnirnar strax í upphafi, að bjóða bretum að fyrst þeir settu á okkur hryðjuverkalög og settu okkur í þær að stæður að frysta allar eignir bankanna úti, þá áttu þeir þann eina kost að taka á sig eignirnar, og þurfa sjálfir að koma þeim í verð, en við værum frjáls af þessum nauðaböndum.

Ég get ekki séð að ég og fólk í minni aðstöðu sem hvergi kom nálægt þessu sukki, skulum bundinn á skuldaklafann, en útrásarliðið ennþá að skemmta sér með fræga fólkinu í útlöndum á sínum skemmtibátum, penthouseíbúðum á bestu stöðum í London og New York, meðan meðaljónin er borinn út úr sínu húsi. 

Ég bara skil ekki þessa linkind í stjórnvöldum, og hvað varð eiginlega um; allt upp á borðið?  Og hvar er Jóhanna.  Er álagið orðið of mikið fyrir hana.  Eða er hún sár yfir að vera ekki lengur vinsælasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi?

Ég verð að viðurkenna að ég hef misst allt álit á konunni.  Hélt að þar færi heiðarleg kona sem stæði undir því að vera kvenhetja.  En snerist hugur þegar hún fór að endurtaka sig í sífellu um að eina leiðin væri að fara í ESB.  Mér fannst hún hreinlega vera umskiptingur.  En svo bregðast krosstré sem önnur, og þetta krosstré hefur ekki bara brugðist, heldur kvarnast í smá agnir.  Samfylkingin var aldrei trúverðug meðan Ingibjörg var þar við völdin, maður sá það svona smátt og smátt, loftbóla sem ekki er treystandi því miður, því þar innanborðs er margt gott og gegnheilt fólk með hugsjónir.  En þau mega vita að þær hugsjónir eru fótum troðnar af stjórnvöldum sem virðast eingöngu hugsa um eigið skinn og upphefð. 

Ég var svo að vona að Vinstri grænir myndu standa í lappirnar, en er að sjá betur og betur að þar á bæ er alveg sami tvískinnungurinn og í Samfylkingunni.  Þeir ætla að springa á öllu sem þeir voru búnir að segja fyrir kosningar.  Þeir eru allt í einu farnir að tala tungum tveim og draga í land með andstöðu sína við Evrópusambandið og Icesavereikningana.  Eitthvað hlýtur að hanga þar á spýtunni. 

Þó ég sé algjörlega úti á túni með Icesavedæmið, þá er það alveg hreinar línur að ég lít á umsókn að Evrópusambandinu og daður við það apparat nánast sem landráð.  Ég er alfarið á móti því að fara þar inn.  Og mér sýnist allt benda til þess að það eigi að plata okkur þar inn af stjórnvöldum, hvort sem við viljum eða ekki.  Allt tal um að það sé ekki vitað hvaða díl við fáum er einfaldlega ekki rétt, það hefur marg oft komið fram bæði frá háttsettum mönnum innan ESB og íslenskum sérfræðingum og norskum að það er ekkert um það að ræða að fá neinar undanþágur, nema tímabundnar. 

Og nú hefur verið breytt um kúrs, nú er ekki lengur talað um að láta reyna á undanþágur í sjávarútvegi, nú er sagt að sjávarútvegurinn sé hvort sem er takmörkuð auðlind, sem endist hvort sem er ekki lengi, og við verðum að fara inn í Evrópusambandið til að lifa það af.

Þið sem endilega viljið gefa allt til að vera í ESB, af hverju flytjið þið ekki bara héðan og setjist í sæluna sem ríkir auðvitað allstaðar í ESBlöndunum, þar sem drýpur smjör af hverju strái.  Eða er það ekki þannig?   Er sama vandamál í flestum þeim löndum sem þar eru innanborðs?  Hvað er aftur atvinnuleysið á Spáni mörg prósent? Eða vandræðin á Írlandi, mér hefur skilist að finnskir bændur séu ekkert allof hressir, og því sem þeim var lofað ekki efnt.  Heyrst hefur að æ fleiri bretar vilji út úr sambandinu, en það er ekki hægt að ganga þaðan út, sé maður á annað borð kominn inn. 

Andstaðan við sambandið eykst sífellt, enda kemur æ meira í ljós að það eru maðkar í mysu.  Ákvarðanir teknar af fáum, og oft fólki sem hefur enga yfirsýn á þarfir aðildarríkjanna.  Græðgin verður sífellt meiri í auðlindir þjóðanna og yfirráð yfir þeim. 

Ég vil ekki þurfa að vera með áhyggjur af þessu, ofan á áhyggjur af ástandinu hér á landi.  Ég vil fá frið frá ESBóðum stjórnendum til að byggja mig upp og takast á við kreppuna.   Vinsamlegast setjið þetta ESB mál ofan í glatkistu og læsið það þar, þangað til við höfum unnið okkur út úr kreppunni.  En látið okkur ekki hafa það á tilfinningunni að þið séuð að plotta með ástandið til þess að þrýsta okkur nauðugum inn í aðstæður sem við viljum ekki, og getum síðan ekki komist út úr. 

Já ég er orðin reið við þessa ríkisstjórn, sem er ekkert opnari en sú fyrri, eða sú þar áður.  Ekkert nema leyndarmál og pukur bak við tjöldin.  Við eigum þetta ekki skilið.  Ég er líka dauðpirruð út í sjálfstæðismenn sem hamast og láta eins og tapsárir krakkar í sandkassa.  Vildi að þeir hreinlega gæfu okkur smáfrí frá þrasinu í þeim og ólundinni.  

Ég er að vona að fólkið rísi upp aftur og fylki sér út á götur og torg og segi hingað og ekki lengra.  Nú viljum við fá þjóðstjórn og við viljum fá að ráða hverir sitja í henni, og það verða ekki pólitíkusar heldur fagfólk sem kann, þekkir og veit.  Og þarf ekki að hugsa fyrst og fremst um sjálfa sig og sína aðstöðu og hvernig á að fela sem mest til að geta fengið kosningu aftur.  Því það er fyrst og fremst hugsunin virðist vera.  Tapa ekki andlitinu og fá ekki atkvæði. 

Það er komið nóg.  Og við almenningur í landinu verðum að taka af skarið og hreinlega segja yfirmönnunum upp.  Fá nýtt fólk sem ræður betur við ástandið, og EINBEITIR SÉR AÐ ÁSTANDINU Í LANDINU, FÓLKINU OG HEIMILUNUM, en ekki einhverju fólki í útlöndum fyrst og fremst.  Stjórn sem ER EKKI HRÆDD VIÐ ÚTRÁSARVÍKINGANA OG "EIGNIRNAR" SEM ÞEIR HAFA KOMIÐ UNDAN. 

 

Sem betur fer höfum við raddir fólksins inn á þingi, fólk sem segir okkur skilmerkilega frá því fánýti og innihaldslausu umræðum sem tíðkast þarna inni í leikhúsinu við Austurvöll.  Fólk sem er ennþá óspillt af þeim farsa og trúðsleik sem virðist tíðkast og menn geta hreinlega ekki látið af.  Ekki einu sinni í verstu nauðungartímum sem við höfum upplifað síðan móðurharðindinn.  Og það er meira að segja ennþá verið að fela ástandið.  Eða eins og Guðjón Arnar sagði við mig " ætliði að segja mér að fólkið sem er með mesta þingreynslu hér á landi hafi ekki gert sér grein fyrir ástandinu fyrir löngu? Að þau geti nú komið af fjöllum og haldið því fram að þau hafi ekki vitað hve alvarlegt ástandið var?  Þau vildu ekki hlusta á það í kosningabaráttunni þegar ég sagði að það yrði aldrei stoppað í fjárlagagatið með skattahækkunum og niðurskurði". 

 

 


Bloggfærslur 9. júní 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband