Áhugaverð tillaga frá Lilju Guðrúnu og pistill Sverris Jakobssonar, skyldulesning okkar sem eigum að bera allann pakkann.

Lilja Guðrún bloggvinkona mín ritar pistil á bloggið sitt og er með áhugaverða hugmynd um að allir þiggi sömu laun meðan við erum að ná okkur út úr kreppunni.  Sjá hér; http://lillagud.blog.is/blog/lillagud/entry/889789/#comment2445340.  Ýmsir hafa talið þetta vera hið mesta feigðarflan að hugsa svona og tala um að það gangi aldrei upp að allir hafi sömu laun. 

Ég er því ósammála.  Ég hef alltaf talið að laun skipti minnstu máli í sambandi við vinnuna.  Það sem skiptir mestu máli að mínu mati er að manni líði vel í vinnunni, og að maður hafi nóg til að lifa sínu lífi og sjá fyrir fjölskyldunni.  Það skiptir líka máli að starfið vekji áhuga manns og það sé gaman að vinna.  Þannig hef ég til dæmis hagað mínu vinnulífi.  Ég er að vinna að uppgræðslu gróðurs, og núna eftir nær 30 ára starf, get ég gengið um og glaðst yfir trjálundum og gróðri hér og þar og  veit að það voru hendurnar mínar sem stungu þessu niður, sumu rótarlausu öðru sem smáplöntum, og líka sumt sem ég fékk íbúana í lið með mér að gróðursetja, eins og limgerðið neðan Sætúns, þar sem við fengum greni úr skóginum og allir íbúarnir lögðust á eitt að koma trjánum niður.  Þetta er orðin hin fínasta hljóðmön fyrir íbúana gegn SKutulsfjarðarbrautinni sem er aðal vegurinn inn í bæinn.

En hvað með það.  Allof margir telja að menn fái besta starfskraftinn með því að borga nógu vel fyrir.  Ég tel og þá reikna ég út frá sjálfri mér og mörgum sem ég hef haft í vinnu, að það sé alls ekki það sem skipti máli, heldur afstaða einstaklingsins til vinnunnar og sjálfs sín.  Þegar þú hefur gaman af vinnunni og líkar vel við atvinnurekandann, ertu miklu tilbúnari að leggja ýmislegt á þig aukalega til að allt gangi upp.  Þá skiptir ekki máli krónufjöldinn í umslaginu.  Þetta þurfa menn að hafa í huga og ryfja upp.  Því það er búið að segja fólk svo oft að góð laun skapi góðan starfskraft.  Að fólk er farið að taka því eins og sjálfsögðum hlut.  Það er hins vegar al rangt, eins og menn geta séð ef þeir skoða útrásarvíkingana og ofurlaunakálfana sem hafa dúkkað upp allstaðar í þjóðfélaginu og eru svo sannarlega ekki verðir launanna.

Þess vegna vil ég líka benda á bloggið hennar Hönnu Láru í dag, þar sem hún birtir grein eftir Sverrir Jakobsson sem heitir Kreppan og endurmat.  Svo sannarlega skulum við líta til baka og skoða málin frá öðru sjónarhorni en við höfum hingað til látið mata okkur á. http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/890365/#comment2445339

fbl 090602 sverrir jakobs endurmat.jpg

Núna er tíminn til að fara til baka til upphafsins, til að gera ekki sömu mistökin aftur.  Og við eigum ekki bara að hlusta á það sem að okkur er rétt. Heldur verðum við að fara að láta í okkur heyra og gera okkar til að breyta því ástandi sem ríkir.  Við almenningur í landinu erum ekki bara þátttakendur í samfélaginu heldur fórnarlömbin sem eiga að axla mestu ábyrgðirnar fyrir því sem við höfum aldrei verið spurð að, né gefið samþykki okkar til. 

Það er komið nóg.  Þeir sem hafa breiðu bökin og mesta peningana eiga að reiða fram sinn hluta, og þar eru bankar og fjármálastofnanir ríkisins og aðrir ekki undanskilinn.  Og hana nú.

Eigið góðan dag.

 

 


Bloggfærslur 5. júní 2009

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband